Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Man Utd fyrir ofan Liverpool, bíddu ha?
    Það var farið vel yfir stórleik gærdagsins í hlaðvarpinu um Enska boltann í dag.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke settust niður með litlu flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir þriðju umferðina.
    Þá var hringt í Atla Má Steinarsson, einn harðasta stuðningsmann Liverpool, og fór hann yfir málin hjá sínu félagi sem hefur farið illa af stað.
    Þetta eru tæplega 100 mínútur af umræðu um enska boltann, það er ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara.
    1 hr 39 min
  • Innkastið - Upprisan á botninum og vígsla KA
    Átjánda umferð Bestu deildarinnar var vægast sagt tíðindamikil. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar gera umferðina upp.
    Öll þrjú neðstu lið deildarinnar unnu, jafnteflin reynast Víkingum dýr, Blikar sýndu fagmennsku í dal draumanna og KA heldur sér á sigurbraut.
    Tvö bestu lið Lengjudeildarinnar mætast í kvöld og Njarðvíkingar eru komnir upp úr 2. deildinni.
    1 hr
  • Ástríðan - 17. og 18. umferð í 2. deild - Njarðvík í Lengjuna og deildin er búin, eða hvað?
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 17. og 18. umferð í 2. deildinni.
    Meðal umræðuefnis:
    - Njarðvík spiluðu í Valstreyjum og tryggðu sig upp- Ægismönnum fatast flugið- Magni eiga möguleika en samt ekki- Reynismenn fallnir- Þróttur R á leið upp með Hinrik Harðar í fararbroddiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - Læti í Kórnum, enskur stórleikur og Danijel Djuric
    Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á sínum stað.
    Farið er yfir íslensku fótboltavikuna og Mjólkurbikarinn; lætin í Kórnum og leikinn stórskemmtilega milli Víkings og KR, auk þess sem næsta umferð Bestu deildarinnar er skoðuð.
    Kristján Atli Ragnarsson rýnir í komandi stórleik Manchester United og Liverpool sem verður á mánudagskvöldið.
    Nýjasta stjarna Bestu deildarinnar, Danijel Djuric, er gestur þáttarins en hann fer svakalega líflega af stað í búningi Víkings.
    1 hr 41 min
  • Ungstirnin - Transfer Special
    Í þessum þætti er fjallað um þau ungstirni sem hafa verið að byrja vel í ensku úrvalsdeildinni, ungstirnaliðið FC Nordsjælland situr á toppi dönsku úrvaldsdeildarinnar, ungstirni á ferð og flugi um alla Evrópu að skipta um félög, Football Manager og svo margt margt fleira.
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    1 hr 22 min
  • Heimavöllurinn: Sokkuðu spánna og eru efstar, ráðgátur og 3x ON í 2. deild
    Það er stútfullur Heimavöllur í dag. Línur eru aldeilis að skýrast í efstu deild og nú liggur fyrir að Meistaradeildarliðin Breiðablik og Valur mætast í bikarúrslitum. Það er ein umferð eftir af fyrri hluta 2. deildar og gríðarleg spenna framundan þar. Arnar Páll Garðarsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins og rýnir með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur í 2. deildina og allt hitt sem um er að vera. Sem fyrr eru það Orka Náttúrunnar, Hekla og Dominos sem bjóða upp á þáttinn.
    1 hr 55 min
  • Ungstirnin - ÍAS & GBN úr Garðabæ
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir yngri lið Man City og Man United.
    Ísak Andri Sigurgeirsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason tveir af mörgum Ungstirnum í Garðabæ eru gestir að þessu sinni en þar er talað um áhuga erlendis, hvernig tímabilið hefur verið að ganga, Gústi Gylfa alltaf léttur og spurningar frá hlustendum sem og margt fleira.
    1 hr 12 min
  • Enski boltinn - Sumir gengu of langt
    Annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokið og er það ljóst að Íslendingar eru svo sannarlega blóðheitir þegar kemur að enska boltanum.
    Það var mikill hiti í mönnum og sumir fóru yfir strikið. Bæði er hægt að tala um leikmenn og stuðningsmenn í samhengi við það.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, settust niður í dag með Stefáni Marteini Ólafssyni, stuðningsmanni Chelsea, og ræddu um aðra umferðina sem er að baki.
    Farið var yfir allt það helsta; stórt tap Manchester United gegn Brentford, umdeild atvik og stjóralæti á Brúnni, rauða spjaldið á Nunez og margt, margt fleira.
    1 hr 33 min
  • Innkastið - Hnífjafn toppslagur og ójafnt stríð
    17. umferð Bestu deildarinnar gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðveri.
    Þreytt topplið gerðu jafntefli, vígið ógurlega í Úlfarsárdal, trúleysi hjá Breiðhyltingum, varabakvörðurinn í KR, mögnuð sóknarsýning Vals, handbragð Hemma Hreiðars er komið á ÍBV, þrotið hjá FH og Nökkvi er heitasti leikmaður deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhorn.
    1 hr
  • Ástríðan - 16. umferð - 3. deildin er ótrúleg en allt að skýrast í 2. deild
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.
    Tveggja manna teymi sem enginn getur skaðað mætti til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 16. umferð í báðum deildum.
    Meðal umræðuefnis:
    - Loksins eitthvað jákvætt úr Breiðholtinu- KFS á besta runninu síðustu 7 leiki- Njarðvík jafnar sig- Kormákur/hvöt öruggir og skila mögulega leikmönnum núna- Vængirnir dæmdir niður- ÍH með næst óvæntasta sigur sumarsins í ÁstríðunniHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 45 min