Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 2005 - fyrri hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Emilíana Torrini snýr aftur, Ampopdúettinn breytist í tríó og Dikta er í hamingjuleit. Mugison & Hjálmar taka höndum saman, Vínyll gefur loksins út plötu og Orri Harðar öðlast aftur trú. Lights On The Highway vinnur GBOTB og gefur út sína fyrstu plötu, söngvaskáldið Helgi Valur er á einlægu nótunum og Kimono gerir út frá Berlín. Hildur Vala og Heiða Ólafs keppa til úrslita í Idol stjörnuleit, Jakobínarína á stefnumót við sjónvarpið, Benni Hemm Hemm býður í skrúðgöngu og Ragnheiður Gröndal selur grimmt. Írafár missir alla stjórn, Sálinni hefur aldrei liðið betur, Selma Björns tekur aftur þátt í Eurovision og Rass sýnir andstöðu.
    Meðal viðmælenda í 29. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2005 er til umfjöllunar, eru eru Emilíana Torrini, Kiddi í Hjálmum, Mugison, Baltasar Kormákur, Biggi Hilmars, Orri Harðar, Þór Freysson, Guðlaugur Júníusson, Egill Tómasson, Haukur Heiðar Hauksson, Kristófer Jensson, Stebbi Hilmars, Gummi Jóns, Ragga Gröndal, Birgitta Haukdal, Óttarr Proppé og Helgi Valur Ásgeirsson.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Emilíana Torrini - Heartstopper/Lifesaver/Sunny Road/Nothing Brings Me Down
    Rúnar Júlíusson & Hjálmar - Blæbrigði lífsins
    Mugison & Hjálmar - Ljósvíkingur
    Mugison - Little Trip to Heaven
    MínusBarði - Happy Endings
    Ampop - Eternal Bliss/Clown/Ordinary World/My Delusions
    Orri Harðar - Ég og þú/Listin að lifa
    Helgi Þór Arason - Instant Replay
    Heiða Ólafs - Líf/Hvað sem er
    Hildur Vala - Líf/Húsin mjakast upp/Segðu já
    Selma Björns - If I Had Your Love
    Vinyll - Miss Iceland/Nobody's Fool/Who Get?s The Blame
    Worm is Green - The Pop Catastrophy/Electron John
    Benni Hemm Hemm - Til eru fræ/I Can Love You In A Wheelchair
    Dikta - Losing Every Day/Breaking The Waves/Someone Somewhere
    Lights On The Highway - Long Summer Dining/She Takes Me Home
    Sálin hans Jóns míns - Þú færð bros/Aldrei liðið betur/Undir þínum áhrifum
    Ragnheiður Gröndal - After The Rain/ Its Your Turn
    Írafár - Ég missi alla stjórn/Lífið/Leyndarmál
    Kimono - Aftermath
    Rass - Við erum Rass/Umboðsmaður Alþingis/Burt með kvótann
    Jakobínarína - Ive Got A Date With My Television
    Helgi Valur- I Think it's Over/Its OK To Loose
    Curver - 1. janúar (Nýtt ár)/21. nóvember (I Fell In Love With My Spacequeen)
    Sign - A Little Bit
    Hudson Wayne - Desert/Battle Of The Banditos
    1 hr 50 min
  • Árið er 2004 - seinni hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Hjálmar heilla með seiðandi reggítónum, partýhetjan Love Guru slær í gegn, það eru gleðitímar hjá Kalla Bjarna og Stuðmenn eru í takt við tímann. Nylon er alls staðar, Raggi Bjarna er í flottum jakka, Ragnheiður Gröndal syngur vetrarljóð og Rafn Jónsson kveður sáttur. Mammút sigrar í Músíktilraunum, Múm leggur land undir fót en Geir Harðarson nemur land. Í svörtum fötum tryllir landann, Mínus túrar beggja vegna Atlantshafsins, Brain Police æfir stíft og Aldrei fór ég suður fer af stað. Ellen syngur sálma, Bubbi syngur um íslenska sjómenn en Hvanndalsbræður eru hrútleiðinlegir.
    Meðal viðmælenda í 28. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2004 eru Guðmundur Kristinn Jónsson, Ragnheiður Gröndal, Örn Elías Guðmundsson, Einar Jónsson, Þórður Helgi Þórðarson, Margrét Eir Hjartardóttir, Einar Bárðarson, Ragnar Bjarnason, Rafn Ragnar Jónsson, Egill Örn Rafnsson, Ragnar Sólberg Rafnsson, Bubbi Morthens, Birgitta Haukdal, Erpur Eyvindarson, Jón Björn Ríkharðsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Hjálmar - Jamm og Jú/Kindin Einar/Bréfið/Borgin
    Stuðmenn - Í takt við tímann/Fönn fönn fönn
    Ragnheiður Gröndal - Húmar að/Landgangur/Ítem/Dís
    Geir Harðarson - Aha
    Mugison - I?d Ask
    Gus Gus - Call Of The Wild
    Kalli Bjarni - Gleðitímar+
    Jón Sig - I Don?t Wan?t To Talk About It
    Maus - Over Me Under Me
    Í Svörtum Fötum - Meðan ég sef/Eitt
    Love Guru - Ástarblossi/1,2 Selfoss
    Singapore Sling - Life Is Killing My Rock 'n' roll
    Mammút - Mosavaxin börn
    Hvanndalsbræður - Kisuklessa
    MÚM - Weeping Rock Rock
    Margrét Eir - Í næturhúmi/Einn góðan dag
    Nylon - Allstaðar/Lög Unga fólsins/Bara í nótt
    Ragnar Bjarnason - Flottur jakki/Barn
    Rabbi - Fuglar geta ekki flotið á tungliu/Veðrið er gott fyrir vestan
    Páll Rósinkrans - Nátturubarn/Lífið sjálft
    Bubbi Morthens - Íslenskir sjómenn/Þetta mælti hann
    Ellen Kristjánsdóttir - Nú legg ég augun aftur
    Írafár - lífið
    Birgitta Haukdal - Vögguvísa án söngs/Söngur súkkulaðiprinsessunnar
    Hæsta hendin - Norður/Botninn upp
    Brain Police - Coed Fever/Mr. Dolly
    Mínus - Angel In Disguise
    Slowblow - Cardboard Box
    Draupner - Draumkvæði
    Ellen Kristjánsdóttir - Guð gaf mér eyra
    Daysleeper - Looking To Climb
    1 hr 50 min
  • Árið er 2004 - fyrri hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Mugison semur lag ársins með vini sínum Pétri Ben, Trabant treður upp á Bessastöðum, Ske er í góðum fíling og Eivör vinnur með Vestur-íslenska tónlistarmanninum Bill Bourne. Björk syngur á setningarathöfn Ólympíuleikanna, Jónsi fer í Eurovision, Nýdönsk og Sinfóníuhljómsveitin rugla saman reytum og Jón Ólafs syngur um sunnudagsmorgun. Brimkló segir smásögur, Hljómar rífa húmorinn upp og hljómsveitin Tenderfoot vekur bjartar vonir. Þórunn Antonía fer í brúðkaupsferð til Bretlands en Quarashi kastar hvíta handklæðinu í hringinn og Jan Mayen dásamar Nick Cave. Á móti sól breiðir yfir 12 íslensk topplög og Jagúar heldur áfram að fönka landann upp, Sigurmolarnir syngja sigurlagið og Mannakorn syngur um Satan.
    Meðal viðmælenda í 27. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2004 er til umfjöllunar, eru Örn Elías Guðmundsson, Samúel Jón Samúelsson, Börkur Birgisson, Daði Birgisson, Gunnar Þórðarson, Björn Stefánsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Kjartansson, Þorvaldur Gröndal, Magni Ásgeirsson, Samúel Örn Erlingsson, Jón Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall, Sölvi Blöndal, Vilhelm Anton Jónsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Jón Björn Ríkharðsson og Ágúst Bogason.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Mugison - I Want You/What I Would Say In Your Funeral/2 Birds/Murr Murr/I?d Ask
    Jagúar - Bodyparty/Hello Somebody/Þú ert
    Hljómar - Upp með húmorinn/Eitt lítið stef
    Brimkló - Nú held ég heim/Bolur inn við bein
    Tenderfoot - Waterfall/Beautiful Son
    Trabant - Lady Elephant/Enter Spacebar
    Eivör Pálsdóttir - Only A Friend Of Mine/Tröllabundin/Ég veit að þú kemur
    Þórir - Hey Ya, Canada Oh Canada
    Á móti sól - Traustur vinur
    Björk - Who Is It/Oceana/Triumph Of A Heart
    Jón Ólafs - Afstæðiskenning ástarinnar/Láttu þig dreyma/Sunnudagsmorgunn
    Nýdönsk & Sinfó - Hvað kostar hamingjan
    Ske - On The Way To Lose It Somehow/Beautiful Flowers
    Jónsi - Heaven
    Mannakorn - María/Satan er til
    Quarashi - Stun Gun/This song/Stars
    Start - Lífið og tilveran/Paradís/Gamlar myndir
    Honeymoon - Passive Aggressive/Truth Hurts/Come Undue
    Stranger - You know
    Jan Mayen - On A Mission/Nick Cave
    Sverrir Stormsker & Landsliðið - Sigurlagið
    1 hr 50 min
  • Árið er 2003 - seinni hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Hljómar snúa aftur, Maus og Botnleðja tala tungum og Eberg kveður sér hljóðs. Mínus umpólast, Barði í Bang Gang er sinnar eigin gæfu smiður, Eivör slær í gegn hjá frændum sínum og Sálin frumsýnir söngleik. Idol æði skolar á land frá Ameríku, KK & Maggi fara í ferðalag, Ríó tríó kemur úr felum en Jónsi Í svörtum fötum hefur ekkert að fela. Trabant slær í gegn á Airwaves og Funerals gerir kántrýplötu uppí sveiten Margrét Eir bíður í andartak. Skytturnar rappa um lognið á undan storminum, Dys gefur út veiðileyfi á ríkisstjórnir en Land og synir eru á fjórum fótum í óðali feðranna.
    Meðal viðmælenda í 26. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2003, eru Gunni Þórðar, Rúni Júl, Eggert og Biggi Maus, Eivör, Margrét Eir, Hrafnkell Pálmarsson, Jónsi, Sölvi Blöndal, Barði Jóhannsson, Lárus Jóhannesson, Anna Hildur, Einar Kristjáns, Ragnar Kjartans, Þorvaldur Gröndal, Björn Stefánsson, Máni Pétursson, Björgvin Halldórs, Gummi Jóns, Þór Freysson, Heiðar Örn Kristjáns, Einar Tönsberg og Hreimur.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Hljómar - Mývatnssveitin er æði/Við saman
    Maus - How Far Is Too Far/Musick/My Favourite Excuse/ Life In A Fishbowl
    Eivör Pálsdóttir - Hjarta mitt/Nú brennur tú í mær
    KK & Maggi Eiríks - Flöku Jói
    Í svörtum fötum - Þrá/ Ekkert að fela
    Jónsi & Birgitta - Sumarnótt
    Quarashi - Mess it up/Race city/Orð morð
    Bang Gang - Something Wrong/Follow/Stop In The Name Of Love
    Lady And Bird - Do What I Do
    GusGus & Einar Örn - Í augum úti
    Trabant - Nasty Boy
    Funerals - To Hell/Stockholm City
    Stuðmenn - Halló halló halló
    Mínus - Romantic Exorcism/The Long Face/Here Comes The Night
    Björgvin & Krummi - You Belong To Me/Hvað vita þeir
    Sálin - Á einu augabragði
    Miðnes - Ég sprengi klukkan þrjú
    Anna Katrín - Ekkert breytir þvi
    Jón Sigurðsson - Flugvélar
    Kalli Bjarni - Aðeins einu sinni
    Ríó - Alltaf einn
    Botnleðja - Brain Balls & Dolls/Human Clickbate
    Eberg - Smoker In A Film/Plastic Lions
    Slowblow - Why Hawaii?
    Kimono - Japanese Policeman
    Land og Synir - Á fjórum fótum/Von mín er sú
    Margreit Eir - Augnablik/Heiðin há
    Skytturnar - Lognið á undan storminum
    Dys - Veiðileyfi á ríkisstjórnir/Ísland brennur
    Sigga Beinteins & Björgvin Halldórs - Ef til vill andartak
    1 hr 50 min
  • Árið er 2003 - fyrri hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Birgitta Haukdal opnar hjarta í Eurovision, Botnleðja syngur Júróvísu og Dr. Gunni býður upp á snakk fyrir pakk. Emilíana Torrini semur topplag fyrir Kylie en Ragnheiður Gröndal trónir á toppnum á tónlist.is. 200.000 Naglbítar skipta um trommara, Á móti sól sendir frá sér Fiðrildi og Skífan vinnur baráttuna um Brain Police. Bubbi syngur um þúsund kossa nótt, Guðjón Rúdólf leitar að húfunni sinni, Papar halda til hafs á ný og hinir ástsælu Spaðar syngja Obb bobb bobb. Dáðadrengir sigra í Músíktilraunum, Nilfisk spilar í Höllinni í boði Foo Fighters, Dr. Spock syngur klám en Leoncie um ást á pöbbnum. Hera tekur upp plötu á íslensku, Lára Rúnars vekur athygli á uppskeruhátíð en Hvannadalsbræður eru gjörsamlega út úr kú.
    Meðal viðmælenda í 25. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2003 er til umfjöllunar, eru Vilhelm Anton Jónsson, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Lára Rúnarsdóttir, Emilíana Torrini, Magni Ásgeirsson, Guðmundur Andri Thorsson, Magnús Haraldsson, Ragnheiður Gröndal, Haraldur Gíslason, Birgitta Haukdal, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Jón Björn Ríkharðsson, Dave Grohl, Víðir Björnsson og Ólafur Ragnar Grímsson.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Hljómar - Mývatnssveitin er æði/Við saman
    Maus - How Far Is Too Far/Musick/My Favourite Excuse/ Life In A Fishbowl
    Eivör Pálsdóttir - Hjarta mitt/Nú brennur tú í mær
    KK & Maggi Eiríks - Flöku Jói
    Í svörtum fötum - Þrá/ Ekkert að fela
    Jónsi & Birgitta - Sumarnótt
    Quarashi - Mess it up/Race city/Orð morð
    Bang Gang - Something Wrong/Follow/Stop In The Name Of Love
    Lady And Bird - Do What I Do
    GusGus & Einar Örn - Í augum úti
    Trabant - Nasty Boy
    Funerals - To Hell/Stockholm City
    Stuðmenn - Halló halló halló
    Mínus - Romantic Exorcism/The Long Face/Here Comes The Night
    Björgvin & Krummi - You Belong To Me/Hvað vita þeir
    Sálin - Á einu augabragði
    Miðnes - Ég sprengi klukkan þrjú
    Anna Katrín - Ekkert breytir þvi
    Jón Sigurðsson - Flugvélar
    Kalli Bjarni - Aðeins einu sinni
    Ríó - Alltaf einn
    Botnleðja - Brain Balls & Dolls/Human Clickbate
    Eberg - Smoker In A Film/Plastic Lions
    Slowblow - Why Hawaii?
    Kimono - Japanese Policeman
    Land og Synir - Á fjórum fótum/Von mín er sú
    Margreit Eir - Augnablik/Heiðin há
    Skytturnar - Lognið á undan storminum
    Dys - Veiðileyfi á ríkisstjórnir/Ísland brennur
    Sigga Beinteins & Björgvin Halldórs - Ef til vill andartak
    1 hr 50 min
  • Árið er 2002 - seinni hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni. Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta borðar yfir sig af bleikum sjeik. Apparat Organ Quartett spilar rokk og ról í steríó, Emilíana Torrini leggur Gollum orð í munn og Santiago vekur bjartar vonir. Búdrýgindi bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Einar Tönsberg útskrifast með Lorien í Englandi og Skárren ekkert breytist í SKE. Í svörtum fötum fer sigurför um landið og spilar og syngur dag sem dimma nátt en Sign leitar að rauðu ljósi. Rappbylgja skellur á landinu. Bæjarins bestu halda sig í klúbbnum, Móri segist vera atvinnukrimmi og XXX Rottweilerhundar skulda. Múm föndrar grasi vaxin göng, KK syngur í paradís og englar himins grétu í dag en ástin vex á trjánum hjá Valgeiri Guðjóns.
    Meðal viðmælenda í 24. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2002, eru Sölvi Blöndal, Emilíana Torrini, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Haukur Heiðar Hauksson, Franz Gunnarsson, Ágúst Bent Sigbertsson, Erpur Eyvindarson, Kjartan Kjartansson, Einar Örn Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall og Kristján Kristjánsson.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson
    1 hr 50 min
  • Árið er 2002 - fyrri hluti
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fær fljúgandi start, Fídel gefur út plötu og geispar golunni en Land og synir fá Happy Endings. Orri Harðar fellir tár, Brain Police finnur Jenna og Buff finnur glerbrot í vaselíninu. Græni ormurinn skríður út úr bílskúr á Skipaskaga, hárin rísa á höfði Ampopdúettsins en það þarf fólk eins og Rúnar Júl fyrir fólk eins og þig og mig.
    Meðal viðmælenda í 23. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2002 er tekið fyrir, eru Birgitta Haukdal, Vignir Snær Vigfússon, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Örn Elías Guðmundsson, Birgir Hilmarsson, Georg Hólm, Hreimur Örn Heimisson, Magnús Þór Sigmundsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Orri Harðarson, Arnar Guðjónsson og Jón Björn Ríkharðsson.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Írafár - Ég sjálf/Stórir hringir/Írafár - Ég sjálf
    Sálin hans Jóns míns - Þú fullkomnar mig
    Sálin & Sinfó - Upplifun/Vatnið
    Gus Gus - Dance you Down/David
    Silfurfálkinn - Turn your lights down
    Rúnar Júlíusson - Gott er að gefa/Það þarf fólk eins og þig
    Nýdönsk - Fagurt fés/Flugvélar
    Mugison - Sea Y/Ear/Poke A Pal
    Ampop - Made For Market/Sociopath
    Worm Is Green - The Robot Has Got The Blues/Love Will Tear Us Apart
    Sigur Rós - Lag nr. 1 (Vaka)/Lag nr. 4 (Njósnavélin)
    Land & synir - Summer/Smile/If
    Megas - Vertu mér samferða inní draumalandið amma/Ungfrú Álís
    Þórunn Antonía - Play Me/The Sun Is Shining/Zebra Butterfly
    Orri Harðarson - Ást/Freisting
    Leaves - Catch/Race
    Fídel - Who Gives A Rat/The Great Skua
    Brain Police - Jacussy Suzy
    Hljómsveitin ÉG - Geitungarnir mínir
    Rúnk - Klapparstígur/Atlavík 84
    Buff - Gringó/Glerbrot
    1 hr 50 min
  • Árið er 2001
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Svala Björgvins skrifar undir risasamning í Ameríku og Leaves fær samningstilboð frá stærstu nöfnunum í tónlistarbransanum. Björk selur tvær milljónir af Vespertine, Sigur Rós fer umhverfis jörðina á 250 dögum og Trabant selur sig á auglýsingamarkaðnum. XXX Rottweilerhundar gelta hátt og Páll Óskar og Monika sofna ekki í nótt en Quarashi og Botnleðja troða upp með Melabandinu. Magni Ásgeirsson er spenntur Á móti sól, Birta breytist í engil og lendir í næstneðsta sæti á Parken en Egill Ólafs finnur nýjan engil. Sálin leitar logandi ljósi að söngleik, Milljónamæringarnir ferðast með Mambólestinni en Herbert svarar á íslenskri tungu. Fabúla skilur eftir kossafar á ilinni og lífið er yndislegt.
    Meðal viðmælenda í 22. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2001 er tekið fyrir, eru Magni Ásgeirs, Einar Bárðar, Birgitta Haukdal, Björk, Hreimur Örn, Fabúla, Kiddi Hjálmur, Svala Björgvins, Björgvin Hallldórs, Viðar Hákonar, Þorvaldur Gröndal, Erpur Eyvindar, Ágúst Bent, Einar Örn Jónsson, Jóhanna Guðrún, Halli Gísla, Óttar Proppé, Gummi Jóns, Stebbi Hilmars, Páll Óskar, Ragnar Sólberg, Egill Rafnsson, Sölvi Blöndal og Höskuldur Ólafsson.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Á móti sól - Ég er til/Spenntur
    Gunni Óla & Kristján Gíslason - Birta
    Two Tricky - Angel
    Herbert Guðmundsson - Svaraðu
    Írafár - Eldur í mér/Fingur
    Björgvin Halldórsson - Lennon
    Björk - Hidden Place/Pagan Poetry
    Hreimur - Lífið er yndislegt
    Bubbi Morthens - Þú mátt kalla það ást/Nýbúinn
    Fabúla - Röddin þín/Kossafar á ilinni
    Sigur Rós & Steindór Andersen á Galdrahátíð á Ströndum
    Tvíhöfði - Sigur Rósar lagið
    Fálkar - Flugufrelsarinn
    Svala Björgvins - Falling/The Real Me
    Trabant - Moment Of Truth/Superman/Puppy Eyes
    Leaves - Deep Blue/Breathe
    Geirfuglarnir - Konan/Vertu mér hjá
    XXX Rottweiler hundar - Sönn íslensk sakamál/Hí á þig/XXX/Bent nálgast
    Í svörtum fötum - Nakinn
    Jagúar - Sumargyðjan
    Jóhanna Guðrún - Ég sjálf
    Milljónamæringarnir - Mambólestin/Smells Like Teen Spirit
    Ham - Partýbær
    Sálin hans Jóns míns - Flæði/Ég var þar/Á nýjum stað
    Egill Ólafsson - Móðir/Þórdís
    Nýdönsk - Lærðu að ljúga
    Páll Óskar & Monika - Sonnetta 154
    Hljómar - Ég elska alla
    Sign -Cassandra/Sektarkennd
    Land & synir - Blowing U Up
    Land og Synir - Losing Joanna
    Úlpa - Dinzl
    Url - Þröngsýni
    Quarashi - Úrsúlugjá/Baseline/Transparent Parents
    Védís Hervör - Dont Talk
    1 hr 50 min
  • Árið er 2000
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Útrás Sigur Rósar fær fljúgandi start og Björk er tilnefnd til Óskarsverðlauna. Sálin hyggur á söngleik, Sóldögg upplifir kraftaverk, Utangarðmenn snúa aftur en lífið bíður ekki eftir Selmu Björns. Botnleðja lendir í slæmum málum, bransinn reynir að breyta Bellatrix í poppsveit, Múm fer í mál og Mugison er lúði. 110 Rottweilerhundar rústa Músíktilraunum, Brain Police spilar eyðimerkurrokk en Mínus harðkjarnarokk.
    Meðal viðmælenda í 21. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2000 er tekið fyrir, eru Stebbi Hilmars, Gummi Jóns, Birgitta Haukdal, Kjartan Sveinsson, Georg Holm, Magni Ásgeirs, Gísli Marteinn, Björn Jörundur, Bergsveinn Arilíusson, Elíza Newman, Steinar Berg, Vilhelm Anton Jónsson, Halli Gísla, Heiðar Örn, Mugison, Gunnar Örn Tynes, Örvar Þóreyjarson, Sjón, Kiddi Hjálmur, Birggi Hilmars, Einar Ágúst, Gunni Ólas, Herbbi Viðars, Ágúst Bent, Erpur Eyvindarson, Björn Stefánsson og Máni Pétursson.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Sálin hans Jóns míns - Ekki nema von/Uppí skýjunum/Sól ég hef sögu að segja þér
    Írafár - Hvar er ég
    Buttercup - Hvenær/Endalausar nætur
    Sigur Rós - Nýja lagið/Dánarfregnir og jarðarfarir
    Damon Albarn & Einar Örn - Lola Flamenco
    Utangarðsmenn - Íslenski draumurinn/Crazy/Hírósíma
    Á móti Sól - Vertu hjá mér/Í Vestmannaeyjum
    Luxus - Sleep/Monday Morning
    Eggert Þorleifsson - Hárfinnur hárfíni
    Sóldögg - Bonasera/Hennar leiðir
    Bellatrix - The Girl With The Sparkling Eyes/Jedi Wannabe
    Útópía - Sólmyrkvi
    200.000 naglbítar - Toksík Allah/Lítill fugl/Stopp nr. 7
    Miðnes?Reykjavík Helvíti
    Botnleðja - Farðu í röð/Fallhlíf/Ég er frjáls
    Mugison - Bíddu/Ég er lúði
    Selma & Stebbi Hilmars - Lame Excuse
    Todmobile - Þeirr sem guðirnir elska/Fæ aldrei nóg
    Múm - Awake On A Train/I?m 9 today
    Kanada - La Go
    Björk & Thom Yorke - I?ve Seen It All
    Í svörtum fötum - Ég veit
    Fálkar - Ástarkveðja frá Keflavík
    Ampop - Psychic
    Brain Police - Cheap Lovin/Crash & Burn
    Einar Ágúst & Telma - Tell Me
    Skítamórall - Einn Með þér/Ennþá
    Tvíhöfði - Ú kæra vina
    Egill Sæbjörnsson - I Love You So
    110 Rottweilerhundar - Beygla
    Blaz Roca & Bent - Ógæfa.is
    XXX Rottweiler hundar - Þér er ekki boðið
    Sverrir Bergmann - Án þín
    Mínus - Liquid Courage
    Rúnar Júlíusson - Ekkert jafnast á við Jesú
    Jóhanna Guðrún - Villikötturinn
    Megas - Klappað í stíginn
    1 hr 50 min
  • Árið er 1999
    Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
    Ágætis byrjun hjá Sigur Rós vekur áhuga tónlistaráhugamanna út um allan heim. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður til og Quarashi heillar ameríska bransakarla. Emilíana Torrini gerir plötu fyrir erlendan markað, Bellatrix og Coldplay túra saman um Bretlandseyjar en Selma Björnsdóttir er All Out Of Luck og lendir í öðru sæti í Eurovision. Hljómsveitn Maus fellur að eyrum hlustenda, KK og Magnús eru kóngar í einn dag og Sálin hans Jóns míns snýr aftur, órafmögnuð. Ensími vinnur með Steve Albini, Gus Gus liðum fer fækkandi en Páll Óskar er Deep Inside og í djúpum skít fjárhagslega. Skítamórall rúntar á Rammsteinrútunni og Mínus rústar Músíktilraunum.
    Meðal viðmælenda í tuttugasta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1999 er tekið fyrir, eru Emilíana Torrini, Birgir Örn Steinarsson, Elíza Newman, Haraldur Gíslason, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Selma Björnsdóttir, Hreimur Örn Heimisson, Friðþjófur Sigurðsson, Árni Matthíasson, Kristinn Sæmundsson, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Arnþór Örlygsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Baldur Stefánsson, Sölvi Blöndal, Einar Ágúst Víðisson, Gunnar Ólason, Herbert Viðarsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
    Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum.
    Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
    Lagalisti:
    Emilíana Torrini - To Be Free/Easy/Unemployed In Summertime
    Maus - Strengir/Kerfisbundin þrá/Allt sem þú lest er lygi
    Bellatrix - Jedi Wannabe
    Silt - Tracing God
    Stuðmenn - Komdu með
    Selma Björnsdóttir - All Out Of Luck/Hit Girl
    Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska/Neiðarrúmba/Fílarðu mig?
    Land og synir?Lending 407/Örmagna
    Sigur Rós - Svefn-g-englar/Ný batterý/Viðrar vel til loftárasa
    KK & Maggi Eiríks - Seinna Seinna/Kóngur einn dag
    Sálin hans Jóns míns - Ég er kominn/Orginal/Okkar nótt
    Tvíhöfði - Ég heiti Tvíhöfði
    Bubbi - Það þarf að myndana/Góðar stelpur fara til himna
    Ensími - Böstaður í tollinum/Vínrauðvín
    Páll Óskar - Deep Inside/Make Up Your Mind
    Stjörnukisi - Flottur sófi
    Gus Gus - Starlovers/Ladyshave/V.I.P.
    Quarashi - Model Citizen/Tarfur/Stick?em Up
    Jagúar - Theme for Miguel
    Skítamórall - Fljúgum áfram/Einn með þér
    Ellý Vilhjálms - Vegir liggja til allra átta
    Mínus - Svínsköpun/Stark Art of Desire
    SSSól - Þú ert ekkert betri en ég
    1 hr 50 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners