Deiglan

Deiglan

By Þórlindur KjartanssonNewsPolitics
Download on the App Store

Deiglan episodes

  • Radíó Deiglan 2021_06 – Á undan sinni framtíð
    Ræða álitamál sem upp hafa komið í skrifum á Deiglunni síðustu vikuna. Meðal annars fara þeir yfir ýmis konar erindisrekstur sem úthverfafólk þarf að sækja í miðborgina og rifja upp framsýnan pistil stofnandans. Í lokin bjóða þeir upp á ráðgjafaþjónustu fyrir þá hlustendur sem hafa áhuga á því að gerast aðdáendur hafnaboltans.
    45 min
  • Radíó Deiglan 2021_05 Grímulaus æska
    Einu mennirnir með viti ræða um jarðhræringar og sóttvarnir eins og allir landsmenn. En þar að auki er rætt ástandið á gamalli Ford-bifreið sem þarf á meiri spennu að halda í tilveru sína, annars gæti illa farið.
    30 min
  • Radíó Deiglan 2021_03-Meiri loftgæði
    Einu mennirnir með viti fjalla áfram um raka og loftgæði. Borgar Þór býður upp á nýja þjónustu sem stendur eingöngu til boða á Seltjarnarnesi. Þeir rifja upp dagana þegar veik von um bólusetningu þjóðarinnar varð að algjörri fullvissu. Að lokum er farið ýmis áhugaverð atriði í tengslum við körfuboltadómgæslu, en Þórlindur átti fyrir höndum tvo leiki síðar um daginn.
    40 min
  • Radíó Deiglan 2021_2 – Kjötsúpa
    Einu mennirnir með viti halda áfram rannsóknum á rakastigi og fjalla um þann leyndarhjúp sem virðist vera um raunverulegt ástand raka á landinu. Þeir ræða um mögulegan forystumann í málefnum Reykjavíkurborgar. Stærstur hluti þáttarins fer þó í að ræða háþróaðar aðferðir Borgars Þórs í kjötsúpugerð.
    50 min
  • Radíó Deiglan 2021_01 – Loftgæði
    Einu mennirnir með viti heilsa nýju ári og halda upp á afmæli tveggja ritstjóra við erfið en batnandi loftgæði á 8. hæð við Austurströnd. Eftir ítarlega umfjöllun um margvíslegar lausnir í þeim efnum fara þeir stuttlega yfir helstu málefni samtímans, faraldurinn og valdaskiptin í Bandaríkjunum. Og Diego Maradona kemur við sögu.
    54 min
  • Radío Deiglan 20_23 Stjörnufræði og speki, faraldsfræði og speki
    Í síðasta þætti Radíó Deiglunnar árið 2020, og þeim 23., ræða Einu mennirnir með viti® um daginn, nóttina, veginn og vegaleysur. Fjallað er um sóttvarnalimrur sem gætu komið í stað opinberra sóttvarnaráðstafana og í framhaldinu um verndarhagsmuni sóttvarna- og umferðarlaga. Einnig er tæpt á því helsta sem fram fór á jólaglögg Deiglunnar 2020.
    1 hr 1 min
  • Radíó Deiglan 20_20 – Heilinn
    Davíð Guðjónsson og Þórlindur Kjartansson tala saman um heilann og mikilvægi félagslegra tengsla fyrir manninn. Maður er jú manns gaman. En á tímum covid þá er fólki kennt að forðast hvert annað og jafnvel hræðast, og ungt fólk sem elst upp við þessar aðstæður gæti misst af tækifærum til að mynda ómetanleg vinabönd, eins og þeir félagarnir gerðu þegar þeir kynntust í menntaskóla.
    1 hr 4 min

About Deiglan

From the publisher's feed

Radíó Deiglan hefur komið út með óreglulegum hætti frá árinu 2013. Í hlaðvarpinu koma einkum fram Deiglupennar og ræða hugðarefni sín sem snúa að flestu milli himins og jarðar.