Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Umsjón: Anna Marsbil Clausen Hosted on Acas... more
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.
December 15, 2019HátíðarskapHvaðan koma orðin Þorláksmessa og aðfangadagur og hvað þýða hlakkandi og huggunargjöf? Í þessum hátíðarþætti má til dæmis heyra hvaðan sögnin að kæsa kemur og skoðaðar eru jólakveðjur á nokkrum erlendum málum. Þá eru ekki bara heiðin eða kristin jól á þessum árstíma, því einnig eru til miðsvetrarhátíðirnar hanuka og kwanzaa....more31minPlay
December 08, 2019Hringtorg eða ekki hringtorg?Hvað er hringtorg? Það er ekki oft sem skilgreining algengra hluta eins og hringtorga verður fréttaefni, en nýverið hefur raunin orðið sú. Deilt hefur verið um það hvort hafa megi stoppistöð fyrir strætisvagna á tveimur stöðum í Reykjavík, Hagatorgi og við Hádegismóa og einum í Hafnarfirði, við Vörðutorg. Allt eru þetta hringtorg, að minnsta kosti samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu og málvenju. 15. nóvember var greint frá því í Morgunblaðinu að vagnstjórar Strætós mættu eiga von á sektum ef þeir stöðvuðu vagna á biðstöðvum við hringtorg, en óheimilt er samkvæmt 28. grein umferðarlaga að stöðva bifreið í hringtorgi. Strætó lokaði því biðstöðvunum. 28. grein er raunar eina grein umferðarlaga þar sem orðið hringtorg er notað. Það virðist reyndar ekki vera mat Reykjavíkurborgar að Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur sé endilega hringtorg. Þó eru við hringtorgið merkingar sem gefa til kynna hringtorg og sama á við um hringtorgið við Hádegismóa þar sem einnig var biðstöð. Í viðtali við mbl.is 15. nóvember sagðist Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar ekki eiga von á því að biðstöðin við Hagatorg yrði færð. Unnið væri að því að finna hvaða breytingar þyrfti að gera á merkingum á svæðinu. Þá voru þessi athyglisverðu orð höfð eftir honum í Morgunblaðinu daginn áður, 14. nóvember: „Þetta er ekki hringtorg, heldur akbraut. Þetta er vissulega torg, en ekki endilega hringtorg þó að það liggi í hring,“ Um það hvort Reykjavíkurborg líti á hringtorgið við Hádegismóa sem hringtorg eða eitthvað annað, sagði Bjarni þetta við mbl.is: „Væntanlega er það nú hringtorg, en ég hef ekki séð það með berum augum.“...more28minPlay
December 01, 2019Raddbandaurg, innsog og fleiraEnska hugtakið vocal fry hefur verið kallað raddbandaurg á íslensku. Heitið vísar í hljóð sem fólk gefur frá sér við ákveðna raddbeitingu. Urgið getur komið fram í tali og söng, jafnt karla sem kvenna, og er almennt ekki álitið skaðlegt röddinni. Í þættinum lítum við á þetta og fleira sem sett hefur verið út á í máli ungra kvenna....more30minPlay
November 24, 2019Má segja þetta? Bölv og blótsyrðiVið vörum við orðbragðinu í þessum þætti. Það er hægt að bölva, ragna og formæla, biðja bölbæna eða óbæna, skamma, sótast og sveia, bannsyngja, úthúða, atyrða, segja til syndanna, eða bölva fólki í sót og ösku. Sú sem það gerir getur til dæmis verið dóni, rusti, sótraftur eða sorakjaftur. Hægt er að úthúða fólki eða formæla því á íslensku með alls konar orðum en nokkur dæmi má heyra í þessum þætti. Einnig er litið á það hvenær er blótað og hvenær ekki og hvaðan blótsyrðin koma....more29minPlay
November 17, 2019FlámæliÍ flámæli falla annars vegar saman löngu sérhljóðin i og e, og hins vegar löngu sérhljóðin u og ö. Flámæli fannst í einhverjum mæli víðast hvar á landinu, en aðallega á þremur ótengdum svæðum, Austurlandi frá Norður-Múlasýslu til Austur-Skaftafellssýslu, Húnavatnssýslum og suðvestanverðu landinu. Þá var það algengt í vestur-íslensku. Flámæli sker sig frá flestum eða öllum öðrum landshlutabundnum framburðartilbrigðum að þrennu leyti. Það fannst í fyrsta lagi aðallega á þremur stöðum á landinu sem liggja ekki saman. Í öðru lagi var það fordæmt og markvisst reynt að útrýma því. Í þriðja lagi er flámæli ólíkt öðrum landshlutabundnum afbrigðum nýjung en ekki eldra mál. Það þótti því vont mál og með markvissri baráttu í skólakerfinu og aðstoð almenningsálitsins, var það svo til þurrkað út. Það gekk svo langt að nefnd á vegum fræðslumálastjóra og menntamálaráðuneytisins lagði til um miðja síðustu öld að dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins og stjórn Þjóðleikhússins sæju til þess að flámælt fólk kæmi ekki fram....more30minPlay
November 10, 2019Eignarfallsflótti í íslenskuEignarfall er sjaldgæfast allra falla í íslensku, fáar algengar sagnir og forsetningar taka það til dæmis sem andlag. Eignarfallið er viðkvæmt fyrir áhrifum og breytingum eins og sést til dæmis í beygingu kvenkynsorða. Það kemur meira fyrir í rituðu máli og formlegu en í óformlegu máli og töluðu. Það er þó hvergi nærri horfið úr íslensku, að minnsta kosti ekki enn þá....more29minPlay
November 03, 2019Eignarfall og eign í færeyskuFæreyingar eiga sín eigin orð yfir föllin fjögur, sem eiga rætur að rekja til fornafnsins hvør, sem svarar til hver á íslensku. Nefnifall heitir á færeysku hvørfall, þolfall er hvønnfall, þágufall nefnist hvørjumfall og eignarfall heitir hvørsfall. Hið síðastnefnda er þó nánast horfið úr málinu. Þegar rætt er á færeysku um eignartengsl eru til nokkrar leiðir, sem komið hafa í stað hins horfna eignarfalls. Til dæmis er hægt að hengja endinguna -sa aftan á nafnliði sem vísa til mannfólks. Ef Tummas á dómaraskrifstofunni (á færeysku Tummas á dómarakontórinum) á bíl, er á færeysku hægt að segja „Tummas á dómarakontórinumsa bilur“. Stundum er sagt að eignarfall í íslensku standi höllum fæti og ef til vill getur staðan í færeysku sagt okkur eitthvað um horfurnar í íslensku....more29minPlay
October 27, 2019Fröllurnar í öbbanum - slangurSlangur er orðfæri sem er nær eingöngu bundið óformlegu máli, oft talmáli en einnig óformlegu rituðu máli eins og net- eða SMS-skilaboðum. Það víkur frá viðurkenndu málsniði, þ.e. nýtur ekki viðurkenningar sem gott mál og er síður notað við formlegar aðstæður. Slangur er samt skemmtilegt, frjótt og skapandi og er merki um að tungumál sé lifandi. Slangur getur átt þátt í nauðsynlegri endurnýjun máls. Það skiptir máli hver notar hvaða slangur og það getur verið nátengt ákveðnum þjóðfélagshópum eða stéttum. Grunnskólakrökkum finnst það til dæmis líklega algjört þrot ef foreldrar tala um að eitthvað sé hellað nett eða alveg illað....more30minPlay
October 13, 2019Málstefna og kyn í máliÍ mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar segir að óheimilt sé að mismuna fólki vegna kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna eða kyns. Tekið er fram að það eigi ekki að ganga út frá því að allt fólk sé gagnkynhneigt og sís-kynja. En hvað þýða öll þessi orð? Kynvitund, kyntjáning, sís - já eða regnhlífarhugtakið sjálft - hinsegin. Hvað þýðir það? Og hver er munurinn á því að vera hinsegin og kynsegin?...more29minPlay
October 06, 2019Hinsegin og hýryrðiRætt er um baráttu hinsegin fólks fyrir eigin orðaforða, nýyrðasamkeppnina hýryrði, nýja persónufornafnið hán og fleira. Viðmælandi í þættinum er Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna '78 og málfræðingur....more29minPlay
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.