Diskódruslan

Diskódruslan

By RÚVMusic
Download on the App Store

Diskódruslan episodes

  • Hjálmar H. Ragnarsson, listin og sköpunarferlið
    Hjálmar H. Ragnarsson samdi nýverið partítu fyrir einleiksfiðlu sem átti að frumflytja á dögunum en ekki varð af vegna samkomubanns. Rætt er við Hjálmar, sem er nýkominn úr tveggja vikna sóttkví, um tónlist sem til verður úr engu og er ekki um neitt. Um listina í dag sem hefur merkimiða og um skapandi listferli og hugleiðingar um sköpunarferli tónskáldsins. Einnig um listina hvernig hún endurspeglar samtíman og hvernig hún verður að engu ef henni er ætlað það hlutverk.
    0 min
  • Bjarni Frímann Bjarnason
    Rætt er við Bjarna Frímann Bjarnason aðstoðar hljómsveitarstjóra SÍ og tónlistarstjóra íslensku óperunnar um líf tónlistarmannsins á dögum veirunnar - þögnina og fleira.
    0 min
  • Hornið
    Í þættinum er sjónum beint að horninu sem hljóðfæri. Rætt er við Stefán Jón Bernharðsson leiðara horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann segir m.a. frá álaginu sem fylgir því að spila hornsóló og áfallinu sem hann varð fyrir þegar hljóðfærið hans varð fyrir miklu hnjaski í síðasta mánuði.
    0 min
  • Álagsmeiðsli og atvinnutengdir sjúkdómar
    Í þættinum er fjallað um atvinnutengda sjúkdóma og álagsmeiðsl hljóðfæraleikara. Rætt er við Unu Eyþórsdóttur mannauðsstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Sigrúnu Grendal formann félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Kára Árnason sjúkraþjálfara.
    0 min
  • 12 tónar
    Í þættinum er farið í heimsókn í verslunina 12 tóna á Skólavörðustígnum og rætt við Lárus Jóhannesson um breytingar sem nýverið voru gerðar á versluninni og fleira.
    0 min
  • Umbra
    Tónlistarhópurinn Umbra í sófaspjalli við Arndísi Björk Ásgeirsdóttur.
    0 min
  • Gerður Kristný
    Í þættinum er rætt við Gerði Kristnýju skáld um tónlist og hvaða tónlist veitir henni innblástur, en á Myrkum músikdögum var m.a. flutt verk Kristínar Þóru Haraldsdóttur Blóðhófnir sem hún samdi við samnefnt verk Gerðar.
    0 min

About Diskódruslan

From the publisher's feed

Allt var fullkomið þar til tónlistin hætti. Diskóið var lífsstíll. Ljósin, dansinn og músíkin komu saman og sköpuðu algleymi. Í diskóinu var frelsi fyrir minnihlutahópa að vera þeir sjálfir. Fólk af hvaða uppruna sem er var konungborið um stund. Dansarar skreyttir glitri og glimmeri í taumlausum dansi á upplýstu gólfinu. Í þættinum er tónlistarstefnan skoðuð út frá baráttu litaðs fólks, hinsegin fólks og kynfrelsi og kynvitund kvenna.