
Sign up to save your podcasts
Or


Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Hún hefur lokað á bæði mömmu sína og pabba eftir að þau beittu hana bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún ólst upp í Póllandi en flutti til Íslands 9 ára gömul og starfar móðir hennar sem grunnskólakennari í dag. Í dag glímir hún við vefjagigt og getur ekki lyft höndum upp fyrir haus, sem læknir hefur skráð sem afleiðing af endurteknu heimilsofbeldi. Í minningunni segir hún foreldra sína hafa lamið sig nánast á hverjum degi frá því hún man eftir sér og notað var annað hvort belti, reipi eða berar hendur. Þegar hún flytur til íslands stoppar líkamlega ofbeldið og við tekur andlegt ofbeldi. Hún ræðir þær afleiðingar sem hún glímir við í dag og hvernig kerfið sér ekki um að grípa þá einstaklinga sem þurfa á hjálp að halda.
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Aðeins 19 ára gömul var Brá seld í mansal til Frakklands. Brá kynnist manni í Þýskalandi sem býður henni starf sem aupair í Frakklandi. Þegar maðurinn sækir hana á flugvöllinn að þá áttar Brá sig fljótlega á því að maðurinn var ekki franskur og var ekki með starf fyrir hana sem aupair. Hún var læst inni í marga daga þar sem gerðir voru ógeðslegir hlutir við hana og segir hún þann tíma vera í mikilli móðu. Brá er síðan seld áfram í annað húsnæði þar sem hún er misnotuð og segir að hún hafi upplifað mikla skömm á þessum tíma, enda hafi hún ekki þorað að segja foreldrum sínum frá þessu strax. Brá opnar hér á ótrúlega sögu og talar einnig um afleiðingar sem hún er að glíma við í dag.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ragnheiður er aðeins 15 ára gömul en hún fór með mömmu sinni til Noregs með einkaflugvél að sækja bræður sína. Samfélagsmiðlar gera börnum kleift að tjá sig opinberlega og hefur Ragnheiður verið að segja sína sögu á miðlinum TikTok. Hún talar opinskátt um málið sitt eftir að barnavernd og sálfræðingur brugðust henni. Hvenær leyfum við rödd barna að heyrast? í þessu viðtali segir Ragnheiður stuttlega frá því sem hún er nú þegar að tala um á TikTok og hver hennar upplifun á ferðalaginu til Noregs var.
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Edda Arnardóttir fór og sótti strákana sína með einkaflugvél til Noregs. Eftir ráðfæringar við fagfólk var það eina í stöðunni að sækja börnin. Hún lýsir erfiðum aðstæðum áður en hún ákvað að sækja börnin sín, þar sem börnin hafi ekki mátt fara til tannlæknis og að fimm ára sonur hennar hafi komið til Íslands með sýkingar í munni og miklar tannskemmdir. Hún segir samband sitt við barnsföður sinn hafa verið erfitt og beitti hann hana miklu andlegu ofbeldi. Edda ræðir aðdragandann og ákvörðunina í kringum flugvélina og hvernig henni leið á meðan ferðinni stóð. Edda leggur einnig fram kæru fyrir hönd dóttur sinnar þegar hún opinberar kynferðisofbeldi sem hún segir pabba sinn hafa beitt hana og talar Edda um að það hafi verið punkturinn yfir i-ið.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Þessi þáttur fjallar um valdamikinn mann sem hefur verið að nýta sér neyð kvenna. Hún segir frá sínum samskiptum við manninn og hversu algengt það er að ríkir og giftir menn séu að kaupa vændi af konum með fíknisjúkdóm.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ólöf Tara er stjórnarmeðlimur í Öfgum og starfar sem þjálfari. Ólöf og stelpurnar í Öfgum hafa verið mjög áberandi í baráttunni og förum við aðeins yfir þær hótanir sem Ólöf hefur verið að fá. Við erum að sjá meira rými fyrir þolendur til þess að nafngreina og segja frá ofbeldi án þess að eiga von á meiðyrðakæru. Við förum yfir valdamisræmið þegar 30-50 ára menn eru með 16-20 ára stelpum og afhverju 30+ einstaklingur er að sækjast í 18-20 ára einstakling. Það er að verða auðveldara að tjá sig á internetinu undir fölsuðu nafni og haturorðræða, hótanir og áreiti er alltaf að aukast. Reiðir einstaklingar á netinu eyða tíma sínum í að búa til fölsuð samtöl og vinna hörðum höndum við að taka niður fólk í baráttunni. Ólöf les upp ógeðsleg komment sem menn hafa látið falla um hana í kommentakerfinu og hvernig lögreglan hefur ekki tekið málinu alvarlega. Hún segir fjölmiðla eiga stóran þátt í að leyfa hatursorðræðunni og hótunum að grasserast í kommentakerfinu þar sem menn espa hvorn annan upp. Fjölmiðlar hafa í mörg ár málað konur í baráttunni upp sem reiðar og lagt áherslu á hversu “orðljótar” þær eru. “Afhverju má ég ekki bara vera reið yfir því að konur eru beittar ofbeldi á hverjum degi og þeim er ekki trúað, afhverju má ég ekki vera reið yfir því að réttarkerfið er ótrúlega brotið og gallað? Afhverju má ég ekki bara vera reið yfir því að mínir gerendur hafa komist upp með að beita ofbeldi og það er talað um mig eins og ég sé klikkuð? Ég má bara vera reið yfir því.”
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Andrea Nótt hefur ekki talað við mömmu sína í rúm 10 ár en hún bjó á heimili móður sinnar í 17 ár. Við ræðum aðeins afleiðingar þess að verða fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi sem barn af hálfu foreldri og hvernig Andrea hefur aldrei átt rétt á sínum tilfinningum. Móðir Andreu hefur komið fram í fjölmiðlum oftar en einu sinni þar sem hún opinberar sjálf ofbeldi sem hún varð fyrir. Móðir Andreu er þolandi ofbeldis og reynir Andrea ekki að draga úr frásögn móður sinnar og gerir sér fulla grein fyrir því að móðir hennar er þolandi hrottalegs ofbeldis. “Það sem stakk mig er þegar ég heyrði mömmu mína segja í sjónvarpinu að hún myndi aldrei beita börnin sín ofbeldi”. Andrea segir mömmu sína hafa beitt sig líkamlegu, andlegu og fjárhagslegu ofbeldi. Hún falsaði undirskrift hennar og keypti hluti á nafni Andreu. Hún öskraði, gerði lítið úr henni og taldi henni trú um að hún væri með einhverfu. Það er ekki óskiljanlegt að fólk sem varð fyrir ofbeldi í æsku beiti ofbeldi sjálft þó það afsaki ekki ofbeldið. Andrea fék reglulega að heyra “þú hefur ekki upplifað jafn slæma hluti og ég” og “þetta er ekkert miðað við það sem ég varð fyrir”.
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Sema Erla er stjórnmála og Evrópufræðingur. Hún er stofnandi Solaris sem er hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk. Við förum yfir hvers vegna það ætti að leggja niður útlendingastofnun og við hvernig aðstæður flóttafólk hefur búið við hér á Íslandi. Hvorki stólar né borð hafa verið í húsnæði sem útvegað hefur verið fyrir flóttafólk og sat fólk á gólfinu að borða. Bannað hefur verið að heimsækja flóttafólk og þarf fólk að vera komið heim fyrir kl 10 á kvöldið annars hefur fólk þurft að sofa úti. Afhverju býr flóttafólk við mikla félagslega einangrun? Afhverju eru börn flóttafólks sett í sér skóla? Afhverju er bannað að heimsækja þetta fólk? Sema reyndi eitt sinn að fara með bækur, spil og páskaegg til flóttafólks sem dvaldi á vegum útlendingastofnunnar. Í kjölfarið var henni hótað kæru fyrir að brjóta lög þar sem það má ekki koma með spil til þeirra. Við ræðum einnig orð dómsmálaráðherra þegar hann stígur fram í fjölmiðlum með mjög rasísk viðhorf og mjög rasískan hugsunarhátt. Kallað hefur verið eftir viðbrögðum frá öðrum ráðherrum en enginn hefur sýnt viðbrögð. Sema segir Orðræðuna í dag vera alveg eins og þegar gyðingar voru að sækja um vernd á Íslandi “við þurfum nú að huga að okkar fólki”. Sema fær reglulega hótanir og förum við aðeins yfir ábyrgð fjölmiðla þegar kemur að kommentakerfum. Sema reyndi að kæra mann fyrir ummæli sem hann lét um hana þar sem hann hvatti fólk til þess að drepa hana og vitnaði í ákveðið morðmál. Kæran náði ekki að fara í gegn.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Söngkonan Elísabet Ormslev opnaði sig um samband sitt við tónlistarmanninn Pétur Örn, betur þekktur sem Pétur Jesús. Samband þeirra byrjaði þegar hann var 38 ára og hún 15-16 ára, áður en hún útskrifaðist úr grunnskóla. Hann sagði snemma við hana að það mætti enginn komast að þessu vegna aldurs hennar því fólk myndi dæma hann og hann myndi missa vinnuna. Foreldrar hennar reyndu að senda á Pétur og hafði pabbi hennar samband við móðir Péturs sem tók ekki vel í skilaboðin og sagði Pétur vera fullorðinn einstakling sem mætti gera það sem hann vildi. Í þessu einlæga viðtali talar Elísabet um hvaða afleiðingar þetta hefur haft á hana og líf hennar. Hún segir hann hafa haldið henni í heljargreipum og stýrt henni eins og strengjabrúðu. Elísabet var farin að fá martraðir og þegar henni var farið að dreyma hann vera að meiða barnið hennar hafi hún ákvað að skila skömminni þangað sem hún á heima: hjá Pétri.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
From the publisher's feed