Diskódruslan

Diskódruslan

By RÚVMusic
Download on the App Store

Diskódruslan episodes

  • Sögur úr óperunni
    Gunnar Guðbjörnsson, Kristján Jóhannsson og Signý Sæmundsdóttir rifja upp skemmtilegar sögur úr óperuuppfærslum sem þau hafa tekið þátt í.
    0 min
  • Tónlist og dýr
    Fjallað er um tónlist og dýr - hvernig þau skynja tónlist og hvernig áhrif tónlist getur haft á dýr. Farið verður í heimsókn til tveggja hunda þeirra Snókers og Spörtu sem elska að syngja og einnig hljómar undarlegt háttalag hunds þáttarstjórnanda. Sérfræðingur þáttarins er Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir og dýraatferlisfræðingur. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
    0 min
  • Klapp á klassískum tónleikum
    Í þættinum er fjallað um klapp - á klassískum tónleikum - hvenær á að klappa og hvenær á ekki að klappa. Viðmælendur eru Halla Oddný Magnúsdóttir tónlistar-og fræðakona, Jökull Torfason sem starfar á markaðsdeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljóðfæraleikararnir Una Sveinbjarnardóttir, Þórir Jóhannsson og Herdís Anna Jónsdóttir.
    0 min
  • 28.09.2019
    Í þættinum ræðir umsjónarmaður við Þórð Magnússon tónskáld um sónötuformið og hina klassísku sónötu. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
    0 min
  • Hörður Áskelsson
    Í þættinum er rætt við Hörð Áskelsson organista og kórstjóra um messuformið og leikin brot úr nokkrum messum frá ýmsum tímum tónlistarsögunnar.
    0 min
  • Hvernig velur tónlistarfólk hljóðfæri?
    Farið í Hörpu og rætt við nokkra hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands um það hvernig þeir völdu sér sín hljóðfæri. Einnig er rætt við Önnu Rún Atladóttur skólastjóra Tónmenntaskóla Reykjavíkur um hvernig ungir nemendur velja sér hljóðfæri til að læra á.
    0 min
  • Gísli Magna Sigríðarson
    Rætt er við Gísla Magna Sigríðarson stjórnanda Léttsveitar Reykjavíkur um starf hans með kórnum og undrið að syngja í kór. Einnig hljóma viðtalsbrot við Auði Aðalsteinsdóttur og Valgerði Rúnarsdóttur sem báðar syngja í kórnum.
    0 min
  • Þverflautan í forgrunni
    Rætt er við flautuleikarana Áshildi Haraldsdóttur og Berglindi Maríu Tómasdóttur. Í þættinum hljóma brot úr eftirfarandi verkum Badinerie úr hljómsveitarsvítu nr. 2 eftir Johann Sebastian Bach í flutningi Petru Mullejans og barokksveitarinnar í Freiburg, Tónatónar úr flautumínútum Atla Heimis Sveinssonar í flutningi Manuelu Wiesler. Brot úr Flautukonserti Atla Heimis Sveinsonar, Robert Aitken leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fantasía í g moll eftir Georg Philipp Telemann í flutningi Manuelu Wiesler. Brot úr Sinfóníu nr. 5 eftir Ludwig van Beethoven. Viva Italiana fantasía um stef eftir Rossini og Verdi eftir Marinu Manafovu, Kuelyar Ksenja leikur á piccoloflautu með hljómsveit Marinsky leikhússins. Brot úr Disney kvikmyndinni Skógarlíf. Black Orpheus eftir Luis Bonfá, Sergio Barranehea leikur á bassaflautu og Útópía með Björk.
    0 min
  • Valgeir Sigurðsson tónskáld
    Í þættinum er rætt við Valgeir Sigurðsson tónskáld og hljóðupptökustjóra í tilefni þess að verk hans Dust lenti á úrvalslista Alþjóða tónskáldaþingsins Rostrum of composers á dögunum - í lok þáttar hljómar verkið í heild sinni. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
    0 min

About Diskódruslan

From the publisher's feed

Allt var fullkomið þar til tónlistin hætti. Diskóið var lífsstíll. Ljósin, dansinn og músíkin komu saman og sköpuðu algleymi. Í diskóinu var frelsi fyrir minnihlutahópa að vera þeir sjálfir. Fólk af hvaða uppruna sem er var konungborið um stund. Dansarar skreyttir glitri og glimmeri í taumlausum dansi á upplýstu gólfinu. Í þættinum er tónlistarstefnan skoðuð út frá baráttu litaðs fólks, hinsegin fólks og kynfrelsi og kynvitund kvenna.