Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Liðin sem hafa breytt leiknum
    Elvar Geir og Benedikt Bóas stýra þætti vikunnar. Aðalumræðuefnið eru lið Víkings og Breiðabliks sem staðið hafa í ströngu á öllum vígstöðvum.
    Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, ræðir um árangur þeirra í Evrópu frá sjónarhorni þjálfarans.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, þar á meðal bannið á Arnar Grétarsson, og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings spjallar um viðureignina gegn Lech Poznan.
    Einnig er dómarinn Tómas Meyer í viðtali en hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi eftir óhugnalegt atvik í leik í 3. deildinni fyrir rúmri viku.
    1 hr 22 min
  • Ástríðan - 15. umferð - Njarðvík tapar, botnliðin vinna og Virðing í Vestmannaeyjum
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.Bræðurnir þrír, Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 15. umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis:- Viðtalið við Arnar Halls og svör við því.- Virðing í Vestmannaeyjum- Úlfur fer og Njarðvík tapar- Blönduósvígið er fallið- Kári Péturs er góður með vinstri- ÍH þurfa margt til að halda sér uppiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 51 min
  • Innkastið - Bestu liðin hiksta og FHallbaráttan harðnar
    Elvar Geir heldur um stýrið í Innkastinu eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Með honum í þættinum eru Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason og FH-ingurinn og fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson.
    Topplið Breiðabliks fékk óvænta útreið í Garðabæ, Fram skoraði umdeilt jöfnunarmark gegn Víkingi, Fallfnykurinn eykst í Hafnarfirði, Nökkvi heldur áfram á flugi, Atli Sigurjóns fór illa með Eyjamenn, Skagamaður kláraði Skagamenn og Leiknir gaf Keflavík sigur á silfurfati.
    Einnig er rætt um Sambandsdeildarleikina, Mjólkurbikarinn og Lengjudeildina.
    1 hr 13 min
  • Enski boltinn - Nýtt mót en sama gamla Man Utd
    Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi og var svo sannarlega fjör í fyrstu umferð.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, setjast niður í stúdíó og ræða um fyrstu umferðina sem er að baki.
    Þá er hringt í Halldór Marteinsson, sem er mikill stuðningsmaður Manchester United. Rætt er við hann um tapið gegn Brighton í gær og nýjar vendingar á leikmannamarkaðnum en talað er um að United sé að sækja tvo áhugaverða leikmenn.
    1 hr 31 min
  • Enski boltinn - Löngu kominn tími á málm hjá Tottenham
    Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld með leik Crystal Palace og Arsenal á Selhurst Park. Síðustu daga höfum við verið að hita upp fyrir þessa frábæru skemmtun sem er framundan.
    Í dag mættu tveir grjótharðir Tottenham menn á skrifstofu Fótbolta.net, Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson (litla flugvélin).
    Það ríkir bjartsýni fyrir tímbilinu hjá Spurs og núna er kominn tími á að taka málm. Rætt var um ýmislegt í þættinum; síðasta tímabil, Antonio Conte, leikmannagluggann í sumar og væntingar fyrir komandi leiktíð.
    Þetta er síðasti upphitunarþátturinn fyrir tímabilið en síðustu daga höfum við rætt við stuðningsmen allra liða sem enduðu í topp sex á síðustu leiktíð.
    1 hr 7 min
  • Enski boltinn - Bergmann bræður rýna í Man Utd
    Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina.
    Þátturinn er tekinn upp á Akureyri. nánar tiltekið í KA heimilinu. Sæbjörn ræðir við þá bræður Hallgrím Mar og Hrannar Björn sem eru miklir Man Utd stuðningsmenn.
    Rætt er um nýja stjórann Erik ten Hag, leikmannamál og almennt spáð í spilin.
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Chelsea aldrei neðar en í þriðja sæti
    Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst núna á föstudaginn.
    Í dag er sérstakur Chelsea þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Stefáni Marteini Ólafssyni og Damir Muminovic, sem eru báðir grjótharðir Chelsea menn.
    Rætt er um síðustu tímabil, sumargluggann, undirbúningstímabilið og tímabilið sem er framundan. Hver á að skora mörkin fyrir Chelsea á þessari leiktíð?
    34 min
  • Barcelona á gjörgæslu en hættir ekki að kaupa - Hvað er í gangi?
    Barcelona er með skuldir upp á 1,3 milljarð evra en hefur samt einhvern veginn tekist að kaupa leikmenn fyrir mikið meira en 100 milljónir evra í sumar.
    Þetta sögufræga félag hefur tekið vafasamar ákvarðanir á síðustu árum og kórónuveirufaraldurinn lék þá grátt.
    Þrátt fyrir þessa slæma stöðu á ekki að leggjast niður, það á að spýta í lófana. En hvernig hefur félagið tök á því? Og er það virkilega góð ákvörðun?
    Við fengum Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, til þess að fara yfir málin hjá Barcelona í sérstökum hlaðvarpsþætti í dag.
    39 min