
Sign up to save your podcasts
Or


Troðið bómullarhnoðrum í öll eyru yngri en 18 ára, því þáttur vikunnar er fuðrandi hærusekkur af horngrýti. Komið ykkur vel fyrir, í ykkar þægilegustu bussum — og njótið.
Þáttur vikunnar er tileinkaður öllum úrkynjuðustu hvötum mannskepnunnar og er barmafullur af alls konar líkamsvessum og reðurtáknum. Geymið þar sem börn ná ekki til.
Undur og stórmerki! Dómsdagur er farinn aftur í loftið. Baldur, Haukur og splunkunýr meðlimur (!) dæma allt sem hugsast getur. Afsakið biðina.
Blessaður sekkurinn var orðinn barmafullur og því eru öll málefnin úr sal að þessu sinni.
Baldur, Haukur og Eddinn koma víða við í þætti dagsins. Gefið ykkar stjörnur hér.
Sláandi fréttir. Breytingaskeið Dómsdags er byrjað. Baldur, Haukur og Eddinn halda samt dampi og dæma hluti sem aldrei fyrr. Gefðu þínar stjörnur hér.
Leikkonan og lífskúnstnerinn Birna Pétursdóttir er gestur Dómsdags að þessu sinni, en hún settist í sætið hans Edda á meðan hann skellti sér til Ungverjalands í hárígræðslu. Frábær þáttur, fullyrðum við, þó við séum vissulega ekki hlutlausir. Hér má gefa stjörnur.
Í tilefni þorrans er þáttur dagsins vægast sagt óhefðbundinn og af súrara taginu. Við viljum þakka Gunnari Ben sérstaklega fyrir að ljá okkur rödd sína og undirleik á píanó. Búið ykkur undir fallegar minningar í bland við gall. Gefið ykkar stjörnur hér.
From the publisher's feed

35 Listeners