Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
    Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins.
    Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá.
    Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse.
    Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.
    55 min
  • Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd
    Hverfa heitir nýjasta ljóðabók Melkorku Ólafsdóttur sem hefur jöfnum höndum gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum. Síðasta ljóðabók Flagsól var heldur ekki aðeins merkt Melkorku því hún var unnin í samstarfi við myndhöfundinn Hlíf Unu Bárudóttur. En nú stendur Melkorka ljóðskáldið ein frammi fyrir öllu. Viðfangsefni bókarinnar eru djúp og breið, allt frá minnstu einingum og lífverum yfir í plánetur sólkerfisins. Hverfa er um kerfin allt í kringum okkur, hún eru hið lífræna efni, eðlisfræðilögmál og fegurðina í hinu óræða; undrin í því sem við sjáum og heyrum alla daga en „dvelur í þögninni milli vélrænna hendinga samtímans,“ eins og segir í kápulýsingu bókarinnar.
    Óskar Árni Óskarsson var að senda frá sér úrval myndljóða en á ferlinum hefur myndljóðið átt stóran sess hjá skáldinu. Bókin heitir Þrjátíu og sjö skáld í mynd og kom út hjá Dimmu nýlega. Þar eru skáld, innlend og erlend í fókus. Óskar steig fram sem fullskapað myndljóðskáld árið 1997 í sérriti Bjarts og frú Emelíu: tímariti um bókmenntir og leiklist sem kallaðist Án orða. Þar mátti sjá afrakstur af frumlegri notkunar Óskars á ritvélinni þar sem kommur verða rigning, bíl verður til með þremur bókstöfum, lítið j verður hafmeyja og lítið i er sjálfur maðurinn.
    Viðmælendur: Melkorka Ólafsdóttir og Óskar Árni Óskarsson.
    Tónlist: Bragur - Tu Ha? Tu Bjö! / Frailed - Flea
    52 min
  • Anne Carson og Max Porter
    Kanadíska skáldið og fræðikonan Anne Carson er handhafi bókemenntaverðlauna Nóbels í ár. Hún er skáldlegur fræðimaður og fræðilegt skáld, verk hennar eru oft á mörkum listgreina og forma - hún vinnur í samstarfi við ýmsa listamenn úr ólíkum greinar og úr verður landamæralaus list. Ljóðin hennar eru að mörgu leyti krefjandi en ótrúlega hrífandi. Carson hefur sterk tengsl við Ísland og listlífið hér. Bókabúðin Garg við Hofsvallagötu væri ekki til ef ekki væri fyrir Anne Carson og Helga Dögg Ólafsdóttir eigandi búðarinnar segir frá því. En við fáum líka innsýn í fræðahlið Carsons og Þorsteinn Vilhjálmsson fornfræðingur veitir hana.
    Og við förum og hittum Max Porter, einn athyglisverðasta höfund breskra samtímabókmennta. Porter var staddur hér á landi og var haldinn viðburður í Tjarnarbíói um helgina þar sem Porter flutti eitt af verkum sínum, Allan þennan óraunverulega tíma og sat svo fyrir svörum eftir á. Við ræðum við Max Porter í lok þáttar um bókmenntir sem mælt mál, um list sem sameiningarafl og hlutverk þýðinga og margt fleira.
    Viðmælendur: Helga Dögg Ólafsdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Max Porter.
    Tónlist: Salt & Vinegar - Magnús Jóhann og Skúli Sverrisson.
    54 min
  • Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription
    Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem spegla sálarlíf mannsins, sem er í stöðugri leit að hlutverki hér og getur ýmist verið tortímingarafl eða bjargvættur á þessu stóra búsvæði, jörðinni undir honum.
    Á bjargi byggði hygginn maður hús, segir í textanum. Húsið – hlýskeið heitir nýjasta bók Hjálmars Sveinssonar þar sem allt hverfist um gamalt timburhús á Skólavörðuholti. Sögumaðurinn er í stórframkvæmdum, verið er að byggja heila hæð ofan á húsið og í þeim miðjum fer hann að grúska um fyrrum íbúa og óhugnanlega sögu þeirra. En frásögnin þysjar líka rækilega út; Hvað er hús? Hvernig myndaðist húsgrunnurinn í jarðsögulegu ljósi? Hjálmar Sveinsson kemur í hús á eftir og segir betur frá.
    Skáldsagan Transcription eftir bandaríska rithöfundinn og ljóðskáldið Ben Lerner hefur vakið mikla athygli vestanhafs frá því að hún kom út í sumar. Bókin hefst á óhappi sögumanns þegar hann ætlar að hitta gamlan háskólakennara sinn og læriföður til að taka við hann eitt lokaviðtal en lendir í því að snjallsíminn, hans eina tæki til að taka viðtalið upp, fer bókstaflega í vaskinn og eyðileggst. Með dauðan síma þykist hann taka upp samræðu tveggja manna. Ef viðtal er tekið í skóginum og enginn heyrir það – gerðist það þá? Út frá þessu fer frásögnin í óvæntar áttir og spyr flókinna spurninga um samband mannsins við tæknina, sagnahefð mannsins, minnið og sannleikann. Alma Mjöll Ólafsdóttir kemur og ræðir verkið.
    Viðmælendur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Hjálmar Sveinsson og Kari Ósk Grétudóttir.
    Lesarar: Kari Ósk Grétudóttir og Bergsteinn Sigurðsson.
    Tónlist: Alles - Einstürzende Neubauten, City Music - Kevin Morby, No Words - The Smile.
    53 min
  • Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan
    Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins.
    Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-fiction bókum þar sem aðdáendur teygja sögusvið bókar með eigin skrifum. Sagan er endursögð með nýju sjónarhorni. Einhver gæti sagt að öll sagnagerð sé endurvinnsla, allt er remix. Endurunnar sögur geta minnt okkur á eitthvað mikilvægt í bókum og sett þær í nýtt samhengi. Ein slík fylgiskáldsaga kom út fyrir skemmstu á íslensku, Júlía eftir bandaríska rithöfundinn Söndru Newman, og er endursögn á 1984 Orwells. Við rýnum aðeins í hana í þættinum.
    Viðmælendur: Björn Halldórsson
    Lesarar: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, Pétur Eggersson og Halla Harðardóttir.
    Tónlist: Strangers - The Kinks, Julia - Eurythmics, A little closer - Skúli Sverrisson, Nocture no. 20 - Michael Kolk.
    54 min
  • Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?
    Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og þar með prentöldin og jafnvel ritmálið eins og það leggur sig. En á sama tíma eru bækur sexí, að lesa er hot, bókaklúbbar eru á hverju strái – það eru allir að bookmaxxa og skrolla booktok og bookstagram. Hvað er rétt í þessu? Við ræðum við Maríu Elísabetu Bragadóttur rithöfund um hvað sé á seyði.
    Ljóðabókin Antithesis er fyrsta ljóðabók Jovönu Pavlović sem hefur hingað til kveðið sér hljóðs á fræðasviðinu. Hún skrifar beinskeytta bók um sjálfið og samfélagið, um heimsvaldastefnu, hvítan femínisma og okkur og hina. Hvernig er hægt að færa gagnrýna hugsun sem finna má í fræðigreinum yfir í ljóð?
    Þegar pólski nóbelshöfundurinn Olga Tokarczuk kom hingað til lands fyrir skemmstu til að taka á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness í Norræna húsinu nefndi hún tvo höfunda sem eru meðal þeirra allra stærstu í heimi vísindaskáldsagna á 20. öld, Stanislaw Lem, landa Olgu frá Póllandi, og hins vegar hinn ameríska Philip K. Dick. Hvað sér hún í þeim og af hverju fóru þeir í hár saman í kalda stríðinu?
    Viðmælendur: Jovana Pavlović og María Elísabet Bragadóttir.
    Lesari: Brynhildur Björnsdóttir.
    Tónlist: Bubbi - Ég elska bækur, David Bowie - I can't read og Aphex Twin - T69 Collapse.
    53 min
  • Tove Jansson segir skilið við Múmíndal og margverðlaunuð Olga Tokarczuk
    „Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum.
    Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Ewa Marcinek, kemur og ræðir við mig um Olgu Tokarczuk, bókmenntir og Pólland.
    Viðmælendur: Ewa Marcinek og Gerður Kristný.
    Lesari: Guðrún Gunnarsdóttir
    Tónlist: Etiovalssi - Jimi Tenor og Blood in the Labyrinth - Boards of Canada
    51 min
  • Prumphænsnin eru víða: The Catcher in the Rye 75 ára
    Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt að því samsæriskenningar. Í heimalandinu Bandaríkjunum hefur bókin sums staðar verið blátt áfram bönnuð. Þetta uppsafnaða umtal hefur gert það að verkum að viðtökusaga bókarinnar er einn þyngsti hluti hennar sem litar afstöðu allra lesenda og verðandi lesenda. Og það er eins og það sé ekki hægt að ræða hana of mikið.
    Hún fyrst út í hlutum á árunum 1945-1946 en heildarútgáfan kom út hjá Little, Brown and Company sumarið 1951. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og selst ár hvert í um það bil milljón eintökum, sem líklega skýrist af því að hún er víða kennsluefni í ensku, þar á meðal hér á Íslandi. Flosi Ólafsson þýddi verkið árið 1975 og heitir Bjargvætturinn í grasinu.
    Viðmælendur: Hjálmar Sveinsson, Pétur Már Sigurjónsson og nafnlaus ritlistarnemi.
    Leikin er tónlist með Thelonious Monk, Eyþóri Gunnarssyni og brot úr útvarpsþættinum Segið aldrei neinum frá neinu (2009) og upplestri Elíasar Mar á Vögguvísu frá 1974.
    55 min
  • Köngurváfa og Mánahjörð
    Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga báðar fram myndir úr fortíðinni þar sem leitað er í æskuminningarnar og báðar hafa þær að geyma ljóð sem bregða á náttúruna nýrri birtu eða framandgera það sem alla jafna telst hversdagslegt og bæði skáld blanda saman raunsæi og fantasíu. Titlar beggja eru sóttir í fortíð, glataða menningu eða orðaforða sem tengir þær við hið goðsagnakennda. Þetta eru ljóðabækurnar Mánahjörð eftir Kára Tulinius og Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Við ætlum að hitta bæði skáldin í þætti dagsins, heyra ljóð úr bókunum og spjalla um kveðskapinn.
    Viðmælendur: Kári Tulinius og Arndís Þórarinsdóttir.
    50 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og…

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,708 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,568 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners