Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Veðravíti og Víkingstap
    Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 9. umferð Bestu deildarinnar.
    Dauðafæri fór forgörðum hjá Breiðabliki, Tryggvi Hrafn sá til þess að Víkingur tapaði sínum fyrsta leik, Akureyringum létt eftir sigur gegn Fram, Fylkismenn safna stigum á meðan Eyjamenn eru í frjálsu falli, KR vann heimasigur og FH vann HK í stórskemmtilegum leik.
    1 hr 1 min
  • Enski boltinn - Verðlaun veitt eftir að veislan kláraðist
    Ensku úrvalsdeildinni 2022/23 er lokið. Því ákváðu Gummi og Steinke að koma sér vel fyrir í Thule hljóðverinu í dag og gera upp skemmtilegt tímabil.
    Með þeim í dag er Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur og stuðningsmaður Newcastle.
    Farið var yfir lokaumferðina og verðlaun veitt fyrir tímabilið. Meðal annars var lið ársins valið, leikmaður ársins, ummæli ársins og margt fleira.
    Þá var farið létt yfir úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni og ótrúlega lokaumferð í Þýskalandi.
    1 hr 39 min
  • Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.
    2 hr 44 min
  • Enski boltinn - Hemúllinn fer yfir ruglið og upprisuna hjá Coventry
    Coventry City, líkt og Luton Town, er einum leik frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
    Gummi og Steinke fengu Arnar Sæberg Jónsson, sem sumir þekkja sem Hemúlinn, í spjall um Coventry í dag. Hann hefur lengi verið stuðningsmaður liðsins.
    Í þættinum ræðir hann um það hvernig áhugi sinn á Coventry kviknaði og sorglega tíma hjá félaginu síðustu árin. Þetta hefur verið skrautlegt lengi vel en núna er sólin farin að skína.
    Á morgun gæti liðið svo tryggt sér sæti í deild þeirra bestu, en Arnar verður auðvitað á leiknum gegn Luton.
    1 hr 27 min
  • Enski boltinn - Stefán Páls fer yfir ævintýri Luton Town
    Það eru tíu ár síðan Luton Town lék í ensku fimmtu deildinni, en á laugardaginn getur liðið tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
    Gummi og Steinke fengu sagnfræðinginn Stefán Pálsson til að ræða Luton í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Stefán hefur verið stuðningsmaður Luton í að verða 40 ár.
    Þetta er mikil öskubuskusaga en liðið frá flugvallarborginni gæti leikið í deild þeirra bestu á næsta tímabili ef liðið leggur Coventry að velli á laugardaginn.
    Hvað hefur valdið þessum mikla uppgangi? Við fengum Stefán til að segja okkur frá því.
    1 hr 21 min
  • Innkastið - Yfirlýsingagleði og vonbrigði norðan heiða
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni.
    Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.
    1 hr 13 min