Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Vonir KA fuku, ÍA á toppnum og byrjunarlið Íslands
    22. umferð Bestu deildarinnar var leikin í dag og það er komið að tvískiptingunni. KA situr eftir með sárt ennið.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp umferðina. Einnig er fjallað um Lengjudeildina og spennuna sem þar ríkir. Er í lagi að selja heimaleikinn sinn? Landsliðsverkefnið sem er framundan er skoðað. Sæbjörn setur saman líklegt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemborg á föstudag.
    1 hr 9 min
  • Útvarpsþátturinn - Risaverkefni Blika og enskt gluggauppgjör
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hlutanum: Íslenski boltinn. Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks mætir og ræðir um afrek Kópavogsliðsins, verkefnin framundan og það sem er í gangi hjá félaginu. Einnig er rætt um Bestu deildina.
    Í seinni hlutanum: Kristján Atli Ragnarsson gerir upp sumargluggann í enska boltanum. Glugginn er lokað og enn og aftur var eyðslumet slegið.
    1 hr 45 min
  • Innkastið - Áþreifanleg spenna fyrir lokasprett Lengjudeildarinnar
    Það eru þrjár umferðir eftir af Lengjudeildinni, áður en kemur að úrslitakeppninni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds rýna í stöðu mála í þessum sérstaka aukaþætti af Innkastinu.
    - ÍA andar í hálsmál Aftureldingar í baráttunni um toppsætið, eina beina sætið upp í Bestu deildina.
    - Hvaða lið fara í úrslitakeppnina og verða skrefi frá 50 milljóna króna leiknum á Laugardalsvelli?
    - Hvaða lið fellur með Ægismönnum?
    1 hr 23 min
  • Tiltalið: Ásta Eir Árnadóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrirliði Breiðabliks Ásta Eir Árnadóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 50 min
  • Innkastið - Listrænn gjörningur
    Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke eftir 21. umferð Bestu deildarinnar.
    Breiðablik mætti of seint í Fossvoginn. Hver voru skilaboðin frá Blikum? Gyrðir sá til þess að FH vann Val og Eyjamenn náðu með naumindum að bjarga stigi úr leik sínum gegn HK.
    1 hr
  • Enski boltinn - Költhetjan Nunez verður að vera betri en Origi
    Þriðja umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um liðna helgi og var mikið húllumhæ.
    Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu í dag til að fara í umferðina. Hringt var í Atla Má Steinarsson, Liverpool stuðningsmann, og staðan könnuð eftir magnaðan sigur á Newcastle.
    Darwin Nunez er költhetja í Liverpool, Man Utd kom til baka eftir skelfilega byrjun, Ange-ball er að virka vel á meðan Arteta flækir hlutina um of, Sterling er heitur og Everton er algjört þrot.
    1 hr 7 min
  • Heimavöllurinn: Uppgjör á seinni hálfleik í Bestu
    18 umferð Bestu deildarinnar er lokið og framundan er úrslitakeppni þar sem í ljós kemur hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla. Í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin og umferðir 10-18 gerðar upp. Auðvitað í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Jón Stefán Jónsson.
    1 hr 18 min
  • Ungstirnin - Sextán ára skrímsli og lítill töfrakall í Katalóníu
    Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Umsjón: Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein.Í þessum þætti kynna þeir Johan Bakayoko (2003) sem er belgískur landsliðsmaður og einn efnilegasti leikmaðurinn í hollensku úrvalsdeildinni. Luka Vuskovic (2007) einn mest spennandi ungi leikmaður heims um þessar mundir en hann leikur fyrir Hadjuk Split í Króatíu og er mikið orðaður við Manchester City og PSG. Einnig er fjallað um Marcos Leonardo (2003) sem er brasilískur framherji í Santos í heimalandinu sem hefur verið orðaður við Manchester United. Uppáhalds lið þáttarins FC Nordsjælland er á toppnum í Danmörku, Ásgeir Helgi framtíðar club legend í Smáranum? , Óskar Borgþórsson og Kolbeinn Þórðarson byrja með látum fyrir nýju liðin sín. Gengur misjafnlega hjá ungu leikmönnunum okkar vestan hafs, 16 ára töframaður í Katalóníu og svo miklu meira til umræðu.
    1 hr 3 min
  • Útvarpsþátturinn - Hástökk upp úr ruslflokki, Besta og Luigi
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. ágúst.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik er á barmi þess að skrifa nýjan kafla í Íslendingasögu fótboltans og gjaldkerinn er ekki eðlilega spenntur.
    Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður skoðar komandi umferð í Bestu deildinni, Logi Tómasson er á línunni frá Noregi og Valur Gunnarsson í beinni frá bæjarhátíðinni í Mosfellsbæ en lokasprettur Lengjudeildarinnar er í fullum gangi.
    1 hr 43 min