Deiglan

Deiglan

By Þórlindur KjartanssonNewsPolitics
Download on the App Store

Deiglan episodes

  • Radíó Deiglan 20_19 – Frjáls vilji
    Tengdabræðurnir Hafsteinn Gunnar Hauksson og Þórlindur Kjartansson ræddu ýmsa heima og geima, þar á meðal um meðvitund og núvitund, frjálsan vilja manna og dýra. Hljóðgæðin hafa oft verið betri, en það mun vonandi ekki draga um of úr ánægju þeirra sárafáu sem hlusta.
    1 hr 1 min
  • Radíó Deiglan 20_18 – Kapítalisminn kvaddur
    Í átjánda þætti ársins tala þeir saman Þórlindur Kjartansson og Pawel Bartoszek um árstíðirnar og Pawel útskýrir af hverju eina rétta svarið við spurningu um uppáhaldsárstíð sé haustið. Svo fer samtalið um víðan völl þar sem sem siðfræði og kapítalismi koma við sögu, einkum spurningar um það hvort hagnaðarvon eða græðgi sé líkleg til þess … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_18 – Kapítalisminn kvaddur →
    48 min
  • Radíó Deiglan 20_17 – Ungdómurinn
    Í sautjánda þætti Radíó Deiglunnar á árinu reyna frændurnir Þórlindur Kjartansson og Kjartan Sveinn Guðmundsson að brúa kynslóðabilið í samtali um allt það sem hæst ber í samfélaginu um þessar mundir og um það sem gengur á í afkimum internetsins þegar foreldrarnir sjá ekki til. Þeir fara yfir félagsleg, fjárhagsleg, menningarleg, líkamleg og andleg áhrif … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_17 – Ungdómurinn →
    1 hr 10 min
  • Einu mennirnir með viti – 20_16 Sögur af landi
    Einu mennirnir með viti settust niður á laugardagskvöldi og spjölluðu saman um ferðasumarið á Íslandi 2020, íslenskasta sumar í heila kynslóð. Og úr því fór umræðan yfir í íslenskasta tónlistarmann þeirra allra—Bubba Morthens, sem verið hefur innblástur allra skrifa á Deigluna í þessum mánuði.
    55 min
  • Radíó Deiglan 20_15 – Bylting einhver sagði
    Í fimmtánda þætti Radíó Deiglunnar í ár ræða Þórlindur og Þórhildur saman á afmælisdegi hins fyrrnefnda og hann fær kennslustund í femínisma í afmælisgjöf. Hver er munurinn á jafnrétti og femínisma? Hversu ólík eru kynin? Eru stjórnunarhættir karla og kvenna ólíkir? Eiga karlar að vera hjálpsamir inni á heimilinu, eða mega þeir ráða einhverju sjálfir? … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_15 – Bylting einhver sagði →
    48 min
  • Radíó Deiglan 20_14 – Frelsið með Þórhildi
    Í fjórtánda þætti ársins tala Þórlindur Kjartansson og Þórhildur Þorleifsdóttir um alls konar frelsi. Þau tala um kvenfrelsi, græðgi, pólitískan rétttrúnað, barnauppeldi, persónufrelsi og einkalíf, hagfræði, listsköpun og samt er þátturinn bara rétt rúmlega klukkutími. Og já—Þórhildur segir frá því þegar hún bar út Morgunblaðið. Þátturinn var tekinn upp 26. júní 2020. Radíó Deiglan er … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_14 – Frelsið með Þórhildi →
    1 hr 19 min
  • Radíó Deigan 20_11 – Í kófinu
    Í ellefta þætti ársins spjalla Einu mennirnir með viti saman fremur stefnulaust um ástand mála í eigin lífi, samfélaginu og heimsbyggðinni. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir sjálfhverfu eru varaðir við þessum þætti.
    51 min
  • 20_12 – Hótel Kalifornía
    Þórlindur Kjartansson og Jón Steinsson, hagfræðiprófessor í Berkley í Kaliforníu, spjalla saman um ástandið hér og þar. Jón lýsir ástandinu í útgöngubanninu í sumarsælunni við San Francisco flóa. Þeir ræða um ólíka nálgun stjórnvalda og sérfræðinga í Bandaríkjunum og á Íslandi. Þeir ræða líka um kreppur og farsótti, breytingar á atvinnháttum og margt fleira. Í … Lesa áfram 20_12 – Hótel Kalifornía →
    1 hr 2 min
  • Radíó Deiglan 20_10 Værukærð er veirukærð
    Hægri mennirnir með vinstri kjörþokkann ræða um vinsældir annars þáttastjórnandans og vinsældir þáttarins. Hlustendur eru minnstir á að sá sem er værukær eru veirukær og í lokin er fjallað um að sumarið 2020 verður að öllum líkindum líkara sumrinu 1985 heldur en 2019.
    33 min
  • 20_10 Illugagatan – Takk Vigdís
    Nýr þáttur „Illugatan“ hefur göngu sína á Radíó Deiglunni. Brynjólfur Ægir Sævarsson og Þórlindur Kjartansson ræða um hvaðeina sem þeim dettur í hug. Í þessum þætti útskýra þeir fyrst hvernig heiti þáttarins er komið til og rifja upp kaffitíma á laugardagsmorgnum. Svo stökkva þeir á #takkVigdís vagninn. Brynjólfur rifjar upp pólitísk klókindi sín þegar hann … Lesa áfram 20_10 Illugagatan – Takk Vigdís →
    42 min

About Deiglan

From the publisher's feed

Radíó Deiglan hefur komið út með óreglulegum hætti frá árinu 2013. Í hlaðvarpinu koma einkum fram Deiglupennar og ræða hugðarefni sín sem snúa að flestu milli himins og jarðar.