Ávarpið

Ávarpið

By Bjarki HjörleifssonSociety & CultureNewsPolitics
Download on the App Store

Ávarpið episodes

  • 15. Guðmundur Ingi Guðbrandsson
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður VG og umhverfis- og auðlindaráðherra, er gestur VG varpsins að þessu sinni. Það er við hæfi því það er flokksráðsfundur um helgina og líkt og hefð er fyrir stýrir varaformaður fundi. Nú þegar langt er liðið á kjörtímabilið vil ég byrja á því að spyrja, hvað stendur upp úr fram til þessa?
    „Í mínum málaflokki finnst mér það klárlega vera sú staðreynd að loftslagsmálunum er nú loksins sinnt af krafti. Við erum byrjuð að sjá árangur í því að draga úr losun samkvæmt bráðabirgðartölum Umhverfisstofnunar og höfum sett fjöldann allan af málum af stað við það að draga enn meira úr losun og mótað okkur skýra stefnu um hvernig við náum kolefnishlutleysi árið 2040. Það hefur verið ráðist í átak í friðlýsingum líka og þar ber helst að nefna Geysir sem er alveg ótrúlegt að hafi ekki verið friðlýstur, Goðafoss og mörg önnur svæði. Svo er það vinnan við Hálendisþjóðgarð. En ég verð líka að fá að nefna aðgerðir varðandi plast og að koma í veg fyrir markaðssetningu á einnota óþarfa plasti sem er í rauninni ekkert annað en óþarfa drasl. En síðan náttúrlega standa upp úr mál eins og endurskoðun á þungunarrofslöggjöfinni, framlenging á fæðingarorlofi í 12 mánuði, þriggja þrepa skattkerfi sem að nýtist best þeim sem mest hafa á milli handanna, réttarbætur fyrir hinsegin fólk, sérstaklega transfólk og svona mætti lengi telja. Hvað varðar heilbrigðiskerfið þá hefur verið dregið úr greiðsluþátttöku sjúklinga, komið á geðheilbrigðisteymum, stórátak í hjúkrunarheimilum – ótrúlega margt að gerast þar líka. Og svo líka bara Covid. Að sjálfssögðu, viðbrögðin við Covid sem mér hafa fundist vera mjög skipulögð og góð, það að stjórnvöld hafi þorað að leyfa vísindamönnum að draga vagninn og taka mark á vísindamönnum og fylgja þeim og ég held að það sé að skila okkur árangri. Vonandi náum við að halda þessum árangri þangað til að það er búið að bólusetja nógu marga til þess að þessi vá sé farin úr okkar samfélagi.“
    Frumvarp um Hálendisþjóðgarð hefur verið lagt fyrir Alþingi og mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning málsins.
    „Já það mál hefur verið í undirbúningi í mínu ráðuneyti í bráðum 5 ár en mikill kraftur hefur verið settur í það á þessu kjörtímabili. Við erum búin að leggja fram á þinginu frumvarp og þar erum við auðvitað að horfa til þess að ná vernda fyrir komandi kynslóðir stærstu víðerni Evrópu, ómetanlega náttúru sem er erfitt að finna á þó ekki stærra svæði jafn mikinn fjölbreytileika og andstæður í landslagi, jarðmyndunum og gróðurfari, þannig að þetta er alveg einstakt tækifæri fyrir okkur, þetta er líka tækifæri fyrir byggðirnar, því að hugmyndin er að byggja gestastofur á láglendi, hringinn í kringum garðinn sem að eflir ferðaþjónustu og skapar líka opinber störf heima í héraði. Svo er þetta líka svo mikið ímyndarmál fyrir Ísland, að vera með stærsta þjóðgarð í Evrópu er aðdráttarafl hvort sem að fólk endar á því að fara þangað, upp á hálendið, eða ekki þannig að ég held að þetta skipti líka miklu máli fyrir ferðaþjónustuna þegar hún þarf að rífa sig upp úr Covid-faraldrinum.“
    En hvað hefur komið Mumma mest á óvart við pólitíkina?
    „Ég er kannski heppinn, ég er nú stofnfélagi í VG, gekk til liðs við VG út af umhverfis- og náttúruverndarmálum. Ég starfaði sem kosningastjóri í gamladaga þannig að ég kynntist þessu aðeins þegar ég var aðeins yngri og ég held að maður búi alltaf að því. Maður veit að það eru skin og skúrir í pólitíkinni, en ég veit það ekki, hvað hefur komið mest  á óvart, kannski fyrst og fremst eitthvað sem hefur komið manni ánægjulega á óvart – auðvitað getur alveg verið erfitt að sitja undir mikilli gagnrýni og svo framvegis það er bara mannlegt en það styrkir mann líka og það að finna fyrir stuðningi flokksfélaga en líka fólks sem er einhversstaðar allt annarsstaðar í pólitík heldur en maður sjálfur og það er eitthvað sem ég finn svo mikið fyrir í mínum málaflokki er að svona almennur stuðningur við náttúruvernd og við loftlagsmál hefur aukist svo gríðarlega miki
    7 min
  • 14. Líf Magneudóttir
    Líf Magneudóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Vinstri grænna í Reykjavík er viðmælandi 14. VG-varpsins. Bjarki Hjörleifsson settist niður með Líf í gegnum fjarfundarbúnað og tók fyrsta fjar-varp Vinstri grænna.
    13 min
  • 12. Sigrún Birna Steinarsdóttir
    Sigrún Birna Steinarsdóttir, er nýr formaður Ungra vinstri grænna, kosin á landsfundi UVG um síðustu helgi og tekur við af Hreindísi Ylvu Garðarsdóttur Holm. Sigrún Birna er nánast jafngömul VG og segja má að hún hafi fæðst inn í hreyfinguna, því hún var smábarn þegar hún fékk eldheitan áhuga á starfi Vinstri grænna.  Þá átti hún heima á Akureyrir og hún og pabbi hennar sóttu fundi með Steingrími J. .  „Hann var idolið mitt og það sem var sagt var um jöfnuð og náttúruvernd var svo rétt,“  segir Sigrún Birna.  Eins og sjá má af kjöri helgarinnar hefur áhuginn síst dofnað, nú hellir Sigrún Birna sér út í slaginn af fullum krafti og ætlar að berjast fyrir Hálendisþjóðgarði, loftslagsmálum, jöfnuði, góðri útlendingastefnu og hún ásamt allri UVG stjórninni ætla að beita sér fyrir því að ungt fólk verði ekki skrautmunir á borði stjórnmálanna, heldur alvöru þátttakendur. Reyndar kann hún vel við sig í stjórnmálum dagsins, með móðurhreyfinguna í ríkisstjórn, því nú þegar sé hægt að hafa meiri alvöru áhrif, með góðu samtali sem UVG á við forystu flokksins, þingmenn og stjórn. Innra með Sigrúnu Birnu býr sunnlenskur þingmaður, landfræðingur og náttúruverndarsinni sem langar til þess að búa úti á landi og helst í ríki Vatnajökulsþjóðgarðs í framtíðinni.
    18 min
  • 11. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm
    Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm, lætur af embætti formanns Ungra vinstri grænna á fjarlandsfundi á um helgina. Fundinn átti að halda með stæl norður í Hrísey, en verður svo bara á netinu eins og lífið allt. Hreindís er ánægð með árin sín í forystu UVG og hún er hvergi nærri hætt í pólitík.
    Eftir tvö ár í formennsku telur formaðurinn að  UVG hafi rækt hlutverk sitt sem samviska Vinstri grænna, eins og lítill fugl sem hefur setið á vinstri öxl forystunnar og minnt hana á fyrir hvað VG stendur. Hreindís segir sambandið við stofnanir móðurhreyfingarinnar gott og telur að forysta VG hlusti alltaf á ungliðana.
    UVG hugsar sér stóra hluti í kosningabaráttunni á næsta ári.  Stjórn ungliðahreyfingarinnar er þegar farin að leggja eigin línur fyrir komandi kosningar. Fingraför ungra verða allsstaðar, lofar Hreindís, sem ætlar sjálf að taka þátt í kosningabaráttunni af fullum krafti, bæði með UVG og móðurhreyfingunni enda séu stjórnmál einhverskonar fíkn í hennar huga og engin leið að hætta.
    Nýtt fólk er að gefa kost á sér í stjórn UVG á landsfundinum um helgina, þar lítur út fyrir góða blöndu af reynslu og nýungum. Nýskráningar í Ung vinstri græn, séu heilmargar núna,  þótt móttaka nýrra félaga sé ekki spennandi á covid-tímum. UVG vex fiskur um hrygg úti á landi, nýtt fólk hefur komið til í tengslum við sveitarstjórnir og nú finnst Hreindísi komið að því að UVG fái áheyrnarfulltrúa í sveitarstjórnarráði, en það sé ekki síður mikilvægt en í stjórn og þingflokki.  Hreindís óskar þess að UVG haldi áfram vaxa og dafna sem róttækt afl á öllum tímum.
    16 min
  • 10. Jódís Skúladóttir, oddviti framboðs Vinstri grænna á Austurlandi
    Jódís Skúladóttir, oddviti framboðs Vinstri grænna í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi er viðmælandi 10. VG-varpsins. Berglind Häsler, einn umsjónarmanna VG-varpsins og kosningastjóri eystra, settist niður með Jódísi í Fellabæ á dögunum.
    Jódís er lögfræðingur að mennt og vinnur sem verkefnastjóri hjá Austurbrú. Jódís ólst að mestu upp í Fellabæ og er nú aftur flutt þangað eftir að hafa búið um árabil í höfuðborginni. Hún hefur vakið athygli fyrir baráttu sína fyrir málefnum hinsegin fólks á Austurlandi en hún ásamt fleirum stofnaði samtökin Hinseigin Austurland. Jódís hefur enda mikinn hug á því að berjast fyrir jafnara Austurlandi, hvort sem það er á sviði kvenréttinda, hinsegin fólks, eldri borgara, fólks af erlendum uppruna eða öryrkja. Þá er Jódís mikill umhverfissinni, talar fyrir fjölbreyttu atvinnulífi og blómlegu menningarlífi.
    19 min
  • 9. Kolbeinn Óttarsson Proppé
    Kolbeinn Óttarsson Proppé, varaformaður þingflokks Vinstri grænna gerði athugasemd við ummæli Haraldar Benediktssonar, varaformanns fjárlaganefndar í fjölmiðlum, um mikla möguleika til sparnaðar á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi og að ólíklega yrði aukið í fjárveitingar til spítalans.
    “Það á að vaxa út úr kreppu og huga sð velferð og velsæld en ekki skera sig úr henni,” segir þingmaðurinn sem er ekki í frí frá pólitík þótt hásumar sè.
    Út frá pólitík dagsins og ummælum um efnshagsmál ofl spáir Kolbeinn í stemninguna í samfélaginu, stöðuna í stjórnmálunum, ástandið á ríkisfjarmalunumog covid, nú þegar styttist í að fólk fari að koma aftur til vinnu.
    17 min
  • 8. Svandís Egilsdóttir, formaður svæðisfélags VG á Austurlandi
    Svandís Egilsdóttir, skólastjóri á Seyðisfirði er nýr formaður í nýju svæðisfélagi VG í nýju sveitarfélagi á Austurlandi, þar sem VG býður fram nýjan hreinan VG-lista. Formaðurinn Svandís tekur virkan þátt í kosningabaráttunni með liði sínu í VG-félaginu og hún er sjálf í sjötta sæti framboðslistans. VG hélt fjölmennan fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni VG, í byrjun júlí, en hann sóttu hátt í fimmtíu manns á miðjum sólar- og vinnudegi. Fundasóknin er vonandi til marks um mikinn áhuga fólks á VG bæði í landsmálum og sveitarstjórnarmálum, því þetta er stærsti VG-fundurinn sem haldinn hefur verið frá því kórónuveiran sló út öll venjuleg fundahöld. En Svandís og félagar láta ekki þar við sitja. Virknin í nýja félaginu er mikil og næst á dagskránni er fjallagrasaferð frá Laugarfelli, laugardaginn 18.júlí n.k. Í þessa ferð mætir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og varaformaður VG, svo einnig þar verður um nóg að spjalla. Gangan hefst klukkan 13:00 við gistihúsið að Laugarfelli og kaffi um klukkan 16:00. Hún er öllum opin og hægt verður að fara í laugina líka. Svandís Egilsdóttir og félagar í stjórn hefur margt fleira á prjónunum til að styrkja böndin og efla tengslin í nýja félaginu.
    12 min
  • 7. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG
    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, heimsótti Austurland 1. júlí. Katrín hélt opinn fund á Seyðisfirði og á Djúpavogi, tveimur sveitarfélögum af fjórum sem senn sameinast og að öllum líkindum undir nafninu Múlaþing. Hin tvö eru Borgarfjörður eystri og Fljótsdalshérað.
    Berglind Häsler er umsjónamaður VG-varpsins að þessu sinni. Kosið verður til sveitarstjórnar í nýju sveitarfélgi 19. september og býður VG fram. Berglind ræddi við Katrínu um kosningarnar framundan á leið þeirra frá Seyðisfirði til Djúpavogs.
    13 min
  • 6. Pétur Hrafn Árnason höfundur Hreyfing rauð og græn
    Anna Lísa tók Pétur Hrafn tali og ræddi við hann um hvernig það var að taka að sér þetta verkefni, að rita Sögu VG. Hvernig ritar maður sögu hreyfingar sem hefur verið lítill, áberandi andófsflokkur en einnig sá næststærsti á Alþingi og leiðandi í ríkisstjórn? Voru allir til í að tala við óháðan sagnfræðing?
    17 min

About Ávarpið

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir undir stjórn Bjarka Hjörleifssonar. Aðgengileg og glettin nálgun á alvarleika vinstrisins, þó okkur sé vissulega dauðans alvara.