Deiglan

Deiglan

By Þórlindur KjartanssonNewsPolitics
Download on the App Store

Deiglan episodes

  • Radíó Deiglan – 20_06 – Lundúnir á línunni
    Radíó Deiglan er send út frá Lundúnum og Vesturbæ Reykjavíkur að þessu sinni. Hafsteinn Gunnar Hauksson og Þórlindur Kjartansson ræða saman um ástandið í heiminum, hugleiða hugleiðslu og gera sér mat úr gildismati. Hljóðgæðin líða fyrir fjarlægðina og tæknihalla, en hlustendur geta vonandi hlustað framhjá því að þessu sinni. Eins og margt annað er það … Lesa áfram Radíó Deiglan – 20_06 – Lundúnir á línunni →
    51 min
  • Einu mennirnir með viti – 20_05
    Eftir rúmlega eins árs fjarveru snúa Einu mennirnir með viti aftur í Radíó Deigluna. Þar sem annar þeirra útskrifaðist af náttúrufræðibraut MR þykir þeim óhætt að veita ráðleggingar í tengslum við útbreiðslu smitsjúkdóma, en meginefni þáttarins er hæfnimat út frá námskröfum 6. bekkjar í grunnskóla sem annar þáttastjórnandinn framkvæmir á hinum.
    1 hr 31 min
  • Radíó Deiglan 2004
    Hægra fólkið með vinstri kjörþokkann, Þórlindur og Þorbjörg Sigríður tala um vorboðann ljúfa í vestrinu áður en persónuleiki annars þáttastjórnandans er krufin. Svo er farið yfir hina umdeildu sjónvarpsþætti Exit og er þeim sem ekki vilja kynnast framvindunni bent á að bíða með að hlusta.
    45 min
  • Radíó Deiglan 2001 – HFMVK – Fallni prinsinn
    Hægra fólkið með vinstri kjörþokkann, Þórlindur Kjartansson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, fjalla ítarlega um ástandið í bresku konungsfjölskyldunni. Því er meðal annars spáð að hugsanlega muni Harry eiga fleiri hjónabönd í vændum.
    37 min
  • Radíó Deiglan 1908 – Fullveldiskakan
    Bjarni Már Magnússon, Deiglupenni, Íslandsmeistari og doktor í lögum mætti uppfullur fróðleiks í Radíó Deigluna. Rætt var um fullveldið í gamni og alvöru auk þess sem eftirminnileg heimsókn Bjarna Más á kosningafund Donalds Trump var rifjuð upp.
    1 hr 4 min
  • Radíó Deiglan 1907 – Keppnisferð
    Þórlindur Kjartansson og Eggert Þór Aðalsteinsson, Deiglupennar og íþróttabókahöfundar, fóru til Minneapolis í stífa keppnisferð. Þeir bjuggu við þröngan kost í iðnaðarhverfi í nístandi kulda, en létu það ekki á sig fá og mættu á tvo körfuboltaleiki og þrjá hafnaboltaleiki—auk þess að taka upp hlaðvarpsþátt.
    49 min
  • Radíó Deiglan 1906
    Andri Óttarsson og Árni Helgason Deiglupennar, lögmenn og handritshöfundar mættu í Radíó Deigluna til þess að ræða um dóm Mannréttindadómstól Evrópu og reyna bæði að skilja og útskýra á sama tíma. Fátt er skemmtilegra en hressileg umræða um lög og lagatækni; og Radíó Deiglan bregst ekki sinum sárafáu hlustendum hvað það varðar.
    1 hr 28 min
  • Radíó Deiglan 1905
    Pawel Bartoszek, Deiglupenni ársins, stærðfræðingur, borgarfulltrúi, faðir og hlaupari rifjar upp minningar frá íþróttaferlinum og talar um lýðræðið í Póllandi og á Íslandi. Í þættinum setur Þórlindur þeim báðum markmið fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem Pawel segir vera „innan marka heilbrigðrar skynsemi.“
    1 hr 12 min

About Deiglan

From the publisher's feed

Radíó Deiglan hefur komið út með óreglulegum hætti frá árinu 2013. Í hlaðvarpinu koma einkum fram Deiglupennar og ræða hugðarefni sín sem snúa að flestu milli himins og jarðar.