Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tiltalið: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni  er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 3 min
  • Útvarpsþátturinn - Fyrirliði Íslands
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið yfir fréttir vikunnar, bikarleikina og næstu umferð Bestu deildarinnar skoðuð.
    Gestur þáttarins er Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði. Rætt er við hann um lífið í Katar, landsliðið og fleira.
    1 hr 43 min
  • Enski boltinn - Þjálfaraaugað sá fegurðina í sigri City
    Gummi og Steinke komu sér vel fyrir Thule stúdíóinu til þess aðallega að ræða leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni. Frammistaðan hjá City í leiknum var hreint út sagt mögnuð.
    Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, var á línunni og fór yfir leikinn frá sjónarhorni þjálfarans.
    Pep Guardiola er búinn að smíða magnað fótboltalið, það verður að segjast.
    Þá ræddu Gummi og Steinke einnig undanúrslitin í öðrum Evrópukeppnum og fóru yfir komandi umferð í ensku úrvalsdeildinni. Einnig var farið yfir nokkrar fréttir.
    Gleðilega helgi!
    1 hr 15 min
  • Tiltalið: Höskuldur Gunnlaugsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 21 min
  • Enski boltinn - Blessun í dulargervi
    Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu.
    Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
    Á meðan er Brighton eitt skemmtilegasta lið deildarinnar. Kannski var það blessun í dulargervi fyrir félagið að Graham Potter tók við Chelsea því Roberto De Zerbi hefur lyft liðinu upp á nýtt plan.
    Rætt var um leiki helgarinnar og ýmislegt annað í hlaðvarpinu. Meðal annars var rætt um þær fréttir að Mauricio Pochettino sé að taka við Chelsea og að Julian Nagelsmann sé ekki að taka við Tottenham.
    59 min
  • Tiltalið: Guðmundur Magnússon
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var Guðmundur Magnússon leikmaður Fram og jafnmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2022. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 39 min
  • Innkastið - KR á botninum og hiti í Hamingjunni
    Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson.
    Víkingar áfram með fullt hús, Kjartan Henry stálheppinn, Fylkismenn með gríðarlega mikilvægan sigur, Eiður Aron missti hausinn, útlitið dökkt hjá Keflavík, Valur lék sér að KA, draumabyrjun Jökuls og Lengjudeildarhornið.
    1 hr 6 min
  • Útvarpsþátturinn - Það tjáir að deila við dómarann
    Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir málin.
    Lengjudeildin er til umfjöllunar og umtalað atvik þegar dómari dæmdi vítaspyrnu en hætti við eftir mótmæli.
    Hitað er upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og rætt um þjálfaraskiptin í Garðabænum. Þá er Adam Ægir Pálsson á línunni.
    1 hr 13 min