Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn
    Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar er að baki og því tilvalið að gera hana upp.
    Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule stúdíóinu í morgun ásamt Tómasi Þór Þórðarsyni, ritstjóra enska boltans á Síminn Sport. Tómas er nýkominn frá London þar sem hann var á stórleik fyrstu umferðar, Chelsea gegn Liverpool.
    Farið var vel yfir stórleik umferðarinnar, kaupin Chelsea á Caicedo og Lavia, skiptinguna á Salah, hörmulega frammistöðu Man Utd, komandi titilbaráttu hjá Arsenal, ómannlegan Erling Haaland og margt fleira.
    1 hr 10 min
  • Tiltalið: Eyþór Aron Wöhler
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.
    1 hr 33 min
  • Innkastið - Keppt á botninum um að vera minnst lélegir
    Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars.
    Allt verður að gulli í Fossvoginum og forysta Víkings eykst, uppgjöf hjá HK fyrir leik, Valsmenn á lágu plani, furðulegur fótboltaleikur á Akureyri, KR og FH með mikilvæga sigra, ÍA gæti farið á topp Lengjudeildarinnar á næstu vikum.
    1 hr 11 min
  • Heimavöllurinn: Bikarmeistarar í heimsókn
    Eins og þjóðin veit urðu Víkingar bikarmeistarar í kvennaflokki í fyrsta sinn í sögunni sl. föstudag. Víkingarnir og bikarmeistararnir Nadía Atladóttir, fyrirliði, og Erna Guðrún Magnúsdóttir kíktu í heimsókn á Heimavöllinn og fóru yfir bikarævintýrið ótrúlega. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    37 min
  • Útvarpsþátturinn - Beygja í Keflavík, Evrópuskellur og enski farinn í gang
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. ágúst.
    Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hlutanum er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar þaðan, Evrópuleikina og Lengjudeildina með Magnúsi Þóri Matthíassyni fyrrum leikmanni Keflavíkur og lýsanda á Stöð 2 Sport.
    Í seinni hlutanum eru það bikarúrslit kvenna með Prettyboitjokko og enski boltinn með Tom og Kára Kongó.
    1 hr 39 min
  • Heimavöllurinn: Sögulegt og sannfærandi hjá stórkostlegum Víkingum
    Sagan var skrifuð á Laugardalsvelli í gær og það var hreint ótrúleg stemmning á Þjóðarleikvanginum þegar Víkingar urðu bikarmeistarar í fyrsta skipti. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem að lið úr 1. deild vinnur bikarinn. Magnað afrek sem þarf að ræða og á Heimavöllinn eru komnir þeir Guðmundur Aðalsteinn og Jón Stefán Jónsson sem ætla jafnframt að fara yfir gang mála í Bestu deildinni. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    58 min
  • Enski boltinn - Spjallað um Liverpool og leitina að varnartengiliðnum
    Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld þegar nýliðar Burnley mæta Englandsmeisturum Manchester City.
    Síðustu daga höfum við hitað upp fyrir deildina með því að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í spjall og í dag er komið að Liverpool sem á ansi stóran aðdáendahóp hér á landi.
    Hrafn Kristjánsson og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn til að ræða sitt félag.
    Það hefur mikið gengið á hjá Liverpool í sumar, og sérstaklega síðasta sólarhringinn eða svo. Auðvitað var rýnt söguna um Moises Caicedo ásamt mörgu öðru í þessum þætti.
    Gleðilega hátíð kæru hlustendur!
    1 hr 10 min
  • Innkastið - Jólasveinar og spjót beinast að markvörðum
    18. umferð Bestu deildarinnar, Lengjudeildin, Evrópuverkefnin og Fótbolti.net bikarinn. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir málin í Innkastinu.
    Arnar kallaði dómarana jólasveina og fékk rautt, Raggi Sig náði í stig, Jajalo í ruglinu gegn Val, KR vann Blika í veisluleik og Stjarnan mun betri en ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum.
    1 hr 9 min