Í þessum tíunda þætti af Bókaklúbbnum spjöllum við um hina víðfrægu bók: Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason. En þetta er ótrúlega áhugaverð og skemmtileg bók sem við mælum klárlega með fyrir alla!
Í þessum níunda þætti af Bókaklúbbnum munum við fjalla um bókina Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur. En þessi bók vann íslensku barnabókaverðlaunin árið 2007 og mælum við mikið með henni.
Í þessum áttunda þætti af Bókaklúbbnum munum við segja frá gömlum sígildum ævintýrum sem hann H.C. Andersen skrifaði á sínum tíma. Við munum aðallega segja frá Prinsessunni á bauninni og Hans klaufa.
Í þessum sjöunda þætti af Bókaklúbbnum munum við fjalla um hana Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Hún hefur bæði skrifað margar bækur en einnig teiknað í mjög margar.
Í þessum þætti af Bókaklúbbnum fjöllum við um bækurnar hans Gunnars Helgasonar en þá sérstaklega Stellubækurnar. Við munum einnig lesa upp úr einni af fótboltabókunum hans Gunnars: Víti í Vestmannaeyjum.
Í þessum þætti erum við að fjalla um Harry Potter bækurnar sem hafa slegið algjörlega í gegn síðasta áratug. En þær eru eftir hinn snillirithöfund J. K. Rowling.
Í þessum þætti af Bókaklúbbnum skoðum við bækurnar hans Ævars vísindamanns. En hann er mjög þekktur fyrir barnabækurn sínar en einnig hefur hann gert margt fleira en það.
Í þessum þriðja þætti af Bókaklúbbnum spjalla þær Þorgerður Erla og Þórey María um bækurnar hennar Astrid Lindgren. En bækurnar hennar hafa hlotið mikilla vinsælda á meðal barna um allan heim.
Í þessum þætti af Bókaklúbbnum ætlum við að ræða um bækurnar hans David Walliams. Við munum hafa bækurnar Strákurinn í kjólnum og Miðnæturgengið vel í huga í þættinum og jafnvel lesa upp úr þeim.
Í þessum fyrsta þætti af Bókaklúbbnum er kynnt þáttaröðina.
1 min
About Bókaklúbburinn
From the publisher's feed
Bókaklúbburinn er hlaðvarpsþáttaröð í umsjón Þóreyjar Maríu og Þorgerðar Erlu. Í þáttunum er sagt í stuttu máli frá allskonar barna og unglingabókum og rithöfundum þeirra. Vinkonurnar tvær þær Þórey…
og Þorgerður hafa mikinn áhuga á lestri, bókum og ýmsu í tengslum við það. Einnig finnst þeim ekkert skemmtilegra en að spjalla um bækur og að geta rökrætt skoðanir sínar og hlusta á annarra skoðanir. Þær taka vel á móti öllum spurningum, hugmyndum og skoðunum hlustenda. Skemmtið ykkur vel við hlustunina!