Flugucastið

Flugucastið

By Tight LinesSports
Download on the App Store

Flugucastið episodes

  • Flugucastið - Bónus þáttur - Sögustund með Árna Baldurssyni
    Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung.
    Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá ykkur með það.
    Fyrstur ríður á vaðið Hvíti hvalurinn sjálfur, Árni Baldursson.
    Hann hendir hér í magnaðar sögur.
    Vonandi njótið þið því við nutum.
    Holy cow
    48 min
  • Flugucastið #37 - Stórlaxarnir og kvíðinn - Nils Folmer Jörgensen
    Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum á skuggahliðum sportsins sem Nils hefur því miður fengið að kynnast.
    Njótið kæru kastara því við nutum og reinum nú að hemja okkur stundum
    2 hr 1 min
  • Flugucastið #36 - Þrákastað með Ragnheiði Thorsteinsson
    Ragnheiður Thorsteinsson hefur frá unga aldri verið heilluð af veiði. Hún hefur víða veitt, framleitt veiðiefni fyrir sjónvarp, sitið í skemmtinefnd og stjórn SVFR. Góður veiðimaður, skemmtilegur viðmælandi og sannarlega góð fyrirmynd fyrir konur í sportinu.
    Njótið, takið upp kampavínið en þó varlega því við tókum það ekki upp varlega.
    1 hr 31 min
  • Flugucastið #35 - Lávarðar Laxár
    Pétur og Birgir Steingrímssynir (ekki bræður) hafa helgað stórum hluta ævi sinnar í eltingarleik við þann silfraða í Laxá í Aðaldal. Báðir hafa þeir fylgt veiðimönnum um áratugaskeið og marga fjöruna sopið og ölduna stigið á bökkum Laxár.
    Við þökkum Veiðitorg.is og Avis bílaleigu sérstaklega fyrir að gera okkur kleift að leggja land undir fót og hitta þessa höfðingja.
    Njótið því við þið vitið þetta
    1 hr 23 min
  • Flugucastið #34 - Sami gamli þorparinn- Pálmi Gunnarsson
    Jæja kæru kastarar þá er það er enginn annar en þjóðargersemin Pálmi Gunnarsson sem er gestur 34. þáttar Flugucastsins. Pálmi hefur víða komið við sínum veiðiferli og ekki gert mikið af því að liggja á skoðunum sínum.
    Við viljum svo sértaklega þakka AVIS og Veiditorg.is fyrir það að gera okkur kleift að fara norður og taka viðtöl við veiðimenn þar.
    1 hr 43 min
  • Flugucastið #33 - Þá beit helvítið á - Matti Hákonar
    Jæja kæru kastarar, við Flugucastarar erum enn fyrir norðan og hittum þar engan annan en Matthías Þór Hákonarson en Matthías Þór rekur fyrirtækið Iceland Fishing Guide og hefur undir sinni regnhlíf þó nokkur veiðisvæði sem við ræðum við hann um. Einnig segir Matti okkur frá ákaflega skrautlegri byrjun hans í veiðibransanum.
    Vonum að þið hafið jafn gaman af þessum og við.
    1 hr 43 min
  • Flugucastið #32 - Íslenskar bleikjur og Erlendur Steinar
    Halló Akureyri og aðrir kastarar.
    Í þessum þætti tökum við hús á Ella Steinari sem er fyrrum formaður SVAK og eigandi hinnar sívinsælu og góðu sölusíðu Veiðitorg.is.
    Elli, sem er sjávarútvegsfræðingur og sjálftitlaður letingi sem byrjaði sinn veiðiferil ekki fyrr en 25 ára, fer með okkur í gegnum veiðisögu sína og köfum við djúpt í bleikjur og bleikjuveiði. Hann ætti nú að vita eitt og annað um þau málefni því hann skrifaði mastersritgerð sína um að veiða og sleppa bleikjunni.
    Við förum einnig örlítið inn á laxeldið í opnum sjókvíum, Eyjafjarðará og auðvitað fær hundurinn Jójó aðeins að koma inn í þáttinn.
    Þannig þessi vika er spennandi fyrir ykkur.
    Njótið því við nutum
    og munið Veiðitorg.is
    1 hr 43 min

About Flugucastið

From the publisher's feed

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight…