Sign up to save your podcasts
Or

Hringbraut 45
Það liggur að miklu leyti beint við að skipuleggja göngu um söguslóðir Braga Ólafssonar því að landafræði er mjög áberandi í bókum hans og þá sérstaklega landafræði Reykjavíkur. Yfirleitt er hægt að rekja sig um bæinn í fylgd sögupersóna hans og sögumanna. Við höfum valið að ganga um Vesturbæinn í þetta sinn en það væri ekki síður hægt að ganga um ýmsar aðrar slóðir. Það er von okkar að bæði gallharðir aðdáendur Braga og nýir lesendur geti haft ánægju af göngunni.
Leiðsögn: Guðrún Lára Pétursdóttir og Kristín Svava Tómasdóttir.
Gangan var tekin upp í Vesturbæ Reykjavíkur haustið 2020 í leiðsögn á vegum Borgarbókasafns Reykjavíkur. Athugið að umhverfishljóð heyrast á stöku stað án þess að það trufli leiðsögnina.
Hagamelur 26

Fálkagata 17

Loftskeytastöðin

Á Austurvelli, fyrir framan Alþingi Íslendinga, má hlusta á Þórarinn Eldjárn lesa upp úr skáldsögu sinni, Brotahöfuð. Bókin, sem er söguleg skáldsaga, kom út hjá Forlaginu árið 1996. Hún var tilnefnd til verðlauna bæði á Íslandi og erlendis og komst meðal annars í sex bóka úrslit evrópsku Aristeion bókmenntaverðlaunanna.
Bókin rekur sögu Guðmundar Andréssonar, íslensks almúgamanns, sem fékk að dúsa í hinu illræmda fangelsi Bláturni í Danmörku fyrir að hafa samið níðrit gegn Stóradómi, óbilgjarnri siðferðislöggjöf sem samþykkt var á 16. öld.
Umsjón með upptökunni hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Við steinyggjuna gömlu má hlusta á upplestur Vilborgar Dagbjartsdóttur á ljóðunum „Kyndilmessa III“, „Vetur“, „Ráðið“ og „Í japönskum þönkum“. Vilborg hefur lengi verið í hópi þekktustu skálda þjóðarinnar. Fyrsta ljóðabók hennar var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum sem skrifuðu atómljóð. Ljóð Vilborgar hafa birst í erlendum safnritum og tímaritum á fjölda tungumála.
Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Við styttu Tómasar Guðmundssonar við Reykjavíkurtjörn má hlusta á Hjalta Rögnvaldsson flytja ljóðin „Hótel jörð“ og „Við Vatnsmýrina“ úr bókinni Fagra veröld, sem kom út í Reykjavík árið 1933.
Íslensk skáld byrjuðu seint að nýta sér borgina sem yrkisefni, en Tómas var á meðal þeirra fyrstu sem tóku skrefið og hefur því löngum borið titilinn „borgarskáldið“. Stytta hans hér við Tjörnina var afhjúpuð 2. desember 2010. Höfundur hennar er myndhöggvarinn Halla Gunnarsdóttir.
Lestur: Hjalti Rögnvaldsson
Við sjávarsíðuna á Sæbrautinni les Sigurbjörg Þrastardóttir ljóð sitt „Skipaskagi“ og brot úr smásögunni „Sveigðir hálsar“. Þar er sagt frá því þegar gíraffahjörð gerir sig heimankomna í borginni með ófyrirséðum áhrifum á menningarlíf borgarinnar og heilsu íbúa hennar.
Smásagan hefur ekki birst á bók en ljóðið er úr bókinni Hnattflug (JPV útgáfa, 2000).
Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Í Nauthólsvík, nærri verki Helgu Guðrúnar Helgadóttur, „Sólstólar“ í Nauthólsvík les Kristín Ómarsdóttir ljóð sitt „Íslensk ættjarðarljóð“, úr bókinni Sjáðu fegurð þína (Uppheimar, 2008).
Kristín Ómarsdóttir (f. 1962) skrifar skáldsögur, smásögur, ljóð og leikrit og verk hennar eru oft bæði ljóðræn og fantasíukennd. Kristín er meðal okkar eftirtektarverðustu höfunda og hefur hún hlotið ýmsar viðurkenningar, svo sem Grímuna og Menningarverðlaun DV.
Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Í Hljómskálagarðinum við styttu Einars Jónssonar af skáldinu Jónasi Hallgrímssyni (1807-1845) flytur Hjalti Rögnvaldsson ljóðið Ferðalok eftir Jónas. Ljóðið er ort á árunum 1844-45 og birtist fyrst í tímaritinu Fjölni árið 1845.
Styttan af skáldinu var afhjúpuð árið 1907, á hundrað ára afmæli skáldsins. Hún stóð upphaflega á horni Amtmannsstígs og Lækjargötu en var færð hingað í Hljómskálagarðinn árið 1947. Jónas, sem oft er nefndur ástmögur þjóðarinnar, var skáld og náttúrufræðingur og einnig ötull þýðandi og orðasmiður. Fæðingardagur hans, 16. nóvember, hefur verið haldinn hátíðlegur sem dagur íslenskrar tungu frá árinu 1995.
Lestur: Hjalti Rögnvaldsson
From the publisher's feed