Í þessum þætti heyrum við um tónfarandverkamanninn Greg Phillinganes sem aðstoðaði flesta þá bestu í bransanum en hann átti sér einn smell sjálfur sem hann fékk hálfpartinn lánaðann frá engum öðrum en Michael Jackson, lag sem hann ætlaði að nota á metsölu plötunni Thriller, Behind the mask.
Þórður Helgi Þórðason skoðaði nánar þann flokk tónlistarmanna sem oftast eru nefndir „one hit wonder" eða einsmellungar á íslensku.
Í þessari seríu heyrir þú stóru lögin þeirra og kynnist flytjendum aðeins betur og kannski sögunni á bak við lagið.
Einnig fáum við að heyra lagið sem átti að fylgja eftir stóra smellinum eða „smellaeltinum" en þau lög gerðu ekki merkilega hluti.
Komdu þér vel fyrir og kynntu þér einsmellunga, íslenska sem erlenda.