Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Hafa báðir haldið með City í meira en hálfa öld
    Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn.
    Í dag fengum við tvo Manchester City menn í heimsókn, þá Magnús Ingvason og Sigurð Helgason. Þeir hafa báðir haldið með Manchester City í meira en 50 ár, meira en hálfa öld. Magnús byrjaði að halda með City 1968, ári eftir að liðið varð þá Englandsmeistari. Sigurður útskýrir það í þættinum af hverju hann heldur með félaginu.
    Þeir eru auðvitað brattir fyrir tímabilinu sem er framundan eftir magnað síðasta tímabil þar sem liðið vann þrennuna. Liðið getur núna stefnt á það að vinna sexuna.
    Það eru ekki margar breytingar á City-liðinu frá síðasta tímabili og breiddin er áfram stórkostleg.
    55 min
  • Enski boltinn - Spá Chelsea í topp fjóra eftir ruglið á síðustu leiktíð
    Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn.
    Í dag er komið að því að ræða við tvo Chelsea menn, þá Harald Örn Haraldsson og Stefán Martein Ólafsson.
    Síðasta tímabil var erfitt hjá Chelsea og sumarið hefur verið kostulegt þar sem fjöldi leikmanna hefur farið og margir nýir hafa komið inn. Þetta getur ekki verið verra en á síðustu leiktíð.
    Chelsea byrjar á leik gegn Liverpool um næstu helgi og eru þeir félagar brattir fyrir leikinn.
    56 min
  • Enski boltinn - Hrein norðlenska Vol. 2
    Þeir eru mættir aftur! Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn hita upp með Sæbirni Steinke fyrir komandi tímabil hjá Manchester United.
    Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi og fer fyrsti leikur Man Utd fram næsta mánudagskvöld.
    Rætt var um fyrsta tímabil hjá United undir stjórn Ten Hag, nýju leikmennina, snert á flestum leikmönnum og ýmsar vangaveltur. Í lok þáttar var aðeins farið yfir komandi verkefni hjá KA en liðið mætir Club Brugge í Sambandsdeildinni á fimmutdagskvöld.
    46 min
  • Útvarpsþátturinn - Á ferð og flugi um verslunarmannahelgina
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í verslunarmannahelgargírnum laugardaginn 5. ágúst.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas taka púlsinn á fólki um allt land og erlendis líka, skoða umferðina með Palla og ræða um fótbolta. Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin, Fótbolti.net bikarinn, enski boltinn og fleira.
    Arnar Laufdal gefur skýrslu úr brekkunni. Hvaða leikmenn eru í Eyjum? Unnar Ari Hansson, fyrirliði KFA, er á línunni frá Akureyri og Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, í beinni frá Belfast.
    1 hr 42 min
  • Enski boltinn - Gunni Birgis og Jón Kári ganga um í draumalandi Arteta
    Við á Fótbolti.net höldum áfram með upphitun okkar fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst um þarnæstu helgi.
    Í dag er komið að því að ræða Arsenal og fengum við því tvo af þeirra ástríðufyllstu stuðningsmönnum til þess að ræða málin, þá Gunnar Birgisson og Jón Kára Eldon.
    Farið er yfir síðasta tímabil þar sem liðið endaði í öðru sæti, leikmannagluggann áhugaverða í sumar og væntingarnar fyrir tímabilið sem er framundan er.
    Það er óhætt að mæla með þessu spjalli fyrir Arsenal stuðningsmenn, sem og aðra.
    1 hr
  • Innkastið - Valur rústaði KR aftur og Hemmi fer stoltur á Þjóðhátíð
    Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, eru saman í Innkasti vikunnar.
    Valur er hefur unnið KR samanlagt 9-0 í tveimur leikjum á þessu tímabili, FH fékk þrjá nýja leikmenn, þjálfari ÍBV var stoltur þrátt fyrir stórt tap og Breiðablik missir af titilbaráttunni.
    Þá var rætt um þjálfaraleitir hjá Fram og Grindavík, og aðeins um síðustu umferð í Lengjudeildinni.
    1 hr 18 min
  • Enski boltinn - Aldrei venjuleg vika hjá Tottenham
    Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað en hún hefst ekki um næstu helgi, heldur þar næstu.
    Við á Fótbolti.net erum byrjuð að hita upp fyrir tímabilið sem er framundan. Spáin hófst fyrr í dag en við ætlum líka að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í Thule stúdíóið til að fara yfir málin.
    Við byrjum á Tottenham en Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, lita flugvélin, komu við á skrifstofunni í dag til þess að ræða um Spurs.
    Síðasta tímabil var ansi litríkt hjá Tottenham og það verður fróðlegt að fylgjast með liðinu á næsta tímabili. Það eru góðar líkur á því að Harry Kane sé búinn að spila sinn síðasta leik og það eru alls konar fréttir í gangi tengdar félaginu.
    51 min
  • Útvarpsþátturinn - Lausir úr banni og brottrekstur í Úlfarsárdal
    Útvarpsþátturinn 29. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Bestu deildina og Davíð Þór Viðarsson er á línunni en búið er að aflétta félagaskiptabanni FH. Stefán Pálsson ræðir um þjálfaraskiptin hjá Fram og Kristján Atli ræðir um Liverpool gluggann og nýja tíma í Sádi-Arabíu.
    1 hr 42 min
  • Hlynur Atli: Þungbært, maður vill ekki upplifa svona
    Fótbolti.net ræddi við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram, og spurði hann út í tíðindi gærdagsins þegar tilkynnt var að Jón Sveinsson hefði verið látinn fara sem þjálfari liðsins.
    Hlynur ræddi tíðindin og gengi Fram í síðustu leikjum. Tekur maður það mikið inn á sig að þjálfari sé látinn fara?
    Fram er í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar eftir sautján spilaða leiki. Næsti leikur Fram er eftir tæpar tvær vikur gegn Fylki sem er í 10. sæti með tveggja stiga forskot á Fram.
    Hlynur var staddur á Rey Cup þegar fréttamaður náði tali af honum sem útskýrir umhverfishljóðin sem gætu heyrst í bakgrunninum.
    12 min