Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Tíðindamikil vika í íslenska boltanum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. júlí.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni og Lengjudeildinni eru gerðir upp og rætt um Evrópuverkefni Breiðabliks.
    Stefán Ingi er búinn að kveðja Bestu deildina en Aron Elís Þrándarson er er mættur.
    1 hr 42 min
  • U19 á EM - Tveir lykilmenn í spjalli áður en haldið er til Möltu
    Ísland er ein af átta þjóðum sem tekur þátt á Evrópumóti U19 landsliða karla í sumar.
    Það styttist heldur betur í mótið, sem fer fram á Möltu. Strákarnir halda út á föstudaginn og leika sinn fyrsta leik - gegn Spáni - næsta þriðjudag.
    Fyrst það er svona stutt í mótið þá fengum við Hlyn Frey Karlsson, leikmann Vals, og Loga Hrafn Róbertsson, leikmann FH, í spjall um vegferð liðsins að lokakeppni Evrópumótsins.
    Það styttist í stóru stundina og spennan er farin að magnast.
    33 min
  • Heimavöllurinn: Magga Magg og U19 á EM
    Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landslið Íslands, kíkti við á Heimavellinum og tók gott spjall um EM ævintýrið sem er framundan. Margrét tilkynnti leikmannahóp U19 sl. föstudag og það styttist heldur betur í mótið sem fer fram í Belgíu dagana 18.-30. júlí nk.
    38 min
  • Innkastið - Valur eini keppinautur Víkings um titilinn
    Innkastið á mánudegi eftir að 12. umferð Bestu deildarinnar kláraðist um helgina. Farið yfir leikina og Lengjudeildin einnig skoðuð.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Thule stúdíóinu og Hafliði Breiðfjörð kemur með ferðasögu frá Vestmannaeyjum þar sem hann sá Val vinna 3-0 sigur um helgina.
    KR vann KA og Víkingur er enn í góðum málum á toppnum eftir sigur gegn Stjörnunni.
    55 min
  • Tiltalið: Alex Bergmann Arnarsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Njarðvíkur, Alex Bergmann Arnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 50 min
  • Útvarpsþátturinn - Hörður Björgvin, Besta deildin og Burghausen
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Hörður Björgvin Magnússon landsliðsmaður og leikmaður Panathinaikos er gestur þáttarins.
    Svo er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar í íslenska fótboltanum. Stefán Marteinn kemur með skýrslu úr Kórnum þar sem HK vann Breiðablik öðru sinni og Sverrir Örn segir frá leik Keflavíkur og Fylkis.
    Þá er Hannes Þ. Sigurðsson, þjálfari þýska liðsins Wacker Burghausen, á línunni og segir frá lífinu í Bæjaralandi.
    1 hr 47 min
  • Heimavöllurinn: Uppgjör á fyrri hálfleik Bestu
    Níundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þar með fyrri helmingi fyrri hluta mótsins. Í nýjasta þætti Heimavallarins er fjörið til þessa gert upp - í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir.
    1 hr 34 min
  • Ástríðan X Innkastið: 8. umferð og Fótbolti.net bikarinn
    Ástríðan og Innkastið sameinuðu krafta sína í dag til þess að blanda saman umfjöllun um 8. umferð í ástríðudeildinum og fotbolti.net bikarinn sem fór fram í vikunni. Sverrir Mar, Baldvin Már, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke á hringborðinu.Allt í samstarfi við Bola léttöl, Unbroken, Jakosport og ICE nikotínlausra púða.
    1 hr 4 min