Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • EM Innkastið - McLeigubíll, lífið í Crewe og byrjunarlið Íslands
    EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins.
    Í þessum fyrsta þætti ræða þeir um lífið í Crewe þar sem bækistöðvar íslenska liðsins eru, stóru fréttirnar í breskum stjórnmálum, velja leigubílstjóra sem mann dagsins, fara yfir líklegt byrjunarlið Íslands og ýmislegt tengt stelpunum okkar.
    33 min
  • Heimavöllurinn á EM: D fyrir drama, dauðariðil, dreka eða drauma?
    Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM sem hefst í dag! Nú er komið að því að skoða D-riðilinn en það er riðillinn sem að stelpurnar okkar leika í ásamt Belgíu, Ítalíu og Frakklandi. Þær Lilja Dögg Valþórsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í stúdíóið og fóru yfir málin.
    42 min
  • Innkastið - Dómarinn kann ekki reglurnar og KR fjarlægist bestu liðin
    Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke eru í Innkasti vikunnar. Með þeim er Runólfur Trausti Þórhallsson, KR-ingur og íþróttafréttamaður á Vísi.
    Rætt er um hörmulega dómgæslu en frábæra frammistöðu Víkings í Malmö og svo farið yfir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhornið á sínum stað.
    1 hr 15 min
  • Sara er komin aftur - Fyrirliðinn fer yfir síðastliðin tvö ár
    Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, setti sér það markmið þegar hún var barnshafandi á síðasta ári að spila fyrir Ísland á Evrópumótinu.
    Hún er núna mætt ári síðar til Þýskalands þar sem hún hefur tekið þátt í undirbúningi fyrir mótið.
    Það eru núna fimm dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu og settist fyrirliðinn niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskalandi núna rétt áðan.
    Sara, sem er einhver mesti sigurvegari sem Ísland hefur átt, ræddi um ýmislegt - meðal annars hvernig sonur hennar hefur breytt lífinu - í góðu spjalli.
    30 min
  • Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM
    Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur.
    Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma.
    Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðinu og framundan er Evrópumót.
    Þetta spjall er góð upphitun fyrir EM núna þegar innan við vika er í fyrsta leik Íslands.
    29 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn, Bjarki Már og DSJ
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. júlí.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða um Bestu deildina, leik KR og Víkings og pælingar um félagaskiptagluggann. Einnig er farið yfir Lengjudeildina, dráttinn í Mjólkurbikarnum og Evrópuleikina framundan.
    Í seinni hlutanum er rætt við leikgreinandann Bjarka Má Ólafsson sem er kominn í nýtt starf og Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðsins.
    1 hr 32 min
  • Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi
    Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti.
    Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það.
    Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu.
    Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki.
    Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.
    1 hr 3 min
  • Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli
    Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.
    45 min