Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór

By Búbblur & BjórComedySociety & CultureLeisure
Download on the App Store

Búbblur & Bjór episodes

  • Birkir fer til Ítalíu

    Skytturnar þrjár eru mættar á sólríkum degi í umdeildum þætti þar sem þeir fara yfir ýmis mál sem eru að gerast í heiminum og deila þar sínum krassandi skoðunum varðandi það allt saman. Birkir er að fara til Ítalíu á meðan Davíð og Þröstur hanga heima að vinna, alltaf sami lúxusinn á þessum Garðbæingum!

    42 min
  • Dumb History

    Strákarnir eru mættir og fengu Daða í heimsókn og því ber að fagna. Talað er um heimskulega sögu eða dumb history þar fara þeir yfir til dæmis kanínuher sem réðst á Napoleon, þegar konum var bannað að fara í lestir og fleira gufuruglað og galið úr mannkynssögunni

    48 min
  • Flott hönnun

    Birkir og Davíð eru mættir í banastuði og í þessum þætti fara strákarnir yfir flotta hönnun að þeirra mati. Hvað er flott hönnun og hvað er ljót hönnun allt frá bílum, húsgögnum, símum og fatnaði sem dæmi.

    52 min
  • Gott fólk

    Skytturnar þrjár eru mættar í banastuði og ætla að fara yfir gott fólk, A.K.A. Amazing people!

    Það hefur verið margt gott fólk í gegnum tíðina, eins og til dæmis Leonardo Da Vinci, Robin Williams, og Birkir!

    54 min
  • Topp 10 minjagripir

    Jæja, allir pungarnir fjórir eru mættir í þennan þátt til þess að ræða hvaða topp 10 minjagripi þeir myndu vilja eiga úr sögunni, sumir eru með sömu hlutina fyrir algjöra tilviljun, aðrir eiginlega ekki neitt, en á borðinu er til dæmis Indiana Jones svipan, Ghostbusters Proton Pack, DeLorean bíll og stórfurðulegur bátur....sem er ekki fyrir alla....

    47 min
  • Urban Dictionary
    ATH: Þessi þáttur er EKKI við hæfi barna.
    Strákarnir fóru að skoða "The Urban Dictionary" sem er magnaður andskoti, segjum ekki meir nema að tala við lögfræðing fyrst, svo í lokin fékk Birkir email frá Daða sem hann fer yfir
    48 min
  • Gervivísindi

    Ripp, Rapp og Rupp eru mættir til leiks í þessum þætti til þess að ræða Pseudoscience, eða öðru nafni gervivísindi, það er nóg til af þeirri vitleysu, eins og blessuðu ímyndunarveiku miðlarnir sem lesa í spil og bolla, og auðvitað höfuðbeinaspjaldhryggjajöfnunin, hvur andskotinn er það???

    1 hr 2 min
  • Tuðbræður

    Tuðbræður, tuðmenn, Birkir og Davíð eru mættir í þennan þátt þar sem Birkir fer yfir nýliðna ferð til London á Prodigy tónleika, svo fara þeir yfir það sem hefur verið að gerast í heiminum undanfarið, eins og morðtilræði enn eina ferðina á Donald Trump, hvaða tíska/samsæriskenning er það?

    44 min
  • The 27 Club

    Birkir, Daði og Þröstur eru mættir til þess að ræða einn alræmdasta klúbb heims, þessi klúbbur er með langdýrasta aðgöngumiðann, The 27 Club! Þeir ræða pælingar og samsæriskenningar varðandi þennan klúbb, hverjir eru í honum og hvernig þau dóu, einn er alveg á því að Kurt Cobain hafi verið myrtur, hinir eru ekki eins vissir, en þátturinn byrjar á því að Daði gerir Birki bálreiðan með einhverju tónlistarþvaðri, það verður aldrei þreytt að heyra Birki verða ponsu pirrí pú!

    43 min
  • The Simpsons

    Í tilefni þess að í dag er hinn alþjóðlegi Simpsons dagur (19 apríl), þá ætla Birkir og Davíð að fara saman yfir þessa þætti sem hafa verið í miklu uppáhaldi hjá þeim í gegnum áratugina. Þeir renna yfir bestu þættina að þeirra mati, hvaða karakter þeim finnst bestur, hvaða karakterar hafa dáið í þáttunum, skoða Íslandstengingar og skoða svo hvort þátturinn sem Michael Jackson kom fram í hafi verið eitthvað loðinn ásamt mörgu öðru...einnig ætla þeir í skemmtilegan Simpsons spurningaleik.

    1 hr 1 min

About Búbblur & Bjór

From the publisher's feed

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem…