Í þessum frábæra jólaþætti spjöllum við um margt skemmtilegt sem tengist bókum og jólum! En auk þess sem þetta er síðasti þátturinn fyrir jól er þetta líka síðasti þátturinn í þáttaröðinni. Þórey og Þorgerður skila jólakveðju til allra hlustenda Bókaklúbbsins og við vonum að allir muni njóta hátíðanna sem best :)
Í þessum átjánda þætti af Bókaklúbbnum fjalla Þórey María og Þorgerður Erla um íslenskar þjóðsögur. Sagt verður frá hinum ýmsu áhugaverðu staðreyndum um þær!
Í þessum dularfulla þætti af Bókaklúbbnum munum við fara yfir dularfullar bóka/handrits ráðgátur sem sérfræðingar eru á fullu að reyna að leysa enn þann dag í dag. Forvitnin er svakaleg og áhuginn svo sannarlega á sínum stað á meðal þáttastjórnenda í þættinum.
Í þessum sextánda þætti af Bókaklúbbnum fá hlustendur að kynnast bókaflokknum um hana Nikký eftir Brynju Sif Skúladóttur. En það eru samtals þrjár bækur í þeim snilldarlega bókaflokki.
Í þessum fimmtánda þætti af Bókaklúbbnum spjalla vinkonurnar um bækur sem hafa verið bannaðar í gegnum tíðina, já þið heyrðuð rétt, BANNAÐAR!!! Þetta er erfitt en þó áhugavert umræðuefni og hvetjum við alla til að hlusta á þennan þátt.
Í þessum fjórtánda þætti af Bókaklúbbnum taka Þórey og Þorgerður gott spjall um ævintýri, hvað þau eru og hverju þau byggjast á. Einnig munu hlustendur fá að vita hver uppáhaldsævintýri vinkvennanna eru og margt fleira.
Í þessum þrettánda þætti af Bókaklúbbnum munu vinkonurnar segja hlustendum 10 staðreyndir um bækur! Þetta eru allt brjálæðislega vel valdnar staðreyndir sem klikka aldrei.
Í þessum ellefta og síðasta þætti í fyrstu þáttaröðinni af Bókaklúbbbum verða TVÆR bókaumræður en einnig munum við fara yfir sigurvegara spurningakeppninnar sem var haldin á instagramminu okkar.
19 min
About Bókaklúbburinn
From the publisher's feed
Bókaklúbburinn er hlaðvarpsþáttaröð í umsjón Þóreyjar Maríu og Þorgerðar Erlu. Í þáttunum er sagt í stuttu máli frá allskonar barna og unglingabókum og rithöfundum þeirra. Vinkonurnar tvær þær Þórey…
og Þorgerður hafa mikinn áhuga á lestri, bókum og ýmsu í tengslum við það. Einnig finnst þeim ekkert skemmtilegra en að spjalla um bækur og að geta rökrætt skoðanir sínar og hlusta á annarra skoðanir. Þær taka vel á móti öllum spurningum, hugmyndum og skoðunum hlustenda. Skemmtið ykkur vel við hlustunina!