Í þessum þætti heyrum við um einn af frægari einsmellungum sögunnar, ekki síst vegna drengsins sem söng viðlagið í laginu. Rockwell og lagið Somebody's watching me.
Þórður Helgi Þórðason skoðaði nánar þann flokk tónlistarmanna sem oftast eru nefndir „one hit wonder" eða einsmellungar á íslensku.
Í þessari seríu heyrir þú stóru lögin þeirra og kynnist flytjendum aðeins betur og kannski sögunni á bak við lagið.
Einnig fáum við að heyra lagið sem átti að fylgja eftir stóra smellinum eða „smellaeltinum" en þau lög gerðu ekki merkilega hluti.
Komdu þér vel fyrir og kynntu þér einsmellunga, íslenska sem erlenda.