Diskódruslan

Diskódruslan

By RÚVMusic
Download on the App Store

Diskódruslan episodes

  • Stórsveit eða lúðrasveit
    Stórsveit eða Lúðrasveit - hver er munurinn. Farið yfir sögu þessara fyrirbæra með aðstoð Sigurðar Flosasonar stjórnanda Stórsveitar Reykjavíkur og Rúnari Óskarssyni stjórnanda Lúðrasveitar Hafnarjarðar.
    0 min
  • Íslenska óperan
    Í þættinum verður kíkt á æfingu hjá íslensku óperunni sem frumsýnir óperu Giuseppe Verdis La Traviata 9. mars. Rætt er við nokkra aðstandendur sýningarinnar, hljómsveitarstjóra söngvara, kórstjóra, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur óperustjórna og fleiri og púlsinn tekinn á stemmningunni þegar svo stutt er í frumsýningu.
    0 min
  • Harmóníum eða pípuorgel
    Má bjóða þér harmóníum eða pípuorgel - farið í heimsókn í Tónlistarsafn Ísland og rætt við Bjarka Sveinbjörnsson um sögu harmóníum-orgelsins á Íslandi og í Hallgrímskirkju til Björns Steinars Sólbergssonar organista og fræðst um orgelleik og Klaus orgelið í kirkjunni. Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
    0 min
  • 02.02.2019
    Í þessum þætti verður lagt á djúpið og kontrabassinn dýpsta hljóðfæri strengjafjölskyldunnar rannsakaður - Rætt verður við bassaleikarana Borgar Magnason og Báru Gísladóttur og einnig hljóma brot út leikritinu Kontrabassinn eftir Patrik Suskind. Lesarar í þættinum eru Einar Örn Jónsson, Gunnar Hansson og Þröstur Helgason.
    0 min
  • 26.01.2019
    Umsjónarmaður bregður undir sig betri fætinum og fer í heimsókn til Ingibjargar Björnsdóttur listdanskennara og fær fræðslu um barokkdansa.
    0 min
  • Annar þáttur
    Í þáttaröðinni Tónlist frá A - Ö rannsakar Arndís Björk Ásgeirsdóttir leyndardóma tónlistarinnar með aðstoð sérfræðinga.
    0 min
  • Fyrsti þáttur
    Í þáttaröðinni Tónlist frá A - Ö rannsakar Arndís Björk Ásgeirsdóttir leyndardóma tónlistarinnar með aðstoð sérfræðinga. Í þessum fyrsta þætti verður slagverksheimurinn kannaður með aðstoð Frank Aarninks slagverskleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Jóns Geirs Jóhannssonar trommuleikara Skálmaldar og slagverksleikaranna Svanhildar Lóu Bergsveinsdóttur og Péturs Grétarssonar. Í þættinum hljóma brot úr eftirfarandi verkum - Fantasíu fyrir 2 pákuleikara og hljómsveit eftir Philipp Glass, Bolero eftir Maurice Ravel, Gleypnir og Með Jötnum með Skálmöld, A brief case með hljómsveitinni Saga, örstutt brot úr tónlistinni Whiplash og For big Sid með Max Roach.
    0 min

About Diskódruslan

From the publisher's feed

Allt var fullkomið þar til tónlistin hætti. Diskóið var lífsstíll. Ljósin, dansinn og músíkin komu saman og sköpuðu algleymi. Í diskóinu var frelsi fyrir minnihlutahópa að vera þeir sjálfir. Fólk af hvaða uppruna sem er var konungborið um stund. Dansarar skreyttir glitri og glimmeri í taumlausum dansi á upplýstu gólfinu. Í þættinum er tónlistarstefnan skoðuð út frá baráttu litaðs fólks, hinsegin fólks og kynfrelsi og kynvitund kvenna.