Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Bikarspjall á bílaplani
    Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eru að baki og Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke skella sér út í sólina á bílaplaninu á Krókhálsi, gera upp leikina og skoða helstu tíðindin í íslenska fótboltanum.
    Fernukóngur kom inn af bekknum í Kórnum, vítahlaðborð á Akureyri, Eiður Smári vann fyrsta sigurinn, Cupset í Þorlákshöfn, KR lenti í kröppum dansi, framlengt á Framvelli, Gísli Eyjólfs skoraði sparimark og Víkingar léku sér að Selfyssingum.
    59 min
  • Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti.ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káramenn styttra komnir en búist var við. Dalvík tapað 3 af síðustu 4. Sverrir hefur hafið þá vegferð að jarðtengja sig aftur eftir að hafa spáð Kormáki/Hvöt falli mánuði fyrir mót.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    2 hr 9 min
  • Heimavöllurinn: Flikk flakk og hreint lak í Eistlandi
    Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á landsliðssamba á Heimavellinum. Þær Auður Scheving og Sólveig Larsen eru nýmættar til landsins eftir ferð með U23 landsliðinu til Eistlands þar sem þær sóttu góðan sigur ásamt liðsfélögunum. Þær mættu í gott spjall um landsliðsverkefnið, EM á Englandi, ævintýrin í yngri flokkunum, lánið í Mosó og margt fleira.
    1 hr 10 min
  • Útvarpsþátturinn - Euro-Vikes, Besta liðið og Lengjudeildin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 25. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fjallað er um Víking í Meistaradeildinni og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri félagsins fer yfir möguleika Íslands á að endurheimta fjórða Evrópusætið.
    Sérstakt Bestu deildar uppgjör þar sem valið er úrvalslið deildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn. Hvaða leikmenn hafa verið mestu vonbrigðin?
    Einnig er fjallað um Lengjudeildina og besti leikmaður deildarinnar hingað til valinn. Rafn Markús Vilbergsson er á línunni.
    Þá er rætt um Breiðablik - KR, spáð í spilin fyrir Mjólkurbikarinn og rýnt í helstu fréttir, þar á meðal skipti Frederik Schram í Val.
    1 hr 43 min
  • Heimavöllurinn á EM: B&B fara yfir rosalegan B-riðil
    Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Mist rúllaði á Selfoss og hitti þar fyrir þjálfarana Björn Sigurbjörnsson og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttir og saman fóru þau yfir B-riðil mótsins þar sem Danmörk, Finnland, Spánn og Þýskaland munu takast á.
    48 min
  • Innkastið - Ísak býr til mörk og Valur tengir saman sigra
    Innkastið. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í þættinum að þessu sinni.
    Víkingar með Meistaradeildarsýningu gegn Levadia Tallinn, Valsmenn tengja saman sigra, Leiknir og ÍBV eiga á hættu að missa af lestinni, Eiður Smári byrjaði á jafntefli við erfiðar veðuraðstæður, Fram vígði nýjan völl, markverðir gerðu mistök, himininn er blár og Ísak býr til mörk og KR safnar jafnteflum.
    1 hr 2 min
  • Ástríðan - 7. umferð - Arnar Halls hættir fyrir úrslitaleiki og toppbaráttan í 3. deild svakaleg
    Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og hinn síveiki Óskar Smári settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla.
    Meðal umræðuefnis:
    ÍR fyrsta liðið til að tapa fyrir KFA og Arnar Halls hætti fyrir stærstu leikina, Ægismenn fengu á sig þrjú mörk en unnu þó, Njarðvík með endurkomu gegn Völsungi í 6 stiga leik, flóðgáttir opnuðust hjá Víkingi Ó, Kári og ÍH með tvo í röð, Víðir ýktasta jojo liðið, Dalvík á sigurbraut aftur og sendi Kormák/Hvöt í fallsæti.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.
    Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 52 min
  • Innkastið - Óli Jó rekinn og fyrsta tap Blika
    Það var margt að ræða í Innkastinu þessa aðfaranótt föstudags. Heil umferð í Bestu deildinni, brottrekstur og fyrsta tap toppliðsins.Fjögur jafntefli, Víkingssigur, Valssigur og þrjú mörk í uppbótartíma.Þeir Sverrir Mar Smárason og Baldvin Már Borgarsson fóru yfir hlutina með Sæbirni Steinke.
    1 hr 30 min
  • Heimavöllurinn: Beint úr Bestu á EM í Englandi
    Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á fótboltaveislu á Heimavellinum. Landsliðskonurnar Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, komu í gott spjall um Bestu-deildina og mál málanna: Úrslitakeppni Evrópumótsins sem er rétt handan við hornið.
    1 hr 17 min