Ávarpið

Ávarpið

By Bjarki HjörleifssonSociety & CultureNewsPolitics
Download on the App Store

Ávarpið episodes

  • 5. Þóra Elfa Björnsson
    Þóra Elfa er Borgfirðingur, kennari og draumráðningakona. Hún var fyrsta konan til að ljúka sveinsprófi sem setjari og starfað húni við ýmsar prentsmiðjur eftir að hún lauk námi en starfaði lengst af við kennslu í bókiðngreinum við Iðnskólann í Reykjavík frá árinu 1982 – 2008. Í hverjum mánuði yfir vetrartímann undirbýr hópur Eldri vinstri grænna  fjölmennustu fundi sem haldnir eru á vegum hreyfingarinnar. Þar er Þóra Elfa ein af aðalsprautunum í því starfi og mætir með félögum sínum á skrifstofuna og undirbýr póstsendingar til félaga og uppsker yfirleitt marga tugi gesta á menningarsamkomur EVG.
    20 min
  • 4. Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
    Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og frambjóðandi VG í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi er viðmælandi VG-varpsins að þessu sinni. Kjósa átti til sveitarstjórnar í hinu nýju sveitarfélagi í apríl en vegna Covid-19 var þeim frestað til haustins. Berglind Häsler hitti Pétur á Egilsstöðum ræddi kosningarnar framundan, helstu áherslur framboðsins, náttúruvernd, lýðheilsu og mikilvægi opinbers heilbrigðiskerfis.
    25 min
  • 3. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri Grænna
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, er þingflokksformaður Vinstri Grænna á Alþingi og hún er gestur þriðja Hlaðvarps Vinstri grænna vorið 2020.  Að vera þingflokksformaður á covid tímum er stórfurðuleg lífsreynsla og Bjarkey segist vera komin ferköntuð augu eins og tölvuskjái eftir alla fjarfundina. Sjálf var Bjarkey sem sveitarstjórnarmaður í heimabyggð sinni snemma farin að nota fjarfundabúnað meira en flestir.  En óslitið fjarfundalíf, vegna smithættu,  við allt og alla og fólk í næstu húsum er ný reynsla.
    Sem verkstjóri þingflokks fagnar Bjarkey því að eðlilegri tímar færðast nú nær með nýlegri rýmkun á samkomubanni. Þingið er að komast á fullt skrið aftur og þingflokksformaður VG hlakkar mikið til þess að takast á við þau fjölbreytilegu mál sem bíða og fara að krafti inn í þingsumarið, sem hennar vegna má vera bæði langt og óslitið.
    Bjarkey er líka ánægð með að hitta þingflokkinn sinn aftur í raunheimum, þannig er betra að halda hópnum samstilltum, sjá hvernig fólki líður, lesa í líkamstjáningu og halda fólki saman sem heild. Stóran hluta af tjáningu vantar þegar fólk horfir í tölvuskjá.
    Bjarkey segir að brýnt sé að koma í gegn stórum málum ríkisstjórnarinnar, eins og Miðhálendisþjóðgarði og fleiri málum umhverfisráðherra fyrir kosningar. Öll mál ráðherra Vinstri grænna í ríkisstjórn þyrftu að ná í gegn fyrir kosningar. Á þessum tímum sé mikilvægt að VG sé við stjórnvölinn til að verja velferðarkerfið okkar og innviði samfélagsins. VG eigi margt ógert í ríkisstjórn og við það muni komandi kosningabarátta 2021 miðast.
    23 min
  • 1. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
    Almannavarnaástand er ekki pólitísk ástand
    Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, er fyrsti gestur VG-varpsins. Svandís fer yfir atburðarásina sem fór af stað þegar ljóst var afleiðingar Covid-19 faraldursins yrðu alvarlegri en talið var í fyrstu. Viðbrögð stjórnvalda hér á landi hafa vakið mikla athygli á heimsvísu og ekki síst fyrir þær sakir að hér var ákveðið strax í upphafi að hlusta og fara eftir faglegum leiðbeiningum. Víðast hvar annarsstaðar hafa stjórnmálamenn átt sviðið og sú leið hugnast Svandísi ekki. Hún segir almannavarnaástand ekki pólitísk ástand, þó svo að vissulega beri hún, sem ráðherra heilbrigðismála, ábyrgð á þeim ákvörðunum sem séu teknar.
    Þetta er fyrsti hlaðvarpsþáttur VG. Markmiðið með VG-varpinu er að hefja sig upp fyrir umræðu líðandi stundar og ræða frekar stóru myndina, hvert við viljum stefna. Berglind Häsler, Björg Eva Erlendssdóttir og Anna Lísa Björnsdóttir eru umsjónamenn þáttanna.
    20 min

About Ávarpið

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir undir stjórn Bjarka Hjörleifssonar. Aðgengileg og glettin nálgun á alvarleika vinstrisins, þó okkur sé vissulega dauðans alvara.