Brestur

Brestur

By Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís OttesenEducation
Download on the App Store

Brestur episodes

  • 24. ADHD og dópamínkrass

    Brestskonur tóku nauðsynlega aktívistapásu í dag þar sem réttlætiskenndin hefur verið á yfirsnúningi síðustu vikur og mánuði.

    Birna og Bryndís bjóða því upp á dópamínskammt með nokkrum góðum nenni mér ekki sögum, léttri tungumálakennslu, gleymdum djammhljóðupptökum og fleira.

    Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠

    1 hr 4 min
  • 23. Listakona með ADHD - Viðtal við Hildi Kristínu Stefánsdóttur

    Hvern gæti grunað að kona sem hefur keppt á heimsmeistaramóti í frjálsum íþróttum, ferðast með rafmagnsselló á síðustu stundu á milli heimsálfa, gefið út sólóplötur, stofnað skapandi skóla, starfað í hljómsveitum og útvarpi og lokið BA gráðu í japönsku gæti verið með ADHD? 

    Söngkonan, lagahöfundurinn og pródúsentinn Hildur Kristín Stefánssdóttir kom í frábært viðtal til Birnu og Bryndísar, en hún hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun ON og Kítón (Félag kvenna í tónlist) fyrir framúrskarandi og brautryðjandi störf sín í tónlist. Hildur segir Brestssystrum frá hvað varð til þess að hún fór í greiningu á fullorðinsaldri, hverjar hennar helstu ADHD áskoranir eru sem skapandi kona í sjálfstæðum rekstri og hvernig hún nýtir ADHD styrkleika sína.  

    Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠

    1 hr 23 min
  • 22. Vanhæfar mæður

    Í 22. þætti Brests ræða Birna og Bryndís áskoranir tengdar foreldrahlutverkinu með ADHD. Þær velta upp hugmyndum um félagslíf barna sinna utan skólatíma, þreytuna á úlfatímanum og skömmina í kringum óskipulag og tilfinningastjórnun. Til að vega upp á móti niðurrifinu ræða þær svo styrkleika ADHD foreldra í uppeldinu.

    Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠

    1 hr 14 min
  • 21. Loddaralíðan og skoskar skásystur

    Loddaralíðan Brestssystra náði nýjum hæðum þegar þær fundu í léttri hlaðvarpsleit skoskar skásystur sínar. Forvitnir hlustendur þurfa ekki að örvænta því Birna og Bryndís áttu ekki erfitt með að ræða þetta nýja hlaðvarp, tilfinningar sínar gagnvart hlaðvarpinu og skásystrum sínum í um það bil 69 mínútur.

    Í þætti dagsins má finna misvandræðaleg nenni mér ekki augnablik, áður óreynd ADHD ráð og einnig er farið ítarlega yfir dagskrá hátíðlegs 30. mars.


    Þátturinn er í boði ⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠ og ⁠⁠⁠NOW⁠⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠

    ⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠

    ⁠⁠Brestur á Facebook⁠

    1 hr 10 min
  • 20. Ólíkir heilar, ólíkar ADHD týpur

    Við undirbúning fyrir upptökur á 20. þætti Brests komst Birna nokkuð langt með að næla sér í doktorsgráðu í taugavísindum, enda dugar ekkert minna þegar konur ætla að komast að því hvað það er í raun sem veldur ADHD í heilum þessa útvalda og stórskemmtilega fólks. Spoiler alert: það er margt! Allskonar og mismiklar raskanir innan mismunandi heilastöðva, sem útskýrir ólíkar birtingamyndir og týpur af ADHD.

    Vinkonurnar (sem eru alls ekki læknar né annarskonar heilbrigðisstarfsfólk) rýndu að þessu sinni í skilgreininguna á ADHD og hinar ýmsu kenningar um mögulega undirflokka. Þær skoðuðu hvort örvandi lyf henti fyrir allar tegundir ADHD og af hverju lyf séu oft einu tólin sem einstaklingum er boðið við greiningu. ADHD ráð vikunnar er einnig á sínum stað og ýmislegt annað út fyrir efnið.


    Þátturinn er í boði ⁠⁠Blush⁠⁠ og ⁠⁠NOW⁠⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠Brestur á Instagram⁠

    ⁠Spjallið umræðuhópur⁠

    ⁠Brestur á Facebook


    1 hr 6 min
  • 19. Ofurnæmni eða ímyndunarveiki?

    Þegar konur hafa verið þekktar fyrir óþarfa dramatík í meira en þrjátíu ár er gott að fá staðfestingu á að ofurnæmni fyrir hinum ýmsu hlutum er klínísk!

    Dr. Birna og Dr. Bryndís ræða óþægileg föt, hreyfiveiki, ofnæmi fyrir hávaða og fleira sem fær taugakerfið til að nötra.

    Þátturinn er í boði ⁠Blush⁠ og ⁠NOW⁠ - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur'

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    Brestur á Instagram

    Spjallið umræðuhópur

    Brestur á Facebook

    1 hr 14 min
  • 18. Off dagur - Strúktúr sem við þurfum en hötum

    Það geta ekki allir dagar verið góðir Brests-dagar. Í þættinum fara Birna og Bryndís yfir óvanalegan hlaðvarpstökudag þar sem ræða átti strúktúr og rútínur sem ADHD heilinn þarf en hatar. Strúkturinn á fyrstu upptökutilraun var þó ekki betri en svo að hann leiddi til kulnunar. En hvernig kemur maður til baka eftir kulnun? Allt þetta og meira til í þætti vikunnar. Þátturinn er í boði ⁠⁠Blush⁠⁠.

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠Brestur á Instagram⁠

    ⁠Spjallið umræðuhópur⁠

    ⁠Brestur á Facebook⁠


    1 hr 5 min
  • 17. Sambönd

    Við höfum öll heyrt um flókin sambönd, hvort sem umræðir ástar- eða efnasambönd, en eru flækjustigin fleiri í því fyrrnefnda fyrir fólk með ADHD?

    Birna og Bryndís opna sambandsreynslubanka sína fyrir hlustendur og dusta rykið af minningum sem hefðu eflaust kosið áframhaldandi einveru undir þykknandi rykfeldi, væru eigendur þeirra ekki hvatvísir hlaðvarpsstjórnendur.

    Ef þátturinn svalar ekki sambandsspjallsþorsta hlustenda, þá er tilvalið að næla sér í spilið 'Sambönd' frá Blush sem hjálpar pörum að opna umræðuna og styrkja tengslin, en ⁠⁠⁠Blush⁠⁠⁠⁠ er styrktaraðili þessa þáttar.


    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠

    ⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠

    ⁠⁠Brestur á Facebook⁠⁠

    1 hr 13 min
  • 16. Þarf alltaf að vera ADHD? - Viðtal við Tinnu Björk Kristinsdóttur

    Þegar Brestur fær hlaðvarpsdrottningu og fellow ADHD konu Tinnu Björk Kristinsdóttur í heimsókn má gera ráð fyrir þætti af lengri gerðinni. 

    Birna og Bryndís ræddu við Tinnu um flækjustig hins langdregna greiningarferlis, ábyrgðarhækjur í heimilislífinu, ADHD styrkleika, hlaðvarpsgerð og svo margt margt fleira.


    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠⁠⁠

    1 hr 37 min
  • 15. Fjármál - Viðtal við Valdísi Hrönn Berg

    Í þætti vikunnar heyrum við frábært viðtal við Valdísi Hrönn Berg, viðskiptafræðing, mark- og einkaþjálfa. Hún ræðir við Birnu og Bryndísi um hvernig lífið breyttist eftir ADHD greiningu og hvernig hún nær nú að nýta styrkleika sína í öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur á sinni könnu. Ásamt því að vera í sjálfstæðum rekstri sem markþjálfi býður hún einnig upp á fjármálakennslu fyrir einstaklinga og pör sem vilja bæta fjárhagslega heilsu út frá persónulegum markmiðum. Vert er að benda á að Valdís verður með erindi undir yfirskriftinni Fjármál og ADHD í kvöld, 21. febrúar, en hægt er að skrá sig á viðburðinn á Facebooksíðu ADHD samtakanna.

    Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:

    ⁠⁠⁠⁠Brestur á Instagram⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Spjallið umræðuhópur⁠⁠⁠⁠

    ⁠⁠⁠⁠Brestur á Facebook⁠⁠⁠⁠

    1 hr 19 min

About Brestur

From the publisher's feed

Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD

More shows like Brestur

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners