Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Umsjón: Anna Marsbil Clausen Hosted on Acas... more
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.
September 29, 201929.09.2019 - Tala og fleirtölusýkiÞað er margt skemmtilegt og skrítið í málfræðilegri tölu í íslensku og tala og merking eiga ekki alltaf saman. Skæri, buxur og dyr eru fleirtöluorð þrátt fyrir að eiga við um eitt ákveðið fyrirbæri og orð eins og fólk og fé eru bara notuð í eintölu, þrátt fyrir að vísa til fjölda. Sum orð, eins og skap og sköp líta út fyrir að vera eintala og fleirtala sama orðs en eru í raun tvö orð með ólíka merkingu, hvort um sig aðeins til í einni tölu....more30minPlay
September 22, 2019Stafsetning og zetaStafsetning er skipulag ritmáls - það hvernig við röðum stöfum saman til að tákna orð og setningar. Stafsetning kemur við sögu í öllum málum sem eiga sér ritmál. Á Íslandi er samræmd stafsetning eins og við þekkjum í dag tiltölulega nýtt fyrirbæri, og hún komst ekki á án deilna. Þar tókust á tvær fylkingar, framburðarsinnar og upprunasinnar. Þeir síðarnefndu vildu til dæmis skrifa zetu og deilur urðu á Alþingi á síðari hluta 20. aldar þegar zetan var afnumin úr íslenskri stafsetningu....more30minPlay
September 15, 2019Mál og kynÍ mörgum tungumálum er formdeild sem nefnist kyn. Í íslensku þýðir þetta að nafnorð skiptast í beygingarflokka eftir kyni, og fornöfn og lýsingarorð sambeygjast þeim yfirleitt, út frá kyni en einnig tölu og falli. Í tungumálum heimsins birtist málfræðilegt kyn á afar fjölbreyttan hátt og kynin eru mismörg séu þau á annað borð þáttur í málinu. Ýmsir fræðimenn sem rannsaka kyn í tungumálum skipta þeim í þrjá flokka sem þeir segja að megi skipta nánast öllum tungumálum í: mál með málfræðilegt kyn, mál með svokallað náttúrulegt kyn, og kynlaus mál....more30minPlay
September 08, 2019GullaldartregiÁhyggjur fólks af hnignun tungumálsins hafa verið kallaðar gullaldartregi. Þetta orð hefur einnig verið skilgreint sem það viðhorf að á einhverjum tímapunkti í fortíðinni hafi málið verið fullkomið. Fólki finnst það yfirleitt vera mál kynslóðarinnar á undan, eða þeirrar þarnæstu. Í sögu íslenskrar tungu hefur oftast verið litið á ritunartíma Íslendingasagna sem gullöld íslensku. Þessar áhyggjur koma upp í öllum málsamfélögum og sumir hafa jafnvel áhyggjur af því að þetta endi með því að við eigum samskipti með því að rymja hvert á annað í stað þess að nota orð, en skýrustu merkin um að það eigi aldrei eftir að gerast, eru að þessar áhyggjur hafa verið til staðar öldum saman án þess að nokkuð slíkt hafi gerst....more31minPlay
September 01, 2019SægurSægur er eitt fjölmargra skemmtilegra safnheita í íslensku máli. Í orðabókinni er það skýrt með orðinu mergð, sem er annað gott safnheiti. Bæði orðin merkja fjöldi eða aragrúi. Í þættinum er fjallað um safnheiti í íslensku og líka í ensku, sem býr yfir enn fjölbreyttari safnheitum en íslenska. Einnig eru rifjaðar upp fyrstu tilraunir til að gefa þeim farartækjum íslensk heiti sem nú kallast í daglegu tali bílar. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more33minPlay
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.