Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Lélegur CR7 getur samt ráðið úrslitum
    Landsliðs-Innkast eftir óþolandi tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli. Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiksins en Ísland hafði þá misst Willum Þór Willumsson af velli með rautt spjald.
    Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og nýjasti besti vinur Ronaldo, Sæbjörn Steinke, gerðu upp leikinn og rýndu í stöðuna.
    57 min
  • Tiltalið: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er Þýskalandsmeistarinn og landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 6 min
  • Innkastið - Færin fóru forgörðum og EM vonin fjarlægist
    Ísland tapaði fyrir Slóvakíu á Laugardalsvelli, slök færanýting varð Íslandi hvað helst að falli í leiknum og draumurinn um að komast á EM í Þýskalandi er orðinn afskaplega fjarlægur.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gerðu leikinn upp í Innkastinu og rýndu í framhaldið.
    55 min
  • Útvarpsþátturinn - Leikdagur í Laugardal
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á þjóðhátíðardeginum, 17. júní.
    Elvar Geir og Benedikt Bóas hita upp fyrir landsleik Íslands og Slóvakíu með góðum gestum. Tómas Þór er í beinni frá Spáni.
    Svenni, Friðgeir og Joey Drummer úr Tólfunni kíkja í heimsókn og einnig Palli vallarþulur, Röddin sjálf.
    Þó landsliðið eigi sviðið gefst einnig tími til að renna yfir leiki vikunnar í Lengjudeildinni og opinbera val á besta leikmanni Bestu deildarinnar hingað til.
    1 hr 40 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - KFG verkefnið og Mike í blíðunni
    Á mánudag fer Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, af stað.
    Keppnin er haldin í fyrsta skipti en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár, en úrslitaleikur hennar fer fram á Laugardalsvelli.
    Fjallað verður vel um keppnina á Fótbolta.net og er hluti af því sérstakt hlaðvarp í kringum keppnina, en þetta er fyrsti þátturinn.
    Í þættinum ræddu Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke við Arnar Laufdal, leikmann Augnabliks og fréttaritara á Fótbolta.net, um fyrstu umferðina í keppninni.
    Einnig hringdi Gummi í Kristján Másson, þjálfara KFG, og Mikael Nikulásson, þjálfara KFA, og fékk að heyra þeirra sýn á sumrinu hingað til. Þessi lið eru í toppbaráttunni í 2. deild og mætast í Garðabænum á morgun.
    1 hr 15 min
  • Enski boltinn - Annað þrennulið sögunnar
    Manchester City tryggði sér þrennuna síðastliðið laugardagskvöld með því að leggja Inter frá Ítalíu að velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
    City er núna handhafi ensku úrvalsdeildarinnar, enska bikarsins og Meistaradeildar Evrópu.
    Magnús Ingvason og Tómas Hallgrímsson, stuðningsmenn Manchester City, komu við í Thule stúdíóinu í dag og fóru yfir úrslitaleikinn gegn Inter og tímabilið í heild sinni. City er annað enska liðið í sögunni sem vinnur þrennuna en nágrannar þeirra í Manchester United unnu hans fyrst árið 1999.
    Þetta er lokaþáttur tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu en við stefnum á að byrja aftur stuttu áður en næsta tímabil hefst.
    53 min
  • Ástríðan 7. umferð - 30 mínútur um bitið og allt gert upp
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust til þess að fara yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla í fótbolta. Aðal mál þáttarins var bitið í Akraneshöllinni og fór mikill tími í það enda Sverrir Mar inná vellinum þegar það átti sér stað. Þjálfara og fyrirliða Kormáks/Hvatar var boðið að segja sína hlið í þættinum en báðust undan því.
    1 hr 40 min
  • Innkastið - Fær eitthvað stöðvað Víking?
    Síðasta umferðin fyrir landsleikjaglugga er að baki, ellefu umferðir búnar og allir hafa prófað að spila gegn öllum.
    Það er því boðið upp á heljarinnar hringborð að þessu sinni. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Sverrir Mar og Valur Gunnars fara yfir 11. umferðina í Thule stúdíónu og opinbera val á úrvalsliði Bestu deildarinnar hingað til.
    Lengjudeildarhornið, landsliðið, bit í 3. deildinni og Fótbolti.net bikarinn koma einnig við sögu.
    1 hr 13 min
  • Tiltalið: Arna Sif Ásgrímsdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og er Íslands-og Bikarmeistari með þeim, Arna Sif Ásgrímsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 40 min
  • Útvarpsþátturinn - Age Hareide í hljóðveri
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júní. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.
    Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar; landsliðsvalið, Lengjudeildina, Mjólkurbikarinn og Bestu deildina.
    Í seinni hlutanum er Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands í ítarlegu viðtali. Viðtalið við Hareide hefst á 54:30
    0 min