
Sign up to save your podcasts
Or


Þann 19. júní 2015, á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi, setti Bókmenntaborgin upp tvo skáldabekki til heiðurs íslenskum skáldkonum. Annar þeirra stendur við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg og hinn á Austurvelli.
Gerður Kristný les úr ljóðabók sinni Blóðhófnir. Mál og menning, 2010
Á Skólavörðuholti er lesið upp úr Svartfugli, sögulegri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar. Sögusviðið er Ísland við upphaf 19. aldar og byggir sagan á morðunum á Sjöundá, einu frægasta morðmáli Íslandssögunnar þar sem Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveinsdóttir voru fundin sek um glæpinn. Steinunn var dysjuð á Skólavörðuholti eftir að hún lést í fangelsi (nú Stjórnarráðshúsið) árið 1805. Ummerki um „Steinkudys“ sáust allt fram á 20. öld, þar til grjótnám hófst á holtinu vegna framkvæmda við Reykjavíkurhöfn.
Lestur: Hjalti Rögnvaldsson
Við Höfða má hlusta á upplestur Hjalta Rögnvaldssonar leikara á ljóðum eftir Einar Benediktsson. Skáldið Einar Benediktsson (1864 – 1940) var lögfræðingur að mennt og mikill athafnamaður. Skáldskapur hans birtist í fimm bókum: Sögur og kvæði (1897), Hafblik (1906), Hrannir (1913), Vogar (1921) og Hvammar (1930). Hér eru ljóðin „Brim“, úr Hafbliki, og „Norðurljós“ úr Sögum og kvæðum lesin upp.
Einar bjó með fjölskyldu sinni í Höfða frá 1914 - 1917 en flutti þá til London. Þótt dvölin hafi ekki verið lengri eru sögur af veru hans í húsinu samofnar sögu þess og ímynd, sérstaklega sögur tengdar meintum reimleika. Þá vilja margir tengja við Einar og atburði úr fortíð hans, en haft var fyrir satt að honum fylgdi vera sem væri hulin sjónum annarra. Þessi reimleikasaga tengist sakamáli sem Einar réttaði í sem ungur lögfræðingur, en þar er fyrirmynd málsins sem skáldsaga Thors Vilhjálmssonar, Grámosinn glóir, hverfist um.
Þann 31. október árið 1964 var reist og vígð stytta Einars Benediktssonar á Klambratúni. Höfundur styttunnar er Ásmundur Sveinsson. Árið 2015 var höggmyndin flutt að Höfða.
Lestur: Hjalti Rögnvaldsson
Við vesturbakka Reykjavíkutjarnar, les Bragi Ólafsson sögu sína „Herbergið mitt“ úr bókinni Við hinir einkennisklæddu (Bjartur, 2003). Bókin hefur að geyma æviminningar höfundarins, raunverulegar og ímyndaðar.
Bragi skrifar jöfnum höndum skáldsögur, leikrit, ljóð og smásögur.
Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Á Klambratúni, í grennd við brjóstmynd Þorsteins Erlingssonar (1858-1914), er lesið ljóð hans „Sólskríkjan“.
Fyrstu ljóð Þorsteins voru hefðbundin að stíl, rómantísk í anda og endurspegluðu náttúruást og aðdáun á þjóðlegum hefðum. Eftir námsdvöl í Kaupmannahöfn árin 1883-1896, þar sem Þorsteinn kynntist jafnaðarstefnunni, tók hann síðan að gagnrýna íslenskt þjóðfélag og ríkjandi hefðir í kvæðum sínum. Í „Sólskríkjunni“ má heyra þessar hliðar skáldsins togast á.
Brjóstmyndin, eftir myndhöggvarann Ríkarð Jónsson, var afhjúpuð á Klambratúni 3. júní 1972.
Lestur: María Þórðardóttir
Við austurbakka Tjarnarinnar er lesið úr smásögunni „Endurkoma“ úr bókinni Undir eldfjalli (Forlagið, 1989) eftir Svövu Jakobsdóttur (1930-2004), einn fremsta rithöfund Íslendinga.
Sagan segir frá miðaldra konu sem snýr aftur til Íslands, eftir langa búsetu í Bandaríkjunum. Bandarískur eiginmaður hennar er með í för og óþægilegar minningar frá ástandsárunum láta á sér kræla. Miðbæjarskólinn hér handan við götuna kemur meðal annars við sögu. Fyrsta bók Svövu var smásagnasafnið Tólf konur sem kom út árið 1965 en hún skrifaði smásögur, skáldsögur og leikrit, bæði fyrir svið og ljósvakamiðla. Hún skrifaði enn fremur fjölda ritgerða og blaðagreina og gerði þætti fyrir útvarp. Verk hennar hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál og hafa leikrit hennar einnig verið flutt víða erlendis.
Lestur: María Þórðardóttir
Óskar Árni Óskarsson les ljóð og smáprósa við Ægissíðuna. Í verkum hans er gjarnan brugðið ljósi á hið kynlega í hversdagslegum fyrirbærum. Óskar Árni hefur einkum fengist við smáprósa, ljóðagerð og ljóðaþýðingar.
Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Auður Ava Ólafsdóttir kafla úr skáldsögu sinni Afleggjarinn (Reykjavík: Bjartur, 2007) við tjörnina í Grasagarðinum.
Bókin er margverðlaunuð, meðal annars hlaut hún Menningarverðlaun DV í bókmenntum, Fjöruverðlaunin og hin frönsku Prix de Page. Afleggjarinn segir af rósaunnandanum Lobba, ungum manni sem leggur í ferðalag til meginlands Evrópu til að koma aftur í samt lag vanhirtum rósagarði í klaustri á ónefndum stað. Þegar í klaustrið er komið þarf Lobbi að takast á við framandi aðstæður…og óvænt föðurhlutverk.
Umsjón með upptökunni hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð
Velkomin til Ásgarðs! Hér búa fræknar hetjur, goð, garpar og gyðjur. Og auðvitað Sleipnir. Sleipnir er öðruvísi en aðrir hestar og honum finnst það pínu leiðinlegt. Hann vill helst af öllu falla í hópinn og vera eins og hin hrossin, en þegar hestur er með átta fætur er það dálítið erfitt.
Þegar Sleipnir kynnist Miðgarðsbarninu Emblu, sem er nýflutt í Ásgarð, breytist allt. Hún býður Sleipni með sér í ævintýraferð þar sem hann kemst að því að hann er ekki sá eini í fjölskyldunni sem er öðruvísi. Hann á þrjú systkini! Og ekki nóg með það; þau eru ölll hræðilegt skrímsli. Að sjálfsögðu vilja þau Embla rannsaka þetta stórhættulega fjölskyldutré betur.
Þetta er saga um tvílita stelpu, ógnvekjandi orm og afar verðmæta hauskúpu. En hver er raunverulegur tilgangur ferðalagsins? Og hvað leynist í risastóra skálanum á bak við Valhöll?
Ævar Þór Benediktsson les eigin sögu.
Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð
Velkomin til Ásgarðs! Hér búa fræknar hetjur, goð, garpar og gyðjur. Og auðvitað Sleipnir. Sleipnir er öðruvísi en aðrir hestar og honum finnst það pínu leiðinlegt. Hann vill helst af öllu falla í hópinn og vera eins og hin hrossin, en þegar hestur er með átta fætur er það dálítið erfitt.
Þegar Sleipnir kynnist Miðgarðsbarninu Emblu, sem er nýflutt í Ásgarð, breytist allt. Hún býður Sleipni með sér í ævintýraferð þar sem hann kemst að því að hann er ekki sá eini í fjölskyldunni sem er öðruvísi. Hann á þrjú systkini! Og ekki nóg með það; þau eru ölll hræðilegt skrímsli. Að sjálfsögðu vilja þau Embla rannsaka þetta stórhættulega fjölskyldutré betur.
Þetta er saga um tvílita stelpu, ógnvekjandi orm og afar verðmæta hauskúpu. En hver er raunverulegur tilgangur ferðalagsins? Og hvað leynist í risastóra skálanum á bak við Valhöll?
Ævar Þór Benediktsson les eigin sögu.
From the publisher's feed