
Sign up to save your podcasts
Or


Hvers vegna?!... Svona í alvöru.
Það er góð spurning.
Upp kom sú áskorun í miðjum Gladiator II þætti að þyrfti að taka fyrir hina alræmdu og vægast sagt umdeildu kvikmynd, Saló o los 120 días de Sodoma.
Sökum þess hversu mikil áskorun þykir að þrauka gegnum þá ógeðfelldu mynd, var eflt til enn stærri áskorunar að para þessa þjáningarperlu við ruslmynd um krútthvolpa í geimnum. Hvor er átakanlegri til áhorfs
Hver veit, kannski eiga Saló og Space Buddies eitthvað meira sameiginlegt en fyrst ber að geta…
Kjartan hafði vit fyrir því að vera fjarri þessum viðbjóði en auk Tómasar eru nú við mækana þau Íris Árnadóttir, Friðrik Önfjörð og Atli Sigurjónsson.
Setjið ykkur í stellingar… og hjálpi okkur öllum.
Efnisyfirlit:
00:00 - Af hverju?
01:50 - Space Buddies…
29:13 - Bíddu, ha??...
31:01 - Saló
50:25 - Vítahringurinn
01:14:09 - Skítahringurinn
01:23:42 - Blóðhringurinn
01:39:50 - “Rosalegur stemmari”
01:42:35 - Hvað segja bændur?
Heilagur draugur Maximusar! Það er komið framhald af stórmyndinni og jafnvel Óskarsmyndinni Gladiator frá árinu 2000. Lengi vel hefur verið hvíslað um að vaða í framlenginguna en Ridley Scott stóðst á endanum ekki freistinguna og tjaldar heilmiklu til með Gladiator II.
Bíófíklarnir Kjartan og Tómas fengu til sín Atla Sigurjónsson kvikmyndagerðarmann til að ræða fyrri myndina, seinni myndina, nashyrninga, hákarla, ruglið í Rómarborg á tímum þessum og að sjálfsögðu... Saló (?!).
Jafnvel Space Buddies…
Ykkur skal vera skemmt!
Efnisyfirlit:
00:00 - Ridley Scott filmógrafían
13:50 - Tengsl allra við Gladiator
20:31 - Þá er það Gladiator II
24:11 - Deilt um Denzel
30:01 - Aðeins um hákarlana
32:20 - Kjartan rýkur beint í spoilerana!
36:00 - Dondus og skúrkarnir
42:06 - “Við þurftum þess ekki neitt”
46:50 - Róm í ruglinu
50:12 - Saló eða Space Buddies?
52:33 - Aftur að Scott…
58:52 - Harrison og nashyrningurinn
Hvenær er rétti aldurinn til að horfa á þessa andsettu stórsnilld og andstyggilega frábæru klassík? Kjartan hefur allavega náð þeim aldri þar sem hann hafði aldrei horft á The Exorcist, fyrr en á dögunum. Rétt fyrir tökur...
Friðrik Önfjörð lagði Kjartani þá heimavinnu að kynna sér þessa kvikmynd með ferskum augum og þeir Tommi veita hafsjó af fróðleik um þessa tímamótakvikmynd frá William Friedkin og félögum.
Efnisyfirlit:
00:00 - Lítið land minnkaði meira
05:06 - Hvar á að byrja?
08:20 - Jæja…(spoilerar héðan í frá…)
12:30 - Allegoríur og úrslitakostir
14:90 - Slys og bölvanir á settinu
26:26 - Faðir-fokkin’ Merrin
31:39 - Bíónördisminn allur
38:40 - Mæðgnasamband í rústum
44:16 - “Hvora áttina ferðu í?”
48:20 - Dauðahótanir ofl.
53:20 - Rétti aldurinn í myndina?
01:01:02 - Nýjasta myndin
01:12:12 - Aftur að Merrin…
01:20:40 - Samantekt
Ævar Þór Benediktsson hefur alltaf haft sérstakan stað í nördahjarta sínu fyrir Litlu hryllingsbúðinni. Ævar er nýjasti gestur Bíófíkla en þeir Tómas fara grannt í gegnum Auði tvö og hennar ævintýri í kvikmynd sem að mati gests eldist hreint fullkomlega.
Þá fara þeir líka út í alls konar nostalgíu, íslenskar talsetningar, furðuleg samningsmál og hvað það var sem kom Ævari á þá leið sem hann er á í dag.
Setjið á ykkur sönghattana, þetta verður stuð!
Efnisyfirlit
00:00 - Bíóuppeldi í sveit
02:50 - Ein best talsetta Disney-myndin
05:12 - Söfnunarárátta í gegnum árin
10:08 - Raddsetningaraunir
23:23 - Hlutverk af öllum toga
30:30 - Þið kannist við…
34:37 - Litla hryllingsbúðin, með spoilerum!
1:06:04 - Hvað er á döfinni hjá Ævari?
Jordan Peele setti veröldina á hliðina með fyrstu kvikmynd sinni, Get Out, og réttilega svo, enda splunkuný hlið á grínaranum góða sem lengi var kenndur við dúóið Key & Peele. Engu er heldur tilsparað með stór eða hlaðin málefni, og Peele tekst á við drungalega undir- og yfirtóna rasisma með gómsætum hætti.
Það er svo margt og mikið til að ræða við þessa óvenjulegu hrollvekju þar sem þó er sjaldan stutt i grínið.
Friðrik Önfjörð hryllingsséní er sestur aftur við míkrafóninn hjá Bíófiklum og leiðir þá jafnt og hlustendum í gegnum sína fyrstu upplifun á þessum stórsmelli Peels sem skaut honum lengst upp virðingarstigann á heimsvísu.
Best að sökkva sér í þetta. Nú er það svart...Efnisyfirlit:
00:00 - RÚV þýðingar
03:55 - Af hverju Get Out?
10:02 - Allt er óþægilegt
14:15 - Spoiler-umræða héðan í frá!
20:05 - Dáleiðandi effektar
31:51 - Mismunandi endar
40:01 - Upphaf speglar lokasprett
55:11 - Samantekt
Íris Árnadóttir, hryllingsnörd og söngnemi, er sest í stúdíóið með Kjartani og Tómasi til að ræða um og rýna í eina umtöluðustu (og að mati margra ógeðfelldustu) kvikmynd ársins.
Demi Moore og Margaret Qualley sýna báðar nýjar, beittari og djarfari hliðar á sér í stálhressum body-horror um útlitsdýrkun, frægð, einkennilega líkamsrækt og subbulega karlmenn. Þessi vægast sagt villta útrásarmynd eftir Coralie Fargeat hefur einfalda hugmynd sem skipar sér í margar svipmyndir og nú er komið að því að skoða hvað hérna er í boði.
Spennið beltin, spælið eggin og sperrið upp eyrun. Hljóð er sögu fríkaðri.
Efnisyfirlit:
00:00 - Yfirlið eða ekki yfirlið
04:40 - Spegill, spegill
14:50 - Reglur í hryllingsmyndum
19:21 - Miðað við Martyrs
27:28 - Monstro Spoiler-umræða héðan í frá!
33:30 - Elisabeth + Sue
39:20 - Fíkn sjálfsins
46:40 - Sjálfhverfa og “skrímsli”
54:04 - Viðbrögð fólks
01:11:09 - Myndlíkingar
01:27:25 - Eymd frægðarinnar
01:41:40 - Hönnunin öll
01:50:33 - Samantekt
02:00:16 - Karlmennirnir og sýningin mikla
Októbermánuður er tími drungalegra bíómynda eða hryllings af hvaða tegundar sem er og partímyndin From Dusk till Dawn er fínasta tilefni til Hrekkjavökugláps. Þessi subbulegi en eiturhressi bræðingur frá þeim Robert Rodriguez og Quentin Tarantino hefur einkennilegan strúktúr og Kjartan fékk verulega að kynnast því þegar hann horfði á myndina í fyrsta skiptið.
Það sama á við um okkar gest að sinni, en horror-unnandinn Friðrik Önfjörð er sestur í stúdíóið til að ræða ómælanlegu ást sína á myndinni.
Efnisyfirlit:
00:00 - Hryllingsmyndir í október
08:29 - Kjartan um myndina
27:24 - Öfug upplifun Friðriks
38:25 - Tommi lofar partípakka
49:51 - Samantekt
Fílar þú Tarantino-myndir með hnífbeittum viðsnúningi?
Þá eru býsna góðar líkur að Strange Darling haldi þér við sætið þitt. Verst er þó að erfitt er að tala um myndina án þess að kafa dýpra í hana og spilla fyrir, en bíófíklarnir Kjartan og Bríet Birgisdóttir hvetja hlustendur að kíkja á Strange Darling sem allra fyrst - og vera síðan með í umræðunni.
Stuð skal það vera!
Efnisyfirlit:
00:00 - Án félagsskaps í bíó
04:47 - Strange Darling, án spoilera
07:50 - Spoiler-umræða
Bíófíklar hefja göngu sína með sprelli og þeir Kjartan og Tómas skelltu sér á eina umtöluðustu og án efa umdeildustu stórmynd þessa árs, Joker: Folie à Deux!
Eftir miklar vinsældir fyrri myndarinnar er aldeilis öllu tjaldað til í framhaldinu og meira að segja hefur hin ofurhæfileikaríka Lady Gaga bæst við leikhópinn til að deila sviðinu með Joaquin (e. ‘Wah-keen’) Phoenix.
Þá rifja Bíófíklar einnig upp fyrri myndina og eru ekki yfir það hafnir að detta í útúrdúra með hressilegum reynslusögum úr bíói - eða réttar sagt sögur af ósiðum í kvikmyndahúsum.
Efnisyfirlit:
00:00 - Málning að þorna, í mynd!
07:43 - Double feature sýningar
12:10 - Joker
39:20 - Joker: Folie à Deux - Án spoilera
55:11 - Spoiler-umræður
From the publisher's feed