Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Jökull Elísabetarson: Á erfitt með að dæma hver á að taka ábyrgðina
    Ágúst Gylfason var í gær látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar, aðstoðarmaður hans, Jökull Elísabetarson, var á sama tilkynntur sem aðalþjálfari.
    Ágúst fékk Jökul með sér í Stjörnuna þegar hann sjálfur var ráðinn til félagsins eftir tímabilið 2021.
    Jökull ræddi um breytinguna í viðtali í dag. Hvað hefur vantað upp á hjá Stjörnunni? Hversu miklu hefur Jökull fengið að ráða til þessa?
    15 min
  • Tiltalið: Jasmín Erla Ingadóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 3 min
  • Heimavöllurinn: 5 spor, olnbogar og Ziemer screamer
    Þriðju umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða á Heimavellinum. Orka Náttúrunnar og Dominos bjóða upp á þáttinn en gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þeir Jón Stefán Jónsson og Stefán Marteinn Ólafsson. Þáttastýra er Mist Rúnarsdóttir.
    1 hr 4 min
  • Innkastið - Haltrandi í humátt
    Elvar, Gummi og Steinke í Innkastinu eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Nóg að ræða.
    Draumurinn um fjögurra liða titilbaráttu, Óskar Hrafn ósáttur við spilamennskuna, dómarinn bað Eyjamenn afsökunar, Valsmenn vængjum þöndum, staða Rúnars Kristins, Maradona mark Ásgeirs, Soft Stjörnumenn, Framarar mættir á ballið, Keflavík gaf FH leik og í Lengjudeildarhorninu förum við í Bogann.
    1 hr 14 min
  • Enski boltinn - Allt í einu bullandi pressa frá Liverpool
    Gummi og Steinke fengu góðan gest í Enska boltann þennan mánudaginn því fjölmiðlamaðurinn Atli Már Steinarsson ákvað að kíkja í heimsókn.
    Atli er mikill Liverpool-maður en hans lið er á mikilli siglingu þessa stundina.
    Liverpool er búið að vinna sex leiki í röð og er komið í bullandi Meistaradeildarbaráttu. Ná þeir að skáka erkifjendum sínum í Manchester United í þeirri baráttu? Hvernig endar þetta eiginlega?
    Það er gríðarlega mikil spenna framundan í ensku úrvalsdeildinni en það var mikið rætt um Liverpool í þessum þætti.
    1 hr 27 min
  • Tiltalið: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
    Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, leikmaður Þróttara úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 29 min
  • Útvarpsþátturinn - Lengjudeildin hafin og spenna í Bestu
    Það er ekki verið að flækja hlutina í þætti vikunnar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum.
    Byrjað er á því að fara yfir fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en deildin fer af stað með dramatík og spennu. Þá er hitað upp fyrir áhugaverða 6. umferð Bestu deildarinnar.
    Enski boltinn, ferðasaga frá Þýskalandi og smá körfubolti koma líka við sögu.
    1 hr 31 min
  • Innkastið - Ferskir vindar verða fárviðri og Lengjuspáin
    Í þessum þætti Innkastsins er 5. umferð Bestu deildarinnar gerð upp og hitað upp fyrir Lengjudeildina með því að skoða spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar.
    Upphitun fyrir Lengjudeildina hefst á 58:00
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke sjá um þáttinn og með þeim er Valur Gunnarsson, fyrrum markvörður og markvarðaþjálfari Leiknis.
    1 hr 44 min
  • Ástríðan - Spá í 3. deild 2023
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?
    Þátturinn er í boði Bola og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 12 min