
Sign up to save your podcasts
Or


HÆSTvirti leikstjórinn Einar Baldvin Arason tjattar við Hugleik um sín markverðustu ræmugláp. Tékkið á HÆST í sjónvarpi Símans.
Teiknarinn og höfundurinn Rán Flygenring tjattaði við Hullsuna um allskonar sem við kemur hreyfiræmum hennar lífs.
Búningahönnuðurinn, listakonan og megabeiban Karen Sonja Mayen Briem deilir sínum mikilvægustu kvikmyndatitlum með manninum sínum.
Hugleikur spjallar við stórleikarann og kvikmyndaunnandann Hannes Óla um allar myndirnar sem skipta einhverju máli!
Vísindaskáldið, Hryllingshrottinn og draumavefjarinn Emil Hjörvar Petersen fór á kvikmynda-trúnó með Hulla í hlaðvarpsholunni.
Hinn mikli Jóhann Alfreð, grínistinn með gullhjartað, kom sér fyrir í kastkitrunni hans Hulla og fór yfir ellefubíó listann.
Kjuðakitlarinn, kátínuspreðarinn og spékoppasportarinn Sigtryggur Baldursson hlammaði sér í fangið á Hulla og fabúleraði eins og honum einum er lagið um kvikmyndir tilveru sinnar.
Leikstjórinn, höfundurinn og framleiðandinn Gagga Jóns settist í kitruna hans Hulla Dags og spekúleraði um eftirminnilegustu og athyglisverðustu kvikmyndirnar að sínu mati.
Sviðslistamaðurinn og rímnagjammarinn Kristján Óli Haraldsson kom sér fyrir andspænis Hullanum og ræddu um þær ræmur sem einhverju máli skipta.
From the publisher's feed