Flugucastið

Flugucastið

By Tight LinesSports
Download on the App Store

Flugucastið episodes

  • Flugucastið #10 - Lækurinn, Loop og Húseyjarkvísl
    Jæja, kæru kastarar. Í þætti vikunnar er farið um víðan völl.
    Við fengum til okkar Valgarð Ragnarsson sem sagði okkur frá sínum afrekum. Allt frá tíma sínum í veiðibúðinni við lækinn og til þróunarvinnu fyrir Loop.
    Þetta er bingó.
    1 hr 36 min
  • Flugucastið #9 - Hábeinn heppni, SVFR og kampavínsköstin
    Jæja kæru kastarar. Þáttur vikunnar er langur og góður, Við fáum til okkar snilling sem er ekki bara stíflaður veiðimaður heldur er hann einnig formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
    Þetta er enginn annar en Jón Þór Ólason.
    Við förum yfir alla hans veiðisögu og komandi tíma hjá SVFR og lofum geggjuðum þætti.
    BÚMM
    1 hr 54 min
  • Flugucastið #8 - Langskeggur, spilafífl og Veiðivötn
    Já, kæru kastarar. Við biðjumst velvirðingar á töfum á þættinum en hér er hann kominn í allri sinni dýrð og það er ennþá fimmtudagur.
    Í þætti vikunnar er kafað vel í vatnaveiði. Örn Hjálmarsson leiðir okkur í allan sannleik um dýpstu leyndardóma vatnaveiði og við ræðum meðal annars Hraunsfjörð, Veiðivötn og Skagaheiði. Hin dulmagnaða fluga Langskeggur kemur líka við sögu.
    Kæru kastarar. Fræðist, njótið og umfram allt - meira pönk.
    1 hr 24 min
  • Flugucastið #6 - Vorflugur og slysið í Slæðunni
    Jæja kæru kastarar. Þá er komið að sjötta þætti af Flugucastinu. Í þessari viku er kafað djúpt, en samt ekki of djúpt, í silungsveiði og caddis-flugur. Caddis-bræðurnir Hrafn og Ólafur mættu og jusu úr viskubrunni sínum um Þingvallavatn og fóru einnig mjög vel yfir Laxá í Aðaldal. Þar eru þeir bræður á heimavelli og fáir geta skákað þeim þar. Þar hafa þeir lent í stórslysi og líka gríðarlegri veiði. Búið ykkur undir fræðslu, hlátur og kannski grátur.
    1 hr 39 min
  • Flugucastið #5- Bruni, sprenging og leður. BB
    Í Flugucasti þessarar viku er kafað djúpt. Kannski of djúpt eða kannski ekki. Lengsti þátturinn til þessa. Einfaldlega höfðum við um of mikið að tala og viðmælandi okkar of mikilvægur. Björn Roth. Já, þið heyrðuð rétt; liðsmaður Bruna BB. Hér er fræsing og hér er drukkið og hér er stuð. Björn Roth gjörið þið svo vel.
    2 hr
  • Flugucastið #4- Taumar, tökuvari og teikningar
    Í Flugucasti vikunnar köfum við djúpt inn í pælingar um silungsveiði.
    Við fengum til okkar einn af bestu silungsveiðimönnum Íslands.
    Ingólfur Örn Björgvinsson kom og fræddi okkur um flest öll trikkin í bókinni.
    Ef þið viljið ná alvöru árangri í þessari veiði þá hvetjum við ykkur til að hlusta af athygli.
    Góðar stundir
    1 hr 33 min
  • Flugucastið #2 - Attenborough, síldin og fjöldamorðið
    Veiðikonur og veiðimenn.
    Til lukku! Veiðitímabilið er byrjað og ekki nóg með það. Annar þátturinn af Flugucastinu er kominn í loftið og í honum fengum við engan smá gest. Eggert Skúlason.
    Eggert fer um víðan völl, allt frá stórlöxum niður í smæstu síldir. Við ræðum líka um Sporðaköst og fáum sögur sem gerðust á bakvið tjöldin í þáttunum.
    Við flugucastarar óskum ykkur góðrar skemmtunar.
    1 hr 29 min

About Flugucastið

From the publisher's feed

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight…