Deiglan

Deiglan

By Þórlindur KjartanssonNewsPolitics
Download on the App Store

Deiglan episodes

  • Einu mennnirnir með viti – S3E01
    Einu mennirnir með viti snúa aftur eftir langan dvala, þótt það hafi ekki verið í heila öld, eins og Þyrnirós. Þessi þáttaröð fjallar um ýmis konar ævintýri og sögur en margt annað kemst að. Þáttastjórnendur fjalla um árið 2015, bandaríska pólitík, forsetakjörið sem er framundan – og gera HC Andersen ævintýrinu um Eldfærin skil.
    1 hr 12 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E13
    Síðasti þáttur annarrar seríu Einu mannanna með viti fer um víðan vígvöll. Þátturinn er tekinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og í vesturhluta Jerúsalem. Fyrri hlutinn á Valentínusardag en sá síðari í lok mars. Þáttarstjórnendur hneykslast á hópsálum samtímans, en komast að því að þeir eru kannski ekkert betri sjálfir. Og að sjálfsögðu gleyma þeir ekki … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S2E13 →
    1 hr 10 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E12
    Einu mennirnir með viti eru í spreng að klára tímabilið. Í þessum þætti er upplýst um afdrif pennaveskis sem annar þáttastjórnenda glataði í Madríd. Þeir fjalla líka lauslega um jólaglögg Deiglunnar og boða epískan áramótaþátt þar sem farið verður ítarlega yfir áramótaboðskap forsætisráðherra. Einu mennirnir með viti óska hlustendum gleðilegra jóla.
    58 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E11
    Einu mennirnir með viti brugðu landi undir fót og senda út þátt númer ellefu í seríunni frá höfuðborg Spánar. Þeir ræða ferðalagið, borgina. Vladimír Pútín og Guðni Ágústsson koma báðir við sögu í þættinum auk þess sem þeir lýsa því hvernig þeir bregðast við þegar þeir geta ekki fundið hluti sem þeir eru að leita … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S2E11 →
    48 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E10
    Einu mennirnir með viti ræða um heilsu sína og lifnaðarhætti. Þeir koma á framfæri mjög áhugaverðri kenningu um hvað sé raunverulega í gangi varðandi tætarana sem lögreglan fékk frá Noregi. Kynlíf ísaldarurriðans kemur að sjálfsögðu við sögu og margt fleira.
    1 hr 8 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E9
    Einu mennirnir með viti fara yfir helstu fréttir síðustu viku og ræða efni sem birst hefur á vefritinu. Þeir setja fram nýstárlegar hugmyndir um stefnumörkun í menningarlífi og fíkniefnamálum og komast að þeirri niðurstöðu að Facebook sé mannskemmandi syndabæli.
    1 hr 4 min
  • Einu mennnirnir með viti – S2E8
    Einu mennirnir með viti eru loksins að ná sér eftir þáttaröðina um syndirnar sjö. Í þessum þætti eru umræðuefnin sótt í efnistök síðustu vikna á vefritinu Deiglan.is. Lögmaðurinn Konráð Jónsson kemur nokkrum sinnum við sögu, ósigri Gunnars Nelson er fagnað, Neanderdalskonan kemur við sögu – og þáttastjórnendur barma sér undan hlutskipti kynslóðar sinnar.
    59 min
  • Einu mennnirnir með viti – S02E07 – Syndin Losti
    Einu mennirnir með viti ljúka umfjöllun sinni um höfuðsyndirnar sjö í lostafengnu uppgjöri við sínar dýrslegustu hvatir. Hafi Einu mennirnir með viti gengið nálægt sjálfum sér í fyrri umfjöllunum þá má segja að þeir séu komnir alveg inn að skinni í þetta sinn. Hlustendur eiga ekkert minna skilið en að þáttastjórnendur komi til dyranna eins … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E07 – Syndin Losti →
    58 min

About Deiglan

From the publisher's feed

Radíó Deiglan hefur komið út með óreglulegum hætti frá árinu 2013. Í hlaðvarpinu koma einkum fram Deiglupennar og ræða hugðarefni sín sem snúa að flestu milli himins og jarðar.