Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Umsjón: Anna Marsbil Clausen Hosted on Acas... more
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.
March 01, 2020Orð um fólkEfni þáttarins: tískusveiflur í íslenskum mannanöfnum, nýlegt frumvarp um orðið maður í stjórnskipunarlögum Færeyja og orðið maður í íslensku lagamáli....more30minPlay
February 23, 2020Farsóttir og atsóttirÍ þættinum er meðal annars skoðað hvaðan heitin COVID-19, kórónaveira, inflúensa og spænska veikin koma....more30minPlay
February 16, 2020Rokkstokkur, lófaspilari og hljóðpotturÁður en snjallsímar tóku við var um tíma vinsælt að nota mp3-spilara. Sennilega var gullöld þessara spilara fyrsti áratugur 21. aldarinnar. Um þetta fyrirbæri voru mynduð ýmis ný íslensk orð. En hvers vegna verða til svo mörg orð um sama fyrirbærið? Í þættinum er einnig litið á orð yfir önnur tæki sem taka má með sér á ferðalög til að hlusta á tónlist, og fjallað um nokkuð sem kallað var meðal annars málvélakefli þegar það kom fyrst fram....more32minPlay
February 09, 2020Veður liggja til allra áttaHvað þýðir útsynningur og landnyrðingur og hvaðan koma orðin hægri og vinstri? Svör við því fást í þætti vikunnar....more30minPlay
February 02, 2020Vafrakaka, orkuskipti, svargur og strútskýringÍ þættinum eru skoðuð ýmis nýleg orð á borð við vafraköku og kulnun. Orðið kulnun er notað um viðvarandi andlega og líkamlega þreytu og doða, einkum í tengslum við vinnu - það að fólk fer að finna til starfsleiða eða -kvíða vegna viðvarandi álags, sem einnig hefur verið kallað útkulnun og þrekþurrð. Orðið er myndlíking þar sem þreki eða krafti er líkt við hita, og einkennum leiða og kvíða líkt við kulda....more29minPlay
January 26, 2020Epalhommi og fleiri nýleg orðNýyrðasmíð hefur lengi verið öflug í íslensku. Í þætti vikunnar eru meðal annars skoðuð orðin þyrilsnælda, örplast, hægvarp, epalhommi og innviðauppbygging....more30minPlay
January 19, 2020Hamfarahlýnun og fleiri nýleg orðÍ þættinum er litið á orð ársins 2019, hamfarahlýnun. Þá eru skoðuð orð sem þóttu standa upp í umræðunni og komu til greina í fyrri kosningum Ríkisútvarpsins um orð ársins....more29minPlay
January 05, 2020Orð ársins 2019Burstabann, dagskrárvald, drægnikvíði, hamfarahlýnun, hrossamakríll, kynrænt sjálfræði, ljósbogi, loftslagskvíði, mjaldrasystur, pokasvæði, sprengilægð og þungunarrof komu til greina sem orð ársins í nýafstaðinni kosningu Ríkisútvarpsins. Kosningunni lauk 3. janúar og verða niðurstöðurnar birtar föstudaginn 10. janúar við afhendingu menningarviðurkenninga RÚV. Í þættinum er skoðað hvaðan þessi orð koma og hvað þau merkja....more29minPlay
December 29, 2019Vökustaurar, fátækraþurrkur, jólagjafir og áramótÍ þættinum er meðal annars fjallað um síðustu vikuna fyrir jól, sem nefnd hefur verið augnvika, staurvika eða vitlausa vika. Þá er sagt að fólk hafi notað svonefnda vökustaura eða augnteprur til að halda sér vakandi og halda augunum opnum til að ljúka jólaundirbúningnum. Jólagjafir eins og stressskynjarar, fótanuddtæki og sjónvarpsleiktæki koma einnig við sögu, sem og orðin jólaær og fátækraþurrkur....more28minPlay
December 22, 2019Veðurviðvaranir og jólasveinarÁrið 2017 tók Veðurstofan upp litakerfi fyrir veðurviðvaranir. Í þættinum er meðal annars skoðað hvað hver litur merkir og hvenær hann er notaður. Nöfn jólasveinanna og merking þeirra koma einnig við sögu, og hver veit nema Grýla gamla rísi upp frá dauðum....more28minPlay
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.