Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - Spá í 2. deild 2023
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?
    Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 19 min
  • Enski boltinn - Nær Stóri Sam að bjarga málunum?
    Það voru stór tíðindi í morgunsárið því Sam Allardyce er mættur aftur í enska boltann. Hann er tekinn við Leeds og fær erfitt verkefni að bjarga liðinu frá falli.
    Gummi og Steinke fengu Jóhann Inga Hafþórsson, blaðamann Morgunblaðsins og stuðningsmann Leeds, til að ræða fréttirnar og tímabilið hjá Leeds.
    Nær Stóri Sam að bjarga Leeds frá falli?
    Einnig var rætt um aðra leiki síðustu umferðar. Meðal annars var athyglisverð hegðun Jurgen Klopp til umræðu.
    53 min
  • Tiltalið: Birnir Snær Ingason
    Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann bikarmeistara Víkings í tiltal, Birnir Snær Ingason og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.
    1 hr 26 min
  • Innkastið - Svartur blettur á trylltri umferð
    Gummi, Steinke og Sverrir Mar fara yfir fjórðu umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu.
    Breiðablik og Valur unnu sigra í algjörum veisluleikjum, HK hafði betur í nýliðaslagnum, ÍBV gerði kaup tímabilsins og fór í góða ferð til Keflavíkur, Víkingar eru meistaralegir á meðan KA er það ekki og Kjartan Henry var í hefndarhug.
    Þetta var svo sannarlega frábær umferð en miðgrasið í Kaplakrika og allt leikritið í kringum það setti svartan blett á hana.
    1 hr 48 min
  • Útvarpsþátturinn - Ruglið í kringum FH - KR, Biggi Jó og Gaui Lýðs
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. apríl. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í pílagrímaferð til fótboltaborgarinnar Munchen í Þýskalandi.
    Þeir fóru yfir fréttir vikunnar í fótboltanum, ræddu við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF um dramað í kringum leik FH og KR auk útsendinga frá Lengjudeild karla.
    Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Grindavíkur var á línunni en liðið hefur leik í Lengjudeildinni á Akranesi næstkomandi föstudag.
    Þá var rætt um FIFA móti í Arena í Kópavoginum.
    1 hr 50 min
  • Enski boltinn - Ekkert lið í heiminum hefði ráðið við City þarna
    Gummi og Steinke hringdu til Svíþjóðar og heyrðu í Einari Guðnasyni, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings og miklum Arsenal stuðningsmanni. Hann gerði upp stórleikinn gegn Manchester City sem fór fram á miðvikudagskvöld.
    Einar segir að City sé best þjálfaða lið sem hann hefur séð en það er óhætt að segja að lærisveinar Pep Guardiola hafi farið allverulega í bílstjórasætið um enska meistaratitilinn með sigrinum gegn Arsenal í stórleiknum.
    Yfirburðir Man City voru gríðarlegir í leiknum en þeir eru ansi líklegir til að taka þrennuna.
    Einnig var farið aðra leiki vikunnar í enska boltanum.
    50 min
  • Tiltalið: Adam Ægir Pálsson
    Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa.Í fyrsta þættinum fengum við til okkar Adam Ægi Pálsson, leikmann Vals í „tiltal".
    1 hr 17 min
  • Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitunarfjör fyrir Lengjudeildina!
    Lengjudeildin hefst þann 1. maí næstkomandi og komið að því að Heimavöllurinn opinberi lokaspá sína og hiti upp fyrir fjörið sem er framundan. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eru gestir þáttarins en besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, Sísí Lára Garðarsdóttir, var veðurteppt í íslenska vorveðrinu, og var á línunni. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 17 min
  • Innkastið - Víkingur bauð KR upp á raunveruleikatékk
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Óskar Smári í Innkastinu eftir 3. umferð Bestu deildarinnar.Víkingur svo miklu betri en KR, Breiðablik tapaði óvænt í Vestmannaeyjum, Fylkir skellti FH, Stjarnan vann handboltaleikinn gegn HK, Valur vann Fram og markalaust var fyrir norðan.
    1 hr 11 min