Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - 6. umferð - Línur skýrast aldrei í 3. deild og Ægir fékk á sig mark
    Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og maðurinn sem skrifar löngu viðtölin, Sæbjörn Steinke, settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla.
    Meðal umræðuefnis:
    ÍR harka inn öðrum sigri í röð, Luka Jagacic gæti fengið sparkið frá Reyni S., Ægismenn fengu á sig sitt fyrsta mark en unnu þó, Rafael Victor er hinn nýji Cristofer Rolin, fyrsti sigur ÍH stoppaði Augnablik, Víðir með virðingu eftir helgina, Kári reif sig í gang og KFS með sigur á Hvolsvelli. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.
    Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 56 min
  • Innkastið - Landsliðið kvatt og Besta deildin boðin velkomin
    Landsliðsuppgjör í Innkastinu að þessu sinni og einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni sem fer aftur af stað á miðvikudaginn.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke ræða um jafnteflið gegn Ísrael og landsleikjagluggann í heild.
    Dráttur íslensku liðanna í Evrópu og U21 landsliðið eru einnig til umræðu ásamt því að Lengjudeildarhornið er á sínum stað.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðin og Víkingar með Arnari Gunnlaugs
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. júní.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt um harða gagnrýni á landsliðið og landsliðsþjálfarann, síðustu leiki og ákvörðunina að spila gegn Sádi-Arabíu.
    Gestur er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann ræðir um landsliðið, U21 og Bestu deildina.
    Þá skoðar Mist Rúnarsdóttir valið á kvennalandsliðshópnum fyrir EM.
    Sérfræðingur: Mist Rúnarsdóttir.
    1 hr 41 min
  • Ástríðan - 5. umferð - ÍH og Reynir S. einu stigalausu liðin
    Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fimmtu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Pollið á Twitter sagði að Gylfi bullaði mest en hann var með svör við því. Erfitt að lesa í nokkur lið og aðeins tvö lið eru eftir stigalaus. Vanmat hjá Víði? Hvort eru Dalvík eða Sindri besta liðið í 3.deild? Stígandi fyrir austanÞátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 39 min
  • Bjarni Helgason um Dætur Íslands og kvennalandsliðið - „Á alltaf að vera í þessum hóp"
    Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræddi við Sæbjörn Steinke um nýja þætti sem sýndir eru á mbl.is.
    Bjarni heimsótti leikmenn í kvennalandsliðinu og eru tveir þættir þegar komnir út. Þættirnir heita Dætur Íslands.
    Rætt er um þættina og þá er einnig tekinn snúningur á landsliðshópnum sem tilkynntur verður á föstudag. Hverjar verða valdar?
    29 min
  • Þórðardætur eru alltaf saman - „Kötlu finnst ég svolítið erfið að búa með"
    Þær Íris Una og Katla María Þórðardætur hafa farið saman í gegnum ferilinn til þessa, þær búa saman og vinna á sama vinnustað.
    Þær ræddu við Sæbjörn Steinke og fóru fyrir ferilinn til þessa.
    Af hverju að fara á Selfoss? Árin með Fylki og Keflavík eru rætt og þá eru þær spurðar út í vinkonu sína hana Sveindísi Jane. Þetta og margt fleira á um tuttugu mínútum.
    20 min
  • Synir Andrésar hins sterka ræddu málin - Sverðó og Jökull til Örebro?
    Andréssynir, þeir Axel Óskar og Jökull ræddu við Sæbjörn Steinke en þeir eru staddir á Íslandi í fríi.
    Axel er leikmaður Örebro í Svíþjóð og Jökull er leikmaður Reading á Englandi. Þeir fóru yfir liðið tímabil og Axel um byrjunina á tímabilinu með Örebro.
    Axel segir frá því að hann hafi komið Jökli úr því að leika sér með sverð og í að standa milli stanganna í markinu. Er möguleiki á því að Jökull fari til Örebro?
    35 min
  • Aron Sig um Horsens, Union og landsliðið - „Pæla ekki allir í því eða?"
    Fjölnismaðurinn Aron Sigurðarson gekk í raðir danska félagsins Horsens síðasta haust en þangað kom hann frá belgíska félaginu Royale Union Saint-Gilloise.
    Aron ræddi við Sæbjörn Steinke um tímabilið í Danmörku, skiptin frá Union, ævintýri Union í Belgíu, framherja Brighton og landsliðið svo eitthvað sé nefnt.
    Hann lék stórt hlutverk þegar Horsens fór upp úr dönsku B-deildinni á dögunum og verður í Superliga á komandi tímabili.
    36 min
  • Útvarpsþátturinn - Ísland, þjálfaramál og Selfoss
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júní.
    Í þættinum er fjallað um landsliðið, þjálfaramál á Íslandi, landslið Bestu deildarinnar valið og fleira.
    Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari er á línunni og einnig Gary Martin en Selfyssingar eru á miklu flugi í Lengjudeildinni.
    1 hr 44 min