Eigin Konur

Eigin Konur

By Edda FalakSociety & Culture
Download on the App Store

Eigin Konur episodes

  • Katrín Lóa - Segir Helga í Góu hafa kynferðislega áreitt sig í eitt og hálft ár

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    „Hann hafði oft verið óviðeigandi og maður var búin að heyra sögur þannig maður passaði sig alveg á honum” Segir Katrín Lóa sem tilkynnti kyferðislega áreitni til lögreglu árið 2019. Áreitið átti sér stað á vinnustað af eiganda fyrirtækissins og gekk yfir í eitt og hálft ár. Katrín segir áreitið hafa byrjað eftir að maðurinn hafi lánað henni fimm milljónir sem hún notaði til þess að kaupa sér íbúð.

    10 min
  • Ingibjörg Sædís - ólst upp við sárafátækt

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur 

    Ingibjörg Sædís ólst upp við mikla fátækt þegar hún var yngri. Hún bjó hjá foreldri sem gat ekki unnið vegna andlegrar og líkamlegrar veikinda og var á sama tíma mótfallin því að biðja um aðstoð. Hún segir horfa aðdáunaraugum á fólk sem biður um aðstoð á internetinu fyrir börnin sín og vildi óska að faðir hennar hefði gert það sama.

    10 min
  • Kefsan - Kærði eiganda Mandi fyrir alvarlega líkamsárás og hótanir

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    Kefsan kærði Hlal, eiganda Mandi árið 2020 fyrir alvarlega líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Mandi. Í skýrslutökum lýsir hún því hvernig hann hafi kýlt hana í höfuðið, ýtti henni niður stiga og sparkað í hana af miklu afli, þar sem hún lá á gólfinu. Þá ber hún að Hlal hafi í þrjá mánuði áreitt sig og hótað sér á meðan hún leigði herbergi, sem var í eigu hans.

    10 min
  • Soffía Karen - "Kærði mann fyrir nauðgun sem hélt henni hjá sér í 4-5 tíma"
    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur    
    Soffía Karen var átján ára þegar hún fór heim með strák, sem hélt henni hjá sér í fjóra tíma á meðan hann braut á henni kynferðislega. Hún leitaði strax á bráðarmóttöku og lagði fram kæru stuttu eftir brotið. Gerandinn bað Soffíu afsökunar á því að hafa verið “ógeðslegur” við hana, en þrátt fyrir áverka var málið fellt niður tveimur árum síðar.
    5 min
  • Rakel Hlynsdóttir - að lifa með geðhvarfasýki 2

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur  

    Rakel Hlynsdóttir greindist með geðhvarfasýki 2 eftir að hafa lifað í mörg ár með ómeðhöndlaða geðhvarfasýki. Þegar hún fékk greininguna segir hún það hafa skýrt margt fyrir sér en var sett á röng lyf. Rakel var sett á tvöfaldan hámarksskammt af ADHD lyfjum ásamt lyfjum fyrir geðhvarfasýki, sem endaði með því að hún lagðist inn á bráðamóttöku geðdeildar.

    10 min
  • "Nemandi við MH fékk hótanir eftir að hafa sagt frá kynferðisbroti"

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur

    Ung kona sem er nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð segir baráttuna og mótmælin í MH hafa hjálpað sér í gegnum kynferðisbrot sem hún varð fyrir árið 2021. Hún segir nafn geranda síns hafa verið skrifað á vegg skólans og í kjölfarið fór hún að fá hótanir frá vinum hans og fjölskyldu.




    5 min
  • Ólafía Gerður - Setti hníf upp við háls hennar og ógnaði öryggi hennar í fjögur ár

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur   

    Ólafía Gerður bjó með ofbeldisfullum barnsföður sínum í tæp fjögur ár, frá því hún var 16 ára. Barnsfaðir hennar steig nýlega fram í viðtali þar sem hann lýsti sambandinu þeirra sem “stormasömu”. Ólafía segir frá líkamlegu, andlegu, kynferðislegu og stafrænu kynferðisofbeldi sem hún mátti þola á heimilinu. “Hann reyndi að kirkja mig og endar á því að nauðga mér. Þetta er eitt af mínum stærstu minningum sem ennþá daginn í dag, tæpum sex árum seinna, er ég að fá martraðir.” Segir Ólafía í þættinum. Ástæðan fyrir því að Ólafía ákvað að segja sögu sína er tvíþætt. “Ég ætla að skila skömminni og styrkja sjálfa mig.” Svo er það hitt: “það var ótrúlega erfitt að sjá hann koma fram í viðtali, ég titraði bara og mér var óglatt.” Henni er fyrirmunað að skilja af hverju fjölmiðlar birta viðtöl við menn sem hafa verið kærðir fyrir ofbeldi.

    10 min
  • Magdalena - ''til þess að fá nálgunarbann, þá verður þú að fá hann til að ráðast á þig''

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    Magdalena Valdemarsdóttir var föst í ofbeldissambandi í 10 mánuði og segir ofbeldið hafi haldið áfram þrátt fyrir sambandsslit. Alvarlegt ofbeldi á sér stundum stað eftir sambandsslit og það er ekkert sem segir að þegar ofbeldissambandi sé slitið þá sé ofbeldið búið.  TW: Árið 2017 kærði Magdalena barnsföður sinn fyrir tilraun til manndráps. Barnsfaðir hennar fékk 18 mánað fangelsi fyrir húsbrot, eignaspjöll og líkamsárás með því að hafa ruðst inn til hennar, slegið hana tvívegis með flötum lófa í andlit en jafnframt tekið hana í tvisvar sinnum kverkataki með báðum höndum þannig að hún átti erfitt með að anda en hún var gengin 17 vikur á leið með tvíbura þeirra.

    5 min
  • Thelma, Ýr og Katla

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur  

    Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson sem kallar sig Auður, hefur viðurkennt að hafa farið “yfir mörk” í samskiptum við konur. Í Apríl birtist Ísland í dag viðtal við Auðunn þar sem hann sagðist axla ábyrgð á hegðun sem hann taldi særandi og óþægileg. Katla Ómarsdóttir, Ýr Gudjohnsen og Thelma Tryggvadóttir stíga fram og segja Auðunn nota orð sem smætta það ofbeldi sem þær upplifðu.

    6 min
  • Lovísa Ösp - “Ef hann væri ekki ofbeldismaður að þá væri hann fullkominn”

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    Lovísa Ösp var í sambandi með manni sem beitti hana andlegu, líkamlegu og fjárhagslegu ofbeldi. Hún lýsir því hvernig sjálfsmorðshótanirnar voru hans leið til að koma í veg fyrir að hún færi frá honum. Hann lét hana vita að hann væri vís til þess að myrða hana og hótaði einnig að drepa hana. “Mér fannst ég bara ekki geta lifað án hans og ég hélt að þetta væri eðlilegt”. Lovísa segir manninn hafa passað sig að áverkar hennar væru einungis á höndum og fótum svo hún gæti falið þá með langermabolum. Lovísa varpar ljósi á hversu stórt hlutverk nándin spilar í ofbeldissamböndum og afhverju það er erfitt að slíta sig frá ofbeldismanninum. “Hann var bara minn klettur og þótt þetta hafi verið svona ljótt að þá sagði ég honum allt.” Segir Lovísa.

    38 min

About Eigin Konur

From the publisher's feed

Eigin konur