Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - 22. umferð - Síðasta yfirferð sumarsins
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Trúðarnir þrír komu saman og fóru yfir síðustu umferðina auk þess sem að umræðan færðist yfir í tímabilið sem heild.Meðal umræðuefnis:- Haukar enda í 9.sæti, ekki 10.- Bikarinn á loft á Höfn- Jarðtenging Sverris fyrir Kormák/Hvöt- Markakóngarnir- Síðasti leikur nokkurra Ástríðugoðsagna- Nýjir þjálfarar óskast fyrir norðan- KFG í 3.sæti þriðja árið í röð, hvers vegna?Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 17 min
  • Innkastið - Titillinn á hraðleið í Kópavog og FH í fallsæti
    22. umferð Bestu deildarinnar fór fram um helgina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn ræða um leikina.
    Stjarnan batt enda á taphrinuna og sendi FH í fallsæti, Leiknir vann botnslaginn og það er uppgjafartónn á Akranesi, Íslandsmeistaratitillinn er á hraðleið í Kópavoginn, Kjartan Henry settur út úr hóp hjá KR, KA að gera frábæra hluti, Eyjamenn sogast aftur niður og það var handboltaleikur í Úlfarsárdal.
    Í þættinum er einnig rætt um leikjadagskrána í tvískiptingunni, Lengjudeildina og landsleikjagluggann.
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðin, Jamaíka, Besta og enski
    Útvarpsþátturinn 17. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Landsliðsverkefnin og hóparnir í brennidepli, U21 landsliðið á leið í umspil og A-landsliðið í mögulegan úrslitaleik í Albaníu.
    Heimir er kominn til Jamaíku, verið að tvískipta Bestu deildinn og Gunanr Ormslev ræðir um enska boltinn.
    1 hr 28 min
  • Enski boltinn - Norðrið gegn suðrinu í stjörnuleik
    Gummi og Steinke settust niður í dag og tóku upp aukaþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu.Það hefur ekkert verið spilað í ensku úrvalsdeildinni upp á síðkastið út af virðingu við drottninguna. Það má samt deila um það hversu mikil virðing það sé að spila bara ekki og hvort hún hefði viljað það.Í þættinum var aðallega rætt um skemmtilega hugmynd sem Todd Boehly, eigandi Chelsea, henti fram í gær um stjörnuleik í enska boltanum. Gummi og Steinke settu upp sín stjörnulið: Norðrið gegn suðrinu.
    56 min
  • Ástríðan - 21. umferð - Allt klárt í öllum deildum, afsökunarbeiðni og rýnt í gamla spá
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Skytturnar þrjár mættar til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 21.umferð í báðum deildum.
    Meðal umræðuefnis:
    - Víðismenn tapa tveimur í röð á heimavelli- Dalvík og Sindri tryggja sér sæti í 2.deild- Þjálfarinn byrjaði fyrir Kormák/Hvöt- Maggi Matt átti að fá rautt en skoraði svo þrennu- Julio Cesar skoraði fjögur á Reynismenn sem mættu til að tapa- ÍH öruggir annað árið í röð eftir að allir spáðu þeim niðurHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 20 min
  • Heimavöllurinn: Lifandi hliðarlína, lopapeysur og úrslitaleikur hjá topp 2
    Þegar ein umferð er eftir af Lengjudeildinni er ljóst hvaða lið fara upp og hver fara niður. María Dögg Jóhannesdóttir og Telma Hjaltalín, fulltrúar Tindastóls og FH, sem hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild að ári mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið. Þær hita líka upp fyrir lokaumferðina en í henni mætast einmitt toppliðin tvö og berjast um sigur í deildinni. Þátturinn er sjálfsögðu í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar sem standa þétt við bakið á umfjöllun um knattspyrnu kvenna.
    57 min
  • Innkastið - Draumaumferð KA, glataðir Valsarar og Stjarnan í frjálsu falli
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu eftir 21. umferð Bestu deildarinnar.
    KA nálgast Evrópu, Víkingar á flugi, tíu Leiknismenn unnu glataða Valsara, Gummi Magg með tvö í Eyjum, Stjarnan í frjálsu falli og Skagamenn leiddir til slátrunar í Krikanum. Næsta umferð er skoðuð, vangaveltur um þjálfaramál. Er Gamla bandið að mæta aftur?
    Sverrir Örn kemur með skýrslu úr Keflavík, við heyrum hljóðið í leikmönnum deildarinnar og í lokin er svo Nökkvi Þeyr Þórisson í viðtali frá Belgíu.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Bestir í Lengju, fréttir vikunnar og stjóraskipti Chelsea
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. september.
    Umsjón: Elvar Geir og Sæbjörn Steinke. Hjammi ræðir um frestunina á Englandi, opinberað er lið ársins í Lengjudeildinni, farið yfir fréttir vikunnar og næstu umferð í Bestu deildinni, kvennalandsleikurinn ber á góma, rætt um Evrópufótboltann og Stefán Marteinn skoðar stjóraskiptin óvæntu hjá Chelsea.
    1 hr 30 min
  • Innkastið - Níu eða tíu fingur og eitt stykki Beershot
    S-in þrjú, Sæbjörn Steinke, Sigurður Orri og Sverrir Mar gerðu upp 20. umferðina í Bestu deildinni.
    Rætt var ítarlega um alla sex leikina og fréttir tengdar liðunum.
    Umferðin var mjög góð fyrir Breiðablik sem styrkti stöðu sína á toppnum. Næstu fimm lið í deildinni töpuðu öll stigum.
    Á Akranesi voru lagðir út þrír fjarkar og FH nýtti ekki víti sín. KA er á leið í sjö leikja úrslitakeppni og margt fleira er rætt í þættinum.
    1 hr 20 min