Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tiltalið: Sindri Kristinn Ólafsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er markvörður FH í Bestu deild karla Sindri Kristinn Ólafsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 36 min
  • Innkastið - Dýrkeypt mistök og sjóðheitt sæti
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkasti vikunnar.
    Valur horfði á FCK spila gegn Lyngby um helgina og fylgdi liðinu svo til landsins þar sem dönsku meistararnir unnu Breiðablik 2-0 á Kópavogsvelli.
    Sá leikur er gerður upp, 16. umferð Bestu deildarinnar að auki og þá hitnaði þjálfarasæti Grindavíkur í Lengjudeildinni umtalsvert í kvöld.
    1 hr 11 min
  • Heimavöllurinn: Landi og þjóð til sóma í Belgíu
    Stelpurnar okkar í U19 voru landi og þjóð til sóma í lokakeppni EM en þær eru því miður úr leik. HM hinum megin á hnettinum er farið af stað og ýmis áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós. Þá er Besta deildin farin að banka á nýjan leik og framundan gríðarlega spenna. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin.
    1 hr
  • Enski boltinn - Félagaskipti og undirbúningstímabilið
    Það eru rétt tæplega þrjár vikur í að enska úrvalsdeildin fari af stað á nýjan leik.
    Það er margt búið að gerast í sumar á félagaskiptamarkaðnum. Því ákváðu Gummi og Steinke að setjast niður í Thule hljóðverinu og fara yfir það sem hefur skeð síðustu vikurnar.
    Declan Rice er dýrasti leikmaður sem enskt félag hefur keypt, Mason Mount er farinn til Manchester United frá Chelsea og Liverpoool keypti argentínskan heimsmeistara.
    Þetta og margt fleira rætt í þætti dagsins.
    1 hr 34 min
  • Heimavöllurinn: Áfram Ísland og HM að hefjast
    HM hefst í fyrramálið og Adda Baldursdóttir mætir á Heimavöllinn og hitar upp fyrir mótið. Þá er auðvitað einnig rætt um vináttuleikina tvo sem landsliðið okkar var að spila sem og leik U19 ára landsliðsins okkar í lokakeppni EM. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 8 min
  • Innkastið - Setið í súpunni, Parken bíður og bestir í Lengjudeildinni
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkasti vikunnar í Thule stúdíóinu. Þorsteinn Haukur kemur með skýrslu úr Vesturbænum.
    Evrópuleikirnir, 15. umferðin í Bestu og úrvalslið tímabilsins til þessa í Lengjudeildinni.
    Parken bíður eftir Blikum, KR-ingar sátu í súpunni en unnu samt mikilvægan sigur gegn FH, Kjartan Henry vildi ekki viðurkenningu, gæðaleysi í Árbænum og Eyjum, Stjarnan var miklu betri en Valur, heil umferð í Lengjudeildinni, þjálfaraskipti í Njarðvík og læti í göngunum á Seltjarnarnesi.
    1 hr 33 min
  • Skagamenn gríðarlega stoltir af Hákoni - Hvað verður um peninginn?
    Formaður ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í gær seldur frá FC Kaupmannahöfn til Lille í Frakklandi.
    Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að ÍA fái um 20% af söluverðinu og að söluverðið hafi verið 17 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með. Ef það er rétt kaupverð er Hákon bæði næstdýrasti leikmaður sem FCK hefur selt og næstdýrasti íslenski leikmaðurinn í sögunni.
    Ef það er rétt á ÍA von á tæplega hálfum milljarði eftir söluna á Hákoni. Hvað ætlar ÍA að gera við peninginn?
    Eggert ræddi um söluna, hvað ÍA vill gera við þær upphæðir sem félagið fær, skrefið hjá Hákoni og ýmislegt annað í þessu tæplega stundarfjórðungs spjalli.
    16 min