Andvarpið - hlaðvarp foreldra

Andvarpið - hlaðvarp foreldra

Download on the App Store

Andvarpið - hlaðvarp foreldra episodes

  • Púrtvínslegnar mæður í aðventukófi

    Púrtvínslegnar mæður, börn með kakóskegg, á sleða á jólum og enn og aftur hversu bráð nauðsynlegt það er að fjárfestingar TInder komist í loftið fyrir allar okkur frábæru hugmyndir! Tvær úr úthverfinu boða letilega og kósí aðventu -ef ég nenni !!!
    Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber heima og var tekinn upp í Dal fjölskyldukaffihúsi.

    47 min
  • Með tíu í útvíkkun

    Gráta ljósmæður yfir hverri fæðingu rétt eins og við Emma þegar við horfum á One born every minute? Sýnir það sig nú undir lok árs að margir hafi kosið heimaleikfimi unfram Netflix og séu að eignast börn? Við fengum Helgu Reynisdóttur ljósmóður sem starfar sem ljósmóðir á Landspítalanum og  heldur úti Fæðingarfræðslu Helgu Reynis í spjall. Hún segir gaman að upplifa hvað konur séu upplýstar og starfið sé alltaf jafn magnað.
    Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber Training.

    42 min
  • Bugaðar konur í kápu

    Konan á bak við Cocopuffs í stígvéli myndina, sem ætti að hanga upp á vegg allra  foreldra í landinu, Lóa Hjálmtýsdóttir kom í viðtal. Lóa er myndlistarkonan á bak við Lóaboratorium, hún er líka tónlistarkona og bara einstaklega fyndin og skemmtileg. Við ræddum við hana um þá staðreynd að hún andvarpar meira en meðal konan, sprungin dekk, grafalvarlegar listir og uppeldi. Njótið!
    Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber Training.

    56 min
  • Á ofurkonan heima í endurvinnslunni?

    Hin svokallaða Ofurkona hefur verið í umræðunni síðustu daga og talið að þörf sé á að endurskilgreina það hugtak. Við veltum fyrir okkur hvort hugtakið eigi heima í endurvinnslunni eða hreinlega á ruslahaugunum. Emma og Mæja kryfja málin og skafa ekki utan af því. Þátturinn er í boði VÍS.

    54 min
  • Tjúllaðar í tuðinu

    Það er komið að þessu enn á ný. Tvær mæður, tveir staðir, tveir símar, ein sál sem heitir Andvarpið. Hér er upphafið að endinum, næsta Covid skeið framundan, við verðum með ykkur alla leið! Já og ekki fylgja uppeldisreglum Kattholts, þær eru pínu yfir strikið.

    54 min
  • Skipulag á dag kemur skapinu í lag!

    Virpi elskar að takast á við óreiðu og er ekki feimin að viðurkenna það ! Það þarf enginn að óttast að bjóða henni heim til sín í drasl en hún tekst á við stór sem smá skipulagsverkefni með bros á vör. Auk þess að reka eigið fyrirtæki, Á réttri hillu, hefur hún einnig hlotið nafnbótina Verndari óskilamuna í skóla barnanna sinna. 

    49 min
  • Þær eru komnar aftur !!!

    Upp með skipulagsdagbókina það er komið haust! Og er einhver ekki búin að ganga frá tjaldhælunum ... ja hérna hér ??? Við stöllurnar förum yfir sumarið í buxum og erum ágætlega ánægðar með okkur. Velkomin í aðra seríu af Andvarpinu ! Þátturinn er í boði VÍS.

    40 min

About Andvarpið - hlaðvarp foreldra

From the publisher's feed

Andvarpið hlaðvarp foreldra er fyrir foreldra, um foreldra, til foreldra. Í þessum þætti ræðum við almennt um foreldrahlutverkið, það að detta á hnéð með kúk í poka, að neyða börnin með í skíðaferð og…