Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Tekur City þann þriðja í röð?
    Enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudaginn. Fótbolti.net hefur síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina og mun halda því áfram fram að fyrsta leik.
    Við spáum í deildina og heyrum í stuðningsmönnum. Þá mæta stuðningsmenn liðanna í topp sex í hlaðvarpsþætti þar sem þeir ræða um sitt lið og tímabilið sem er framundan.
    Í dag - í þriðju útgáfunni fyrir komandi leiktíð - er sérstakur Manchester City þáttur, Englandsmeistararnir eru teknir fyrir. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Ingvasyni, sem er einhver harðasti City maður landsins.
    Farið var yfir síðasta tímabil, ótrúlegan lokadag, áhugaverðan leikmannaglugga í sumar, Erling Braut Haaland, samkeppnina við Liverpool og ferð Englandsmeistarabikarsins til Íslands.
    31 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslensk yfirferð og enski nálgast
    Útvarpsþátturinn í verslunarmannahelgargír laugardaginn 30. júli.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik og Víkingur í Sambandsdeildinni og félagaskiptaglugginn eru til umræðu.
    Enska úrvalsdeildin er handan við hornið. Við hverju má búast? Tryggvi Páll ræðir um Man Utd.
    Arnar Daði í beinni frá Eyjum og Þórir Hákonar fer yfir peningamál og fleira.
    1 hr 41 min
  • Ástríðan - 2. deildar special - 13. og 14. umferð
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.
    Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 2. deild karla.
    Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast.
    Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 34 min
  • Ástríðan - 3. deildar special - 13. og 14. umferð
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.
    Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 3. deild karla.  Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Liverpool samfélagið aldrei verið veikara
    Enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi, veislan er að fara að byrja aftur.
    Fótbolti.net mun næstu daga hita upp fyrir deildina, til að mynda með sérstökum hlaðvörpum þar stuðningsmenn liðanna í topp sex fá að láta ljós sitt skína.
    Í dag er sérstakur Liverpool þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Sóla Hólm, formanni samfélagsins, og fjölmiðlamanninum Atla Má Steinarssyni.
    Rætt var um hið stóra Liverpool samfélag sem hefur aldrei verið veikara en núna, síðasta tímabil og tímabilið sem er framundan. Þeir hafa báðir mikla trú á sóknarmanninum Darwin Nunez sem er kominn til félagsins.
    1 hr 30 min
  • Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum
    Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað og í tilefni af því er Fótbolti.net byrjaður að hita upp fyrir komandi tímabil.
    Í dag var sérstakur Arsenal þáttur. Sæbjörn Steinke ræddi við þá Albert Hafsteinsson og Lúðvík Gunnarsson og var farið yfir sumargluggann hjá Arsenal.
    Spáð var í spilin fyrir komandi tímabil, hvar þyrfti helst að styrkja liðið, hver eru markmiðin og ýmislegt fleira.
    41 min
  • Innkastið - Niðurlægingar á heimavöllum, rauð spjöld og formannspistill
    Innkastið þegar aðeins einum leik er ólokið í 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir heldur um stjórnartaumana að nýju, Sæbjörn Steinke er nýkominn af Meistaravöllum og hinn ástríðufulli Óskar Smári Haraldsson er með þeim í þættinum.
    ÍA og Leiknir töpuðu á niðurlægjandi hátt á heimavöllum, Fram er í gírnum, ÍBV komið með tvo sigra í röð en geymir stjörnur á bekknum, rauð spjöld fór á loft, Breiðablik missti af stigum, Óli Jó mættur aftur, formaður KR tók upp pennann, KA gerði góða ferð suður, Lengjudeildarhorn, gluggadagurinn og fleira.
    1 hr 17 min
  • Heimavöllurinn á EM: Fjögur fræknu berjast um titilinn
    Það er örstutt eftir af stórskemmtilegu EM í Englandi og spennan er óbærileg. Þær Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir litu við á Heimavellinum og fóru yfir mótið til þessa og spáðu fyrir um framhaldið. Það er einnig nóg um að vera í neðri deildunum hér heima og Besta deildin fer aftur af stað í vikunni. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 30 min
  • Útvarpsþátturinn - Öflug Evrópuúrslit, Besta deildin og Lengjan
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. júlí.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin til umfjöllunar. Ennig er rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram.
    Farið er yfir öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum, ýmsar vangaveltur og einhverjir slúðurmolar fá að fjúka.
    1 hr 49 min
  • Innkastið - Miklar hræringar og vesen í Vesturbæ
    Ungstirni fótboltafréttamennskunnar, Arnar Laufdal, stýrir Innkastinu að þessu sinni. Með honum í þættinum er Eysteinn Þorri Björgvinsson og Andri Már 'Nablinn' Eggertsson, íþróttafréttamaður á Sýn.
    Aðalumræðuefnið er Besta deildin og 13. umferð hennar. Farið er yfir hræringarnar hjá Val og FH, vesenið í Vesturbænum, Evrópuleikina, Lengjudeildina og fleira.
    Þátturinn er í boði White Fox, refurinn maður lifandi.
    1 hr 18 min