Jóns

Bjarki í Reykjavik Foto


Listen Later

Bjarki Reynisson í Reykjavík Foto segir okkur sögu Reykjavík Foto frá stofnum til dagsins í dag. Hann lýsir draumi sínum um að vera „one stop shop“ fyrir ljósmyndara og kvikmyndagerðarfólk og hvernig hann leggur áherslu á að mæta þörfum allra viðskiptavina jafnt, með góðri þjónustu, trausti og góðu orðspori. Hann deilir einnig reynslu sinni af heimsóknum til framleiðenda og þátttöku á sýningum til að halda sér up-to-date í tækni og vörum.
Markmiðið með versluninni var að skapa „one stop shop“ fyrir ljósmyndara og kvikmyndagerðarfólk þar sem hægt væri að finna allt frá einfaldari myndavélum til dýrari og sérhæfðari búnaðar, eins og RED kvikmyndavéla.
Hjá Reykjavík Foto eiga bæði áhugamenn og atvinnumenn að fá góða þjónustu og gott vöruúrval. Bjarki leggur áherslu á að allir viðskiptavinir séu jafn mikilvægir og að þjónustan sé persónuleg og góð, með því að mæta þörfum hvers og eins.
Bjarki telur mikilvægt að bjóða upp á réttan búnað og þjónustu í samræmi við þarfir viðskiptavina, ekki að reyna að selja þeim eitthvað sem þeir þurfa ekki.
Bjarki hefur unnið markvisst að því að byggja upp verslunina og vöruúrvalið og það tekur langan tíma að ná markmiðum sínum. Stærsta markmiðið að vera „one stop shop“ fyrir allt sem tengist ljósmyndun og kvikmyndun, og hann hefur safnað mikilli reynslu og sérþekkingu á vörumerkjum og tækni. Hann telur að viðskiptavinir muni alltaf mæla með versluninni ef þeir fái góða þjónustu og rétta vöru, og að gott orðspor sé besta markaðssetningin.
Bjarki heldur góðu sambandi við helstu vörumerki, til dæmis Leica, sem hann heimsækir árlega í Wetzlar, Þýskalandi. Leica á áhugaverða sögu, hugmyndafræðin byggir á hefð frá stofnanda Leica en hann leyfði viðskiptavinum að gista í höll sinni þegar þeir voru að kaupa Leica-vélar sama hugmynd er við lýði í dag, en nú með stóru hóteli. Gestir geta farið í skoðunarferðir um höfuðstöðvarnar og upplifa hvernig Leica handsmíðar myndavélar enn þann dag í dag. Bjarki lýsir handsmíðinni sem „einu því magnaðasta í smíði sem hann hefur séð“ og „alveg ótrúlegt“.
Bjarki fer einnig á sýningar eins og IFA í Berlín, IBC og BSC, þar sem hann kynnist nýjustu vörunum og þar er möguleiki á að skoða nýjungar í tækni, eins og nýleg LED-ljós frá Aputure. Bjarki heimsækir einnig aðra framleiðendur til að efla tengsl og fá betri innsýn í nýjustu tækni og framleiðslu.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

JónsBy Óli Jóns

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

2 ratings


More shows like Jóns

View all
Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

150 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

25 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

2 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners