Flugucastið

Flugucastið

By Tight LinesSports
Download on the App Store

Flugucastið episodes

  • Flugucastið #19 - Sumarstrákur, Euronymphing og Kjósin
    Ok ok kæru kastarar.
    Það var nördast í þessum þætti því það er enginn annar en Hrafn H. Hauksson sem mætti í castið og fór yfir sinn stutta en gríðarlega merkilega veiðiferil.
    Hér er kafað djúpt í misflóknar pælingar í veiðinni.
    Taumar, Euronymphing, stangir og flest tæknileg afbrigði af fluguveiði.
    Talað er um Kjósina, Minnivallarlæk og að sjálfsögðu Varmá.
    Í þessum þætti ættu flestir að læra eitthvað nýtt.
    Njótið, við nutum. Sæonara.
    1 hr 50 min
  • Flugucastið #18 - Norðurá, Haugurinn og hnýtingarnar
    Kæru kastarar
    Það var enginn annar en Sigurður Héðinn (Siggi Haugur)sem mætti til okkar þessa vikuna.
    Hann fór yfir sinn feril í leiðsögn, veiði og við fluguhnýtingar.
    Einnig renndum við yfir nýju bókina hans sem ber nafnið Af flugum, löxum og mönnum. Hún er frábær gripur fyrir alla veiðimenn og kemur út akkúrat í dag.
    En hér er Haugurinn. Njótið, við nutum.
    1 hr 32 min
  • Flugucastið #17 - Skátinn, Norðurá og puttinn
    Jæja kæru kastarar. Þá er komið að ansi merkilegri, fróðlegri og magnaðri sögu.
    Þorsteinn Stefánsson kom til okkar og fór yfir allan sinn feril.
    Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð að þvælast á puttanum um nánast allt land til að veiða, orðinn háttskrifaður gæd og klárað stofn í heilli á.
    Já þetta er ansi merkileg saga.
    Njótið. Við nutum.
    1 hr 46 min
  • Flugucastið #16 - Korpa, pólitíkin og Hreggnasi
    Kæru kastarar. Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri Hreggnasa, mætti til okkar í ham og í HAM-bol í fyrsta þátt vetrarins. Jón fer með okkur um víðan völl, veltir steinum og stingur á kýlum. Hann er yngsti leigutaki að laxveiðiá á Íslandi. Hann er HAM, þið eruð HAM, við erum öll HAM. Njótið!
    Minnum á live flugucast á Session Craft Bar 31. október kl. 20. Lofum rokkstjörnum í stólana.
    2 hr 12 min
  • Flugucastið - #Bónusþáttur - Urriðinn, húkkið og fósturstellingin
    Já kæru kastarar. Hér er live-þátturinn með Dagbók urriða, Ólafi Tómasi Guðbjartssyni.
    Hér förum við yfir margt og mikið. Allt frá góðu húkki í Blöndu yfir í snappið Dagbók urriða, fyrrum tengdapabba og lífið og tilveruna.
    Já, þessi þáttur var live og við viljum benda á að hljóðgæðin eru ekki frábær en vonum að þið njótið engu að síður kæru kastarar. Þátturinn endar fremur snögglega en það var út af þessum margfrægu tæknilegu örðugleikum. Það vantar þó bara eina-tvær mínútur. Það var einfaldlega ekki hægt að setja þennan ekki inn!
    Frá okkur Flugucösturum segjum við TAKK fyrir þetta fyrsta season. Heyrumst í haust.
    1 hr 15 min
  • Flugucastið #15 - Snæfellsnes, SVFR, veiða og sleppa?
    Kæru kastarar!
    Farið er yfir stóru málin í þessum þætti. Allt frá nærri gjaldþrota stangaveiðifélagi til SVFR eins og það stendur í dag.
    Bjarni Júlíusson veiðimaður og fyrrverandi formaður SVFR fer yfir æskuna á Snæfellsnesi, leiðsögnina, ástina og formennskuna. Svo er það mál málanna. Veiða og sleppa?
    Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að setja veiðilagið sem Bjarni valdi í lok þáttar og biðjum við ykkur, og hann, velvirðingar á því. Við vitum samt að þið þekkið öll lagið og leyfið því að óma í höfði ykkar.
    Skál!
    1 hr 12 min
  • Flugucastið #14 - Bloggið, Stangaveiðifélagið og bransinn
    Jæja kæru kastarar. Eftir smá bið er komið að næsta þætti.
    Er það? Já. Ok.
    Það er enginn annar en heljarmennið Stjáni Ben sem er gestur þáttarins. Hann fer yfir sögu sína allt frá dópinu yfir í að ætla að sigra stangveiðiheiminn eða svona næstum því.
    Bloggið sem startaði öllu, árin í SVFR og fyrirtækin sem hann hefur stofnað eða komið á koppinn. Já, og svo líka krossfittið auðvitað.
    Þessi þáttur er sprengja, mikið hlegið, mikið talað og margt látið flakka.
    Búmmsjakalakka.
    1 hr 55 min
  • Flugucastið #12- Urriðafoss, Outfitters og skellinöðruprófið
    Kæru Kastarar. Hvar er sósan? Þá er komið að þætti vikunnar og er hann ekki af verri endanum. Gestur vikunnar er Norðlendingurinn, sem er sem betur fer fluttur í Kópavoginn, Stefán Sigurðsson. Hann er einn eiganda Iceland Outfitters og fer yfir sína veiðisögu sem hófst þegar Stefán var þriggja ára.
    Förum allt frá Akureyri til Kópavox, Lax-Á og Iceland outfitters.
    Lifi SLAYER
    1 hr 31 min
  • Flugucastið #11 - Bræður, Á og myndastyttan
    Já, þáttur vikunnar er með þeim lengri enda í honum tveir gestir.
    Bræðurnir Oscar og Erik Koberling mættu og sögðu okkur sínar veiðisögur. Þeir hafa veitt á flugu frá átta ára aldri og síðan þá hefur ekki fengið þá stöðvað í veiði og gæderíi. Kæru kastarar, þáttur vikunnar er á ensku enda urðum við fá þessar sleggjur til okkar.
    Þverá, Kjarrá, Mývatnssveitin og ótal fleiri. Allt þetta og meira til.
    Njótið!
    2 hr 6 min

About Flugucastið

From the publisher's feed

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight…