Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tiltalið: Nadía Atladóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður nýkringdra Mjólkurbikarmeistara kvenna í Víkinga R. og fyrirliði liðsins Nadía Atladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 56 min
  • Enski boltinn - Fáránleg dómgæsla og Szobo betri kostur en Mount
    Önnur umferð í ensku úrvalsdeildinni er að baki en það fór fram mjög áhugaverð um liðna helgi.
    Gummi og Steinke fengu Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann á RÚV, í heimsókn til þess að fara yfir umferðina og annað sem er að gerast í enska boltanum.
    Sigur Tottenham á Man Utd, ömurleg dómgæsla, Mason Mount, Dominik Szoboszlai, Phil Foden, Roberto De Zerbi og margt fleira er til umræðu í þættinum í dag.
    1 hr 19 min
  • Innkastið - Vantaði bara að bikarinn færi á loft
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 20. umferð Bestu deildarinnar.
    Víkingur er með ellefu stiga forystu, Stjarnan er næstbesta lið deildarinnar og Eyjamenn eru það slakir að mögulega verður ekki spenna í fallbaráttunni.
    Lengjudeildin, Evrópa og smá 2. deild fylgir með.
    1 hr 20 min
  • Heimavöllurinn: Viva España, markabölvun og stjarnvísindi
    Spánn er Heimsmeistari í fyrsta skipti í sögunni og HM hinum megin á hnettinum var stórkostleg skemmtun. Það er allt á suðupunkti hér á Íslandi og 17.umferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær. Þær Alexandra Bía og Lilja Dögg mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    59 min
  • Ungstirnin - Don't Call It A Comeback
    Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans.
    Nýr leikmaður er genginn til liðs við hlaðvarpið en það er Bjarni Þór Hafstein leikmaður Fjölnis í Lengjudeildinni en Arnar Laufdal og Bjarni ólust saman upp í Breiðabliki.
    Í þessum þætti kynna þeir Elye Wahi (2003) sem um helgina var keyptur til Lens í Frakklandi á 35 milljónir evra, Matheus Franca (2004) sem er nýjasti leikmaður Crystal Palace frá Brasilíu og Arthur Vermeeren (2005) sem er djúpur miðjumaður í lykilhlutverki hjá belgísku meisturunum Royal Antwerp.
    Hringt er til Gautaborgar þar sem Kolbeinn Þórðarson er nýgenginn til liðs við sænska stórveldið og farið yfir fyrstu dagana þar og margt annað.
    1 hr 40 min
  • Útvarpsþátturinn - Engar afsakanir og Jölliball
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í hljóðveri X977.
    Farið er yfir íslensku fótboltavikuna, helstu fréttir og félagaskipti, Blika í Evrópu, bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni og liðna umferð í Lengjudeildinni. Hvernig væri sameiginlegt byrjunarlið Víkings og Vals?
    Gestur þáttarins er Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar. Hann fer yfir starf sitt í Garðabænum, hugtakið 'Jölliball' og fyrir hvað sín hugmyndafræði stendur.
    1 hr 37 min
  • Heimavöllurinn: Trylltur Lengjulokasprettur
    Nú er æsispennandi lokasprettur hafinn í Lengjudeild kvenna og hart barist um sæti í Bestu deildinni að ári. Á Heimavöllinn eru mættir knattspyrnuþjálfararnir Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson til fara yfir Lengjudeildarmálin með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    1 hr 1 min
  • Heimavöllurinn: Rólegur kúreki, danskir dagar og stjörnur í augum
    16. umferð Bestu deildar kvenna var að ljúka og línur aldeilis að skýrast. Fréttaritarar Fótbolta.net þeir Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur. Þau spá svo einnig í spilin fyrir lokahnykk Heimsmeistaramótsins. Allt saman í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    1 hr